Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Neitaði að viðurkenna að ég væri ekki ósigrandi“

„Neitaði að viðurkenna að ég væri ekki ósigrandi“

Sig­ur­borg Íris Hólm­geirs­dóttir hár­greiðslu­meist­ari greind­ist með brjóstakrabba­mein árið 2009 en neit­aði að líta á sig sem sjúk­ling, end­aði með því að yfir­keyra sig í vinnu og neyð­ast til að játa að hún væri ekki ósigr­andi. Syk­ur­sýki sem hún greind­ist með um tví­tugt versn­aði til muna við krabba­meins­með­ferð­ina en Sig­ur­borg hefur haldið henni í skefjum með réttu matar­æði og minnkað það magn af insúl­íni sem hún þarf að sprauta sig með dag­lega. Hún segir glímuna við veik­indin hafa kennt sér að njóta hvers dags og ganga ekki að neinu sem gefnu.

Ég byrja á því að biðja Sig­ur­borgu, eða Sillu eins og hún er alltaf kölluð, að segja mér frá sjálfri sér og það kemur dálítið á hana.

„Ég er bara venju­leg kona og hár­greiðslu­meist­ari sem býr í Hafn­ar­firði með eig­in­manni og annarri af tveimur upp­komnum dætrum. Mér þykir óskap­lega gaman í vinn­unni og er fegin að vera á lífi,“ segir hún eftir and­ar­taks­hik.

Ég gríp síð­ustu full­yrð­ing­una á lofti og bið Sillu að segja mér frá þeirri reynslu að grein­ast með krabba­mein rúm­lega fer­tug og ganga í gegnum krabba­meins­með­ferð.

„Ég greind­ist með brjóstakrabba­mein árið 2009,“ útskýrir hún. „Ekki þetta dæmi­gerða horm­óna­tengda afbrigði heldur aðeins grimmara afbrigði. Ég spáði reyndar ekk­ert mikið í það, reyndi bara að lifa þetta af. Það var tek­inn hluti af öðru brjóst­inu, þannig að ég er með eitt og hálft brjóst, en ég var reyndar mjög heppin hvað þetta upp­götv­að­ist snemma, það var fyrir til­viljun. Ég átti að fara í aðgerð til að láta taka ein­hvers konar vöðva­hnút sem var svo djúpt á í öðru brjóst­inu á mér að það þurfti að skurð­merkja hann svo ég fór til geisla­læknis sem merkti leið­ina inn fyrir skurð­lækn­inn og rakst þá á annan hnút sem ekki hafði komið fram á myndum en reynd­ist vera krabba­mein. Ég segi stundum að ég hafi unnið í Vík­ingalóttó­inu að það skyldi finn­ast.“

Leitaði allra ráða við sykursýkinni

Krabba­meins­með­ferð­inni lauk 2010 og Silla hefur ekki greinst með krabba­mein aftur. Hefð­bundnu eft­ir­liti lýkur fimm árum frá grein­ingu og hún seg­ist krossa fing­urna og vona að hún sé sloppin. Brjóstakrabba­mein er ekki algengt í fjöl­skyldu hennar og hún seg­ist ekki vera með BRCA-genið þannig að systur hennar og dætur hafi ekki þurft að hafa áhyggjur.

„Fólk segir stundum við mig að ég sé svo dug­leg, en það er ekki eins og það sé eitt­hvert val. Ann­að­hvort sest maður niður og gefst upp eða reynir að berj­ast áfram. Það er eina valið sem maður hefur.“

Krabba­meinið er þó ekki eini sjúk­dóm­ur­inn sem Silla hefur þurft að takast á við. Rúmlega tví­tug greind­ist hún með syk­ur­sýki sem hún segir eig­in­lega hafa verið erf­ið­ara að fást við en krabba­meinið. Hún hefur þó fundið stóran mun til batn­aðar eftir að hún breytti matar­æð­inu.

„Ég held ég hafi verið að leita að hinum heilaga kaleik til að minnka áhrif syk­ur­sýk­innar í þrjá­tíu ár,“ segir hún og hlær. „Fyrst gekk mér vel að hafa hemil á henni með matar­æði en svo dugði það ekki og ég var alltaf að leita að ein­hverju sem gæti hjálpað. Krabba­meins­með­ferðin hafði mjög slæm áhrif á syk­ur­sýk­ina og mér versn­aði mikið þannig að ég var örvænt­ing­ar­full að reyna að finna ein­hverja lausn. Fyrir nokkrum árum sá ég síðan þátt úr ser­í­unni Trust me I’m a doctor og þar var verið að fjalla um 5:2 matar­æðið og ég hugs­aði með mér að það sak­aði kannski ekki að prófa það, ég væri hvort eð er búin að prófa allt annað. Mér hafði gengið mjög illa að halda syk­ur­sýk­inni í skefjum, þurfti að sprauta mig mjög mikið með insúl­íni. Eftir að ég byrj­aði á 5:2 matar­æð­inu lag­að­ist það heil­mikið og ég gat farið að draga úr því að sprauta mig. Það eru um það bil tvö og hálft til þrjú ár síðan ég byrj­aði á 5:2 og svo er svona ár síðan að ég fór líka aðeins að draga úr neyslu kol­vetna, þótt ég sé nú ekki á ketó, og alltaf með það bak við eyrað hversu mikið af kol­vetnum sé í matnum sem ég borða. Það er mjög erfitt að létt­ast þegar maður er alltaf að dæla í sig svona miklu insúl­íni, þannig að um leið og ég gat farið að nota minna af því fór ég að létt­ast aðeins. Ég er samt ekk­ert orðin mjó, ég er enn þá stór mann­eskja en það munar um hvert kíló sem fer og ég sakna ekk­ert þess­ara tíu kílóa sem er búið að taka mig nærri þrjú ár að skafa af mér. Ég er afskap­lega þakk­lát fyrir að hafa fundið eitt­hvað sem virkar því það munar ansi miklu hvort maður þarf að sprauta sig með sex­tíu til sjö­tíu ein­ingum af insúl­íni oft á dag eða sprauta sig með einni sprautu með sex til átta ein­ingum á dag. Ég hef eign­ast alveg nýtt líf eftir að ég tók upp þetta matar­æði og er afskap­lega sæl og glöð í dag.“

Farin að berja barnapíurnar með hárbursta áður en hún gat staðið

Silla á og rekur hár­greiðslu­stof­una Hárbeitt í Hafn­ar­firði ásamt eig­in­manni sínum, Árna Eiríki Berg­steins­syni, hvernig stóð á því að hún valdi það starf?

„Ég ætl­aði alltaf að verða hár­greiðslu­kona,“ segir hún, dálítið hissa á spurn­ing­unni. „Mamma mín er hár­greiðslu­kona og það kom aldrei neitt annað til greina hjá mér. Ég held ég hafi verið byrjuð að berja barnapí­urnar með hár­burstum áður en ég gat staðið. Ég hef aldrei haft áhuga á neinu öðru starfi og finnst ég heppin að fá að vinna við það sem mér finnst ógeðs­lega skemmti­legt.“

Meðal þess sem Silla hefur feng­ist við í hár­greiðsl­unni er starf við ýmsar kvik­myndir og sjón­varps­þætti, hvernig kom það til?

„Ég hef verið und­ir­verk­taki fyrir leik­gerva­hönn­uði,“ segir hún hóg­vær. „Ég hef unnið mikið fyrir Kristínu Júllu Krist­jáns­dóttur og Áslaugu Dröfn Sig­urð­ar­dóttur sem eru algjörar kanónur í þeim bransa í dag, ótrú­lega flottar konur. Bíó­brans­inn á Íslandi hefur breyst mjög mikið og það er ekki hægt að vera að klippa eða lita á settum í dag, fram­leiðslan hefur stækkað svo mikið. Þær hafa stundum ráðið mig til að sjá um lit­anir, eða hár­leng­ingar eða eitt­hvað slíkt. Ég fór í raun­inni ekki að sinna neinu svo­leiðis fyrr en ég fór – alveg óvart – að vinna í Borg­ar­leik­hús­inu þar sem ég vann í leik­gervadeild­inni í tæp fimmtán ár, frá 2000 til 2014 með fram vinn­unni á stof­unni. Það var hrika­lega skemmti­legur tími. Eftir að ég hætti þar opn­uð­ust þessar dyr inn í bíó­brans­ann og mér fannst afskap­lega gaman að fá að taka þátt í honum. Kristín og Áslaug eru auð­vitað leik­gerva­hönn­uð­irnir, ég bara fæ að vera með á kant­inum.“

Meðal þeirra bíó­mynda og þátta sem Silla hefur unnið við eru Brot, Lof mér að falla, Skjálfti, báðar ser­í­urnar af Ófærð og fleiri. Hún segir það hafa komið á óvart hvað var mikið að ger­ast í kvik­mynda­heim­inum á Íslandi og vinnan við þær sé óskap­lega skemmti­leg.

Fylgdi nema í atvinnuviðtal og var ráðin á staðnum

Ég hegg eftir því að hún seg­ist hafa farið að vinna í Borg­ar­leik­hús­inu „alveg óvart“ hvað á hún við með því?

„Það er mjög fyndin saga,“ segir Silla og brosir. „Þannig var að leik­gervadeild Borg­ar­leik­húss­ins vant­aði ein­hvern sem kunni að gera bylgjur í hár og höfðu haft sam­band við Iðn­skól­ann í Reykja­vík sem hafði bent þeim á nem­ann minn. Nema hvað hún var svo­lítið umkomu­lítil og þorði ekki að fara ein upp í leik­hús og ég er nátt­úr­lega svoddan ungamamma að ég dreif mig bara með henni. Við mættum í Borg­ar­leik­húsið og komumst að því að þar bráð­vant­aði fólk á stund­inni. Neminn minn kláraði við­talið og hún var ráðin en svo spurði Eva Sólan, sem var að leysa af sem yfir­maður deild­ar­innar, mig hvort ég gæti ekki gert eitt­hvað? Það end­aði með því að við byrj­uðum báðar að vinna sama kvöld og unnum þarna báðar í mörg, mörg ár. Þannig að það var svo sann­ar­lega algjör­lega óvart að ég lenti þar.“

„Ég er samt ekk­ert orðin mjó, ég er enn þá stór mann­eskja en það munar um hvert kíló sem fer og ég sakna ekk­ert þess­ara tíu kílóa sem er búið að taka mig nærri þrjú ár að skafa af mér.“

Neitaði að horfast í augu við að vera veik

Silla segir það ekki hafa komið til af góðu að hún hætti í Borg­ar­leik­hús­inu, hún hafi neyðst til að hætta eftir að hún hafi rek­ist á vegg vegna ofþreytu.

„Ég bara vann yfir mig, eins og fólk gerir,“ segir hún, eins og ekk­ert sé eðli­legra. „Það byrj­aði þegar ég var í krabba­meins­með­ferð­inni. Ég vildi ekki vera veik og neit­aði algjör­lega að horfast í augu við það. Ég ætl­aði ekki láta þetta krabba­mein sigra mig. En það kom að því að það gekk ekki lengur. Ég þurfti bara að við­ur­kenna að ég var ekki ósigr­andi og það var mjög erfitt að sætta sig við að þurfa að slá af vinnu. Ég reyndi líka oft að hætta að vera með syk­ur­sýki þegar ég var yngri, með skelfi­legum afleið­ingum. Þá hætti ég að taka lyfin mín og nennti ekk­ert að taka sjúk­dóm­inn með í reikn­ing­inn. Ef ég gæti keypt nýjan kropp held ég að ég myndi borga hvað sem væri. Ég reyni allt til að halda kroppnum í formi, drusl­ast í rækt­ina og er í Pilates og geri alls kyns hluti til að reyna að halda mér í fimm­tíu pró­sent vinnu. Fólk segir stundum við mig að ég sé svo dug­leg, en það er ekki eins og það sé eitt­hvert val. Ann­að­hvort sest maður niður og gefst upp eða reynir að berj­ast áfram. Það er eina valið sem maður hefur. Ég er svo heppin að ég á mitt eigið fyr­ir­tæki þannig að ég get leyft mér að kaupa aðstoð­ar­fólk sem ég gæti auð­vitað ekki ef ég væri að vinna hjá öðrum. Ég gæti kannski unnið eitt­hvað aðeins meira ef ég væri að vinna við eitt­hvað annað en að fá að vinna við það sem maður elskar er ómet­an­legt. Þótt starf hár­greiðslu­kon­unnar sé oft erfitt, maður er stand­andi eða á hlaupum allan dag­inn, þá væri alveg hræði­legt að vera að vinna við eitt­hvað sem maður elskar ekki. Þegar ég sé fólk vinna á skrif­stofu fæ ég bara hjart­slátt­ar­trufl­anir. Mig langar ekki að sitja á rass­inum allan dag­inn, þótt ég taki ofan fyrir því fólki sem getur það. Mitt starf er líka svo lif­andi, maður hittir svo margt fólk og suma hefur maður verið með lengi. Ég segi stundum að þetta sé svona eins og fram­halds­saga mán­að­ar­ins, að fá allar nýj­ustu upp­lýs­ingar um það hvað kúnn­arnir hafa verið að gera síðan síð­ast. Maður heyrir alls konar sögur og það er eitt af því sem gerir starfið svona skemmti­legt og fjöl­breytt.“

Ekki enn búin að slátra hvort öðru

Árni, eig­in­maður Sillu, vinnur líka á stof­unni, er ekk­ert erfitt að vera bæði að vinna saman og búa saman?

„Við erum búin að vinna saman í þrjá­tíu ár og erum ekki enn búin að slátra hvort öðru,“ segir hún og skellir upp úr. „Það fyndna er að margar konur tala um hvað það hljóti að vera æðis­legt að vinna með mann­inum sínum en karl­arnir segja mann­inum mínum að þetta gætu þeir sko aldrei. Það er greini­lega mis­jöfn sýn á þetta hjá kynj­unum en þetta hefur hentað okkur mjög vel og gengið alveg upp. Árni er frá­bær og ég kæm­ist ekk­ert yfir að gera það sem ég er að gera án hans. Hann sér um allt, ég þarf aldrei að gera neitt heima heima hjá mér. Hann er minn besti vinur og helsti stuðn­ings­að­ili og við erum ægi­lega góðir félagar. Það má heldur ekki gleyma því að við svona rekstur eins og við erum í skiptir mestu máli að liðs­heildin sé góð og maður eigi gott bak­land í vinn­unni. Við höfum verið ein­stak­lega heppin með okkar starfs­fólk í gegnum árin.“

Þarf að kunna að bregðast við fólki í sorg

Stundum er sagt að hár­greiðslu­fólk þurfi að vera sál­fræð­ingar í leið­inni, fólk segi því ýmis­legt sem það myndi aldrei segja neinum öðrum, er það þín reynsla?

„Já,“ segir Silla án þess að hika. „Ég sá ein­hvern tím­ann nið­ur­stöður breskrar rann­sóknar þar sem kom í ljós að þegar sál­fræð­ingar spurðu þá sem leit­uðu til þeirra hvers vegna þeir hefðu komið svör­uðu mjög margir því til að hár­greiðslu­konan þeirra hefði sent þá vegna þess að hún hefði ekki getað gert meira fyrir þá. Og vissu­lega kemur fólk ekki bara til okkar í gleði, það gleym­ist mjög oft að fólk kemur líka til okkar í sorg. Þess vegna hef ég oft hamrað á því að krakkar eigi ekki að fara of ungir í þetta nám því fólk kemur líka til okkar þegar það þarf að jarða maka sinn, eða pabba sinn sem fyr­ir­fór sér eða son sem hengdi sig og svo fram­vegis. Maður verður að vera til­bú­inn að bregð­ast rétt við í þeim aðstæðum. Það lenda allir í miklum áföllum í líf­inu og fólk kemur oft til okkar eftir stór áföll en það er ekki mikið kennt um það í nám­inu eða í öðrum skólum ef út í það er farið. Mér finnst að það þurfi að gera miklu meira af því. Þetta gildir ekki bara um okkar starfs­stétt heldur margar aðrar líka. Fólk kemur í alls konar ástandi og maður þarf að taka á honum stóra sínum til að bregð­ast rétt við, en ég vildi samt ekki skipta um starf við neinn.“

„Ég vildi ekki vera veik og neit­aði algjör­lega að horfast í augu við það. Ég ætl­aði ekki láta þetta krabba­mein sigra mig. En það kom að því að það gekk lengur. Ég þurfti bara að við­ur­kenna að ég var ekki ósigr­andi.“

Leit­að­irðu þér ein­hverrar and­legrar aðstoðar þegar þú rakst á vegg­inn, eins og þú kallar það?

„Já, ég fékk aðstoð í gegnum Virk og það hjálp­aði mér mjög mikið,“ segir Silla. „Ég fór á núvit­und­ar­nám­skeið, sem mér fannst dálítið erfitt af því að ég er afskap­lega óþol­in­móð mann­eskja, en ég hafði mjög gott af því. Ég fór líka í gegnum með­ferð hjá verkjateym­inu á Reykja­lundi og lærði að lifa með verkj­unum og því sem sjúk­dómnum fylgir. Hjá Virk er unnið mjög gott starf og leitað per­sónu­legra lausna fyrir hvern og einn, ekki allir settir í sama prógram­mið. Ég átti auð­vitað óskap­lega erfitt með að biðja um hjálp og ég ímynda mér að öllum finn­ist hrika­lega erfitt að vera í þeirri stöðu að þurfa að við­ur­kenna að þeir þurfi aðstoð. En kerfið sem greip mig á sínum tíma var gott og það varð til þess að ég get stundað mína fimm­tíu pró­sent vinnu. Ég lærði líka að ég þarf að vera mjög passa­söm með það að ég get ekki leyft mér að vinna meira. Ef ég geri það kostar það mig mikið og ég ætla ekki að fara á þann stað að geta ekki unnið. Ég ætla að klippa þangað til ég drepst. Ég skal!“

Slysaðist inn í handverk

Er hár­greiðslan sem sagt eina áhuga­málið? „Nei, reyndar ekki,“ segir Silla og hlær aftur. „Ég slys­að­ist líka út í smá­vegis hand­verk með bestu vin­konu minni og einum af vinum manns­ins míns sem er í vík­inga­fé­lag­inu Rimmugýgi. Við erum með vinnu­stofu í Íshúsinu í Hafn­ar­firði þar sem er frá­bært sam­fé­lag alls konar lista- og hand­verks­fólks. Þar höfum við hannað og unnið vík­inga­línu sem við erum að selja í túrista­búðir auk þess að vera með prjóna­merki og sjalanælur og háls­men. Við erum með svona pínu­lít­inn dóta­kassa þarna, ef svo má segja. Það má segja að ég hafi hannað vík­inga­lín­una, en vinur okkar hand­sker allar kúl­urnar og Magnea vin­kona mín setur allt saman. Sumt af mun­unum sem við gerum er hand­málað og ég sé um það. Það er svona frí­stunda­iðjan mín, sem ég hef líka mjög gaman af. Það skiptir svo miklu máli að hafa gaman af líf­inu. Við eigum bara eitt líf og það dugar ekki að lifa því eins og við eigum mörg til vara.“

„Ég segi stundum að þetta sé svona eins og fram­halds­saga mán­að­ar­ins, að fá allar nýj­ustu upp­lýs­ingar um það hvað kúnn­arnir hafa verið að gera síðan síð­ast. Maður heyrir alls konar sögur og það er eitt af því sem gerir starfið svona skemmti­legt og fjöl­breytt.“

Hlakkar til hvers einasta dags

Spurð hvort krabba­meinið hafi á ein­hvern hátt breytt því hvernig hún horfir á lífið segir Silla að vissu­lega hafi það gert það.

„Já, maður verður nátt­úr­lega dauð­legur þegar maður fær svona sjúk­dóm,“ segir hún. „Þegar maður er hraustur er maður kannski ekki alltaf með hug­ann við það að ein­hverju geti lokið þannig að þegar maður áttar sig á dauð­leika sínum fer maður að verða spar­sam­ari á þann tíma sem maður á og for­gangs­raða betur hvernig maður vill verja þeim tíma sem eftir er. Ég veit ekki hvort hægt er að segja að maður verði sjálfselsk­ari á tíma sinn en kannski finnst ein­hverjum það. Ég er þyngri sjálf á vog­ar­skál­inni eftir þessa reynslu, ég set mig pínu­lítið framar í röð­ina en ég gerði áður. Er ekki alltaf sagt að ef maður hugsi jákvætt þá komi til manns jákvæðir hlutir og mér finnst ég hafa verið heppin með það hversu skemmti­legir hlutir hafa komið til mín eftir að ég lenti í þessu. Ég hef átt mjög góðan tíma síðan þetta gerð­ist og er bara sjúk­lega glöð með hvert ein­asta ár sem ég fæ. Það fá ekki allir að verða gamlir og maður þarf að muna það að það er ekk­ert sjálf­sagt. Málið er að maður ræður því sjálfur hvernig maður horfir á hlut­ina og ég valdi að vera þakk­lát í stað­inn fyrir að horfa á slæmu hlið­arnar. Ég er stundum svo­lítið mikil Pollý­anna. Brjálað veður í byrjun mars er til dæmis bara páska­hret í mínum augum, það er alveg að koma vor. Það kemur nýr dagur á morgun og þar með ný tæki­færi og ef þér gekk til dæmis illa í megr­un­inni í dag er ekk­ert allt ónýtt, þú heldur bara áfram aftur á morgun. Ég hlakka til hvers ein­asta dags og þakka enda­laust fyrir að vera á lífi.“

Förðun: Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur YSL á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu