Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórunn Antonía segir skilið við fortíðardrauga

Þórunn Antonía segir skilið við fortíðardrauga

Þórunn Antonía og Agnar Frið­berts­son hafa sent frá sér nýtt lag, Flug­dreka, þar sem söng­konan er á per­sónu­legum nótum. Fram undan eru síðan ýmis spenn­andi verk­efni, þar á meðal sam­starf við erlendan fram­leið­anda sem er stórt nafn í tón­list­ar­brans­anum úti í heimi.

„Þetta lag er í raun bæði per­sónu­legt og ljóð­rænt. Það fjallar um það að segja skilið við for­tíð­ar­drauga og gamlar hömlur og ganga í burtu frá öllu sem er ekki gott fyrir mann hvort sem það er sam­band, ofbeldi eða eitruð sam­skipti,“ segir Þórunn Antonía um nýja lagið, sem hún samdi ásamt Agnari Frið­berts­syni, eða Agga Frið­berts, eins og hann er gjarnan kall­aður.

Spurð út í sam­starfið seg­ist Þórunn ein­falda­lega hafa rek­ist á Agnar á Facebook. „Okkar sam­starf kom þannig til að ég óskaði eftir sam­starfs­fólki í hljóð­heimi á síð­unni Hljóðn­ördar án landamæra. Þannig fann ég Agga,“ segir Þórunn glöð og bætir við að þau hafi samið ýmis lög saman síðan og séu góðir vinir.

Umslagið vekur athygli blaða­manns. Hvernig varð það til? „Þegar ég var að fara að senda Agga lagið til að setja inn á Spotify rann upp fyrir mér að ég átti engar myndir til að nota. Ég var hins vegar með mynd í koll­inum af konu á vegi með 30 kíló­metra hraða­hindrun, með vísan í það að ég hef heyrt konur tala um að það sé ein­hvers konar síð­asti sölu­dags­stimp­ill á konum í tón­list­ar­brans­anum. Þær megi ekki gera hitt eða þetta eftir að þær ná ákveðnum aldri, sem er bara bull,“ segir Þórunn ákveðin.

„Ég hef heyrt konur tala um að það sé ein­hvers konar síð­asti sölu­dags­stimp­ill á konum í tón­list­ar­brans­anum … sem er bara bull.“

Hún ákvað að fá vin­konu sína, Ernu Kristínu Stef­áns­dóttur, sem heldur úti miðl­inum Ernu­landi, til að útfæra hug­mynd­ina með því að taka myndir af sér í Hvera­gerði. Mynd­irnar voru svo sendar í eft­ir­vinnslu til Brantley Guiterez, sem myndar tölu­vert fyrir stór tísku­tíma­rit og hefur leik­stýrt tón­list­ar­mynd­böndum meðal ann­ars fyrir tón­list­ar­mann­inn Diplo og hljóm­sveit­ina Arcade Fire. Guiterez er vinur Þórunnar til margra ára og sam­starfs­fé­lagi í tón­list en þau gáfu út nokkur lög í fyrra.

Spennandi verkefni fram undan

Auð­heyri­legt er að Þórunn hefur í nógu að snú­ast því fyrir utan að ætla að fylgja nýja lag­inu eftir eru ýmis spenn­andi verk­efni á teikni­borð­inu. „Ég er til dæmis að vinna eitt lag með Mike Hedges, frægum pródúser, sem hefur unnið mikið með The Cure, Dido og U2. Hann pródúser­aði nokkur lög á plöt­unni minni Dialouge sem kom út árið 2003 hjá útgáfuris­anum BMG, þar sem ég söng dúett með Wayne Murray. Leiðir okkar Mike lágu svo aftur saman núna í COVID-19 far­aldr­inum. Hann varð svo snort­inn þegar hann sá hvað ég var dug­leg að deila á sam­fé­lags­miðlum myndum sem fanga hvers­dags­leg augna­blik úr lífi mínu sem móður að hann hafði sam­band og vildi semja nýja tón­list með mér og nota það sem útgangs­punkt, sem mér finnst frá­bært,“ segir Þórunn og brosir.

Og þar með er ekki öll sagan sögð, því fleiri erlendir laga­höf­undar og pródúserar hafa sóst eftir sam­starfi við Þórunni. Með ann­ars vegna þess hversu auð­velt hún virð­ist eiga með að semja gríp­andi lag­línur. „Eflaust er þetta hæfi­leiki sem ég hef erft frá pabba mínum,“ segir hún glað­lega, en fyrir þá sem ekki vita er Þórunn Antonía dóttir laga­höf­und­ar­ins lands­þekkta Magnúsar Þórs Sig­munds­sonar sem eftir liggja mörg af ást­sæl­ustu lögum þjóð­ar­innar.

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Erna Kristín Stef­áns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu