Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hægt að breyta viðbrögðum sem valda vanlíðan

Hægt að breyta viðbrögðum sem valda vanlíðan

Hann segir margs konar mis­skiln­ing í gangi varð­andi dáleiðslu eins og þá að fólk missi stjórn­ina í henni. Jón Víðis, dáleið­ari og töfra­maður, leiðir les­endur Vikunnar í allan sann­leika um hvað dáleiðsla er og hvað hún getur gert.

„Dáleiðsla er vit­und­ar­á­stand sem felur í sér aukna ein­beit­ingu, tak­mark­aða athygli og aukna getu til að bregð­ast við til­lögum. Vit­und­ar­á­stand þýðir í raun að það er hægt að vera vak­andi, sof­andi eða í dáleiðslu. Það kann­ast allir við að vera ann­ars hugar, utan við sig eða dreyma dagdrauma, þetta er allt ástand sem fólk fer í við dáleiðslu. Þá er hægt að vera í mis­djúpri dáleiðslu en fólk er alltaf með­vitað og getur munað allt sem fram fer. Það getur líka staðið upp og gengið út í miðri dáleiðslu ef það kærir sig um, fólk missir aldrei stjórn­ina þó að það geti litið þannig út fyrir þann sem horfir á. Í dáleiðslu eykst ein­beit­ingin og athyglin á umhverfið minnkar. Í raun­inni er öll dáleiðsla sjálfs­dá­leiðsla þannig að allt sem dáleið­ar­inn gerir er að hjálpa fólki að koma sér sjálfu í dáleiðslu­á­stand,“ segir Jón og heldur áfram. „Í dáleiðslu erum við að vinna með hug­ann og ímynd­un­ar­aflið. Þannig að dáleiðsla virkar á allt sem er hug­lægt og nýt­ist því vel til þess að aðstoða fólk sem glímir við kvíða og kvíða­tengda hluti eins og loft­hræðslu, flug­hræðslu, kóngu­ló­ar­fælni, inni­lok­un­ar­kennd og svo fram­vegis. Með því að nota dáleiðslu er hægt að minnka þessar til­finn­ingar eða jafn­vel losa sig alveg við þær.

,,Með­vit­aði hug­ur­inn sér um alla rök­hugsun á meðan und­ir­vit­undin geymir allt sem þú kannt og veist. Und­ir­vit­undin veit líka hvernig á að bregð­ast við öllum aðstæðum sem upp hafa komið áður og gerir það.“

Þar sem dáleið­arar vinna með ímynd­un­ar­aflið þá notum við tölu­vert af sam­lík­ingum og dæmisögum sem fólk sam­samar sig við og getur breytt hugsun og hegðun í sam­ræmi við það. Dáleiðsla er öfl­ugt tæki þegar kemur að því að breyta vana eins og að hætta að reykja. Þegar fólk reykir þá er stór hluti af því tengdur aðstæðum og umhverfi og það er þar sem dáleiðslan hjálpar fólki, að reykja ekki í hugs­un­ar­leysi og minna sig á hvers vegna það vilji vera reyk­laust.“

Hann segir það sama eiga við þegar fólk vill létt­ast, að stinga ekki ein­hverju upp í sig í hugs­un­ar­leysi og átta sig á að það er að inn­byrða mat. „Þá hefur fólk einnig komið til mín til þess að losna við ein­hvern sem það er komið með „á heil­ann“ hvort sem það eru gamlir vinir, sam­starfs­fé­lagar eða fyrr­ver­andi maki. Það hefur gengið mjög vel og hugs­anir um við­kom­andi hafa hætt að stjórna líf­inu eins og áður.“

Meðvitaði hugurinn og undirvitundin

Það má skipta hug­anum upp í með­vit­aða hug­ann og und­ir­vit­und­ina að sögn Jóns. „Með­vit­aði hug­ur­inn sér um alla rök­hugsun á meðan und­ir­vit­undin geymir allt sem þú kannt og veist. Und­ir­vit­undin veit líka hvernig á að bregð­ast við öllum aðstæðum sem upp hafa komið áður og gerir það. Með­vit­aði hug­ur­inn, rök­hugs­unin síar svo út það sem ekki er þörf á lengur. Rök­hugs­unin er hins vegar ekki nógu fljót að stoppa allar hugs­anir sem upp koma. Með­vit­aði hug­ur­inn hefur ekki aðgang að und­ir­vit­und­inni og á því erfitt með að breyta við­brögð­unum. Með dáleiðslu er hægt að tala beint við und­ir­vit­und­ina og breyta við­brögðum við því sem áður hefði kallað á t.d. mat, sígar­ettu, van­líðan eða hræðslu og komið þannig í veg fyrir það sem fólk gerði áður en bregð­ast í stað­inn við eins og það vill með­vitað gera.“

„En dáleiðsla sem skemmti­at­riði og dáleiðsla í með­ferð­ar­til­gangi eru alger­lega aðskilin fyr­ir­bæri.“

En hvað virkar dáleiðsla lengi? „Hún virkar eins lengi og þú þarft á henni að halda. Ef þú vilt breyta vana þá breyt­ist hann og er var­an­legur, t.d. hverfur fælni yfir­leitt algjör­lega. Ef þú vilt bæta sam­skipti við ein­hvern þá verða þín við­brögð betri en það breytir því ekki hvernig hinn aðil­inn hegðar sér og þú getur fallið aftur í sama mynstur ef þú leyfir þér það. Jón segir að einn hópur öðrum fremur hafi nýtt sér dáleiðslu. „Það eru íþrótta­menn sem vilja bæta sig í sinni íþrótt. Ég hef til dæmis hjálpað sund­manni að ná betri árangri, hlaupara að kom­ast yfir þrösk­uld í hlaupi og golfara að halda ein­beit­ing­unni.

Dáleiðsla og töfrar

Jón er einnig töfra­maður og ég spyr hann nánar út það. „Ég kynnt­ist dáleiðslu aðeins öðru­vísi en margir aðrir og sem töfra­maður sá ég dáleiðslu sem tæki­færi til að bæta við mig og vera með öðru­vísi sýn­ingar. Enda taldi ég dáleiðslu vera eins konar „trikk“. Það sem kom mér hins vegar veru­lega á óvart var að dáleiðsla raun­veru­lega virkar, það er hægt að ná fram breyt­ingum sem maður vill ná fram. Bíó­myndir og sviðs­dá­leið­arar sem hafa komið til Íslands hafa kynnt dáleiðsl­una sem leið til að „stjórna“ fólki, það gefur mjög ranga mynd af dáleiðsl­unni, en það er með sviðs­dá­leiðslu eins og töfra­brögð að þar er ekki allt sem sýn­ist.

„Það sem kom mér hins vegar veru­lega á óvart var að dáleiðsla raun­veru­lega virkar, það er hægt að ná fram breyt­ingum sem maður vill ná fram.“

Það er mik­il­vægt í sviðs­dá­leiðslu að koma vel fram við alla sem koma upp á sviðið og að fólk upp­lifi að það hafi staðið sig vel og sé ánægt með sína frammi­stöðu. Því bið ég fólk aldrei um að gera eitt­hvað sem er nei­kvætt eða því gæti liðið illa með eftir að sýn­ingu lýkur. Það er hins vegar hægt að gera skrýtna hluti eins og biðja fólk um að gleyma nafn­inu sínu, lát­ast vera ein­hver annar en það er eða sjá ekki hluti sem eru raun­veru­lega á staðnum eða sjá ofsjónir. Þetta er hægt að gera þannig að það sé skemmti­legt að horfa á og fólk hafi góða upp­lifun með að hafa tekið þátt í því.

Ég hef verið með dáleiðslu­sýn­ingar og sýnt þar nokkur töfra­brögð í bland. En dáleiðsla sem skemmti­at­riði og dáleiðsla í með­ferð­ar­til­gangi eru alger­lega aðskilin fyr­ir­bæri. Ég nota ekki sviðs­dá­leiðslu á fólk sem kemur til mín í með­ferð­ar­dá­leiðslu þar sem dáleiðslan er notuð til að hjálpa fólki að vera ein­beitt­ara í að ná þeim árangri sem það ætlar sér eða að losna við þær hugs­anir eða lang­anir sem hafa áður truflað það,“ segir dáleið­ar­inn að lokum. Nánari upp­lýs­ingar má finna á daleidslu­mid­stodin.is og þá er dáleiðslu­skól­inn Hug­ar­efl­ing, daleidslu­skol­inn.is sem Jón er í for­svari fyrir að byrja með dáleiðslu­nám­skeið í haust, sem henta öllum sem vilja læra dáleiðslu, einnig til að láta sér líða betur eða hjálpa öðrum til að ná því sama.

Texti / Unnur H. Jóhanns­dóttir
Myndir / Hákon Davíð  Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu