Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Atmos Cloud – öflugt skýjaþjónustufyrirtæki hefur starfsemi

Atmos Cloud – öflugt skýjaþjónustufyrirtæki hefur starfsemi

Atmos Cloud er nýtt fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í hönnun, inn­leið­ingu og rekstri á Microsoft skýja­lausnum. Starfs­menn Atmos Cloud hafa víð­tæka reynslu í rekstri skýja­lausna (cloud-mana­ged services), en einnig í almennri rekstr­ar­þjón­ustu, sjálf­virkni­væð­ingu og verk­efna­stjórnun og er sam­an­lögð reynsla félags­ins yfir 60 ár í upp­lýs­inga­tækni, eins og kemur fram í til­kynn­ingu frá Atmos Cloud.

Fram­kvæmda­stjóri Atmos Cloud er Viðar Þor­láks­son, en Viðar hefur síð­ustu miss­eri starfað sem sjálf­stæður stjórn­enda­ráð­gjafi og sjórn­andi hjá Arion banka. „Við leggjum mikið upp úr því að þekkja og skilja við­skipta­vini okkar, við trúum því að það sé for­senda þess að geta veitt fram­úr­skar­andi og áreið­an­lega þjón­ustu til lengri tíma. Tækni­legar og við­skipta­legar ákvarð­anir byggj­ast því á for­sendum og þörfum við­skipta­vina okkar og þannig viljum við inn­leiða og reka skýja­veg­ferð hvers og eins fyr­ir­tækis,” segir Viðar.

Breyttar aðstæður ýta okkur í nýtt og betra vinnuumhverfi til framtiðar

COVID-19 hefur breytt umhverfi fyr­ir­tækja gríð­ar­lega og hefur ýtt mörgum fyr­ir­tækjum í að hugsa vinnu­um­hverfi sitt upp á nýtt. Margir vinna nú oftar heiman frá sér eða í dreifð­ara vinnu­um­hverfi. Microsoft Teams er eitt vin­sælasta vinnu­um­hverfi fyr­ir­tækja í dag en það hefur hjálpað fyr­ir­tækjum gríð­ar­lega við þessar stökk­breyttu aðstæður sem að mörgu leyti eru komnar til að vera. Með Microsoft Teams sam­ein­ast fyr­ir­tækið á einum stað, öll sam­skipti, mynd­fundir og önnur gögn eru þannig aðgengi­leg hvenær og hvar sem er. Microsoft Teams hefur vaxið gríð­ar­lega í vin­sældum síð­ustu miss­eri og er nú orðið mest vax­andi for­rit í sögu Microsoft með yfir 75 milljón not­endur á dag. Atmos Cloud eru sér­fræð­ingar á þessu sviði og bjóða upp á frí fjar­nám­skeið í Microsoft Teams til að hjálpa fyr­ir­tækjum við að taka fyrsta skrefið og aðlag­ast nýju vinnu­um­hverfi.
Skýja­lausnir og skal­an­leiki þeirra standa nú mun framar en gömlu aðferð­irnar til að tengj­ast vinnu­um­hverf­inu og eru að auku oftar en ekki bæði hag­stæð­ari og örugg­ari.

Öryggi er kúltúr

Atmos Cloud leggur mikla áherslu á öryggi og segja starfs­menn að mik­il­vægt sé að allar tölvur og bún­aður sem hafa aðgang að vinnu­neti stand­ist allar örygg­is­kröfur, svo sem stýri­kerfis- og hug­bún­að­ar­við­bætur. Örygg­is­mál fyr­ir­tækja er kúltúr og er mik­il­vægt að allir innan fyr­ir­tæk­is­ins séu hluti af þeirri veg­ferð. Það tekur tugi ára að byggja upp gott orð­spor en bara örfáar mín­útur að brjóta það niður ef net­inn­brot á sér stað.

Því er oft fleygt fram að “gögn séu hin nýja olía” og að verð­mæti fyr­ir­tækja felist að miklu leyti í gögnum sem það býr yfir. Atmos Cloud þykir það vera sjálf­sagður hlutur fyrir fyr­ir­tæki að vera með aðgengi að öllum þeirra gögnum hvar og hvenær sem er. Gögn sem einu sinni var ein­göngu hægt að nálg­ast á skrif­stof­unni eru nú aðgengi­leg í gegnum hin ýmsu snjall­tæki, svo sem spjald­tölvur og far­síma. Því má segja að við séum ávallt með „skrif­stof­una í vas­anum“ og það krefst þess að fyr­ir­tæki þurfa að huga vel að öryggi fyrir gögnin sín. Með Microsoft skýja­lausnum er vinnu­um­hverfið þitt varið gegn skað­legum ógnum og gagna­leka ef vinnu­brögð við upp­setn­ingu eru eftir for­skiftum Microsoft.

Meiri sjálfvirkni

Síðustu ár hefur staf­ræn umbreyt­ing og sjálf­virkni ekki ein­göngu orðið vin­sælli heldur líka bráð nauð­syn­leg fyrir fyr­ir­tæki svo þau missi ekki af lest­inni og gleym­ist. Atmos Cloud eru sér­fræð­ingar í sjálf­virkni með skýja­lausnum og taka undir að þarna sé mikil eft­ir­spurn og segja mögu­leik­ana nán­ast enda­lausa, allt frá sjáf­virkum ferlum sem leiðir af sér sjálfs­af­greiðslu við­skipta­vina yfir í sjálf­virka ákvarða­töku við öryggisógnir sem dæmi.

Hverjir eru Atmos Cloud?

Grétar Gíslason, tækni­stjóri Atmos Cloud og einn af reynd­ari Microsoft sér­fræð­ingum lands­ins. Grétar hefur 14 ára reynslu í upp­lýs­inga­tækni og hefur á þeim tíma hlaðið á sig reynslu og miklum fjölda Microsoft gráða. Grétar hefur lengst af unnið sem Microsoft sér­fræð­ingur hjá Anza, Símanum og Sensa.

Ragnar Már Vil­hjálms­son er sölu­stjóri Atmos Cloud og hefur starfað í fag­inu í 23 ár, lengst af sem tækni­legur sér­fræð­ingur er við­kemur Microsoft lausnum og leyf­is­málum. Síðustu fimm ár hefur Ragnar starfað hjá Sensa sem við­skipta­stjóri og ráð­gjafi, en þar áður hjá Basis, Íslands­banka og Álit/Anza. Ragnar er með MBA frá Háskól­anum í Reykja­vík.

Viðar Þor­láks­son, fram­kvæmda­stjóri Atmos Cloud byrj­aði í tölvu­geir­anum árið 1996. Seinna hefur Viðar unnið að fjölda verk­efna, meðal ann­ars fyrir Icelandair, Eimskip, og Lands­bank­ann. Viðar stofn­aði og rak tölvu­þjón­ustu­fyr­ir­tæki í London á Englandi árið 2004 sem þjón­u­staði mörg stærstu fjár­mála­fyr­ir­tæki Íslands í Bret­landi ásamt öðrum fyr­ir­tækjum. Síðustu ár hefur Viðar stýrt þróun Arion banka apps­ins og net­banka bank­ans ásamt því að starfa sem sjálf­stæður ráð­gjafi.
Viðar er með BSc í fjár­mála­verk­fræði, BSc í tölv­un­ar­fræði og MBA frá Háskól­anum í Reykja­vík.

Gartner Inc, gerir ráð fyrir að mark­aður fyrir skýja­lausnir muni aukast um 17% á árinu, frá $227,8 millj­örðum árið 2019 í $266,4 millj­arða árið 2020. Árið 2022 gerir Gartner ráð fyrir að talan verði um $354,6 millj­arðar eða um 55% aukn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag