Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hugrekki er sá sem stendur á sviðinu“

Ragga Nagli er klínískur heilsusál­fræð­ingur og einka­þjálf­ari. Á Facebook heldur hún úti vin­sælli síðu þar sem hún birtir reglu­lega pistla um hreyf­ingu, matar­æði og fleira.

„Hugrekki er sá sem stendur á sviðinu“
Ragga nagli Mynd / Rut Sig­urð­ar­dóttir

Í nýjasta pistil sínum skrifar Ragga um opin­berar per­sónur eða áhrifa­valda á net­inu.

Þegar þú ert opin­ber per­sóna eða áhrifa­valdur á net­inu með blogg­síðu, hlað­varp, sam­fé­lags­miðil og tölvu­póst­lista þá ertu stöðugt að ber­skjalda þig fyrir gagn­rýni.

Að skrifa færslu á Fésbók og ýta á birt­ing­ar­hnapp­inn með von í hjarta um að inni­haldið verði ein­hverjum til gagns í heil­brigð­ara sam­bandi við sjálfs­mynd, mat eða æfingar. Fólkið sem les í hljóði á skrif­stof­unni, á bið­stof­unni eða á kló­sett­set­unni kinki kolli og brosi út í annað í stað­inn fyrir að rúlla augum og skrolla áfram.

Að birta upp­skrift á bloggi og krossa fingur að svangir magar, sæl­kerar og lekk­er­istar fái inn­blástur í girni­leik­ann, í stað­inn fyrir krepptar tær að fussa og sveia yfir asna­legum inni­halds­efnum eða sponsor­uðum hlekkjum.

Að setja inn mynd­band úr rækt­inni á instagram story með hjart­slátt yfir gagn­rýn­is­röddum um lík­am­legt útlit, tækni, þyngdir eða ákefð en von­ast eftir þökkum fyrir hug­myndir og inn­blástur.

Að setja mynd á instagram­mið með von um að hún fái örfá hjörtu sem þýða sam­þykki um að inni­haldið hafi veitt.

Að skrifa pistil á Heilsu­vísi til að fræða um sál­fræði, kvíða, streitu, matar­æði, æfingar, eða annað heilsu­stöff og setj­ast svo aftur á bak í sófann á meðan Siggi og Gunna skruma í gegn og þyki fróð­legt en ekki hjá­kát­legt hjóm úr stelpu­skotti.

Að búa til þátt á hlað­varpi um alls­konar heilsu­kjaftæði með sér­fræð­ingum á sínu sviði og senda svo út í kós­mósið og finna hnút­inn stækka í mallakút. Fólk að hlusta í ein­rúmi í rækt­inni, í bílnum, í göngut­úrnum og þú hefur ekki hug­mynd um hvaða skoðun það myndar sér á þessu blaðri þínu.

Það er auð­velt að sitja í salnum og gagn­rýna.
Það er erfitt að vera skap­ari og setja efni út í alheim­inn.

Það er hug­rekki að ber­skjalda sig á öldum net­vakans með sögum úr per­sónu­lega líf­inu, að deila ströggl­inu, að segja frá ves­eni og vand­ræðum.

Það er hug­rekki að búa til efni sem veitir fróð­leik og fræðslu og vona að það verði til gagns.

Þess vegna hætta margir við og stroka út það sem var skrifað.
Ýta aldrei á send takk­ann.
Ýta aldrei á publ­ish.
Setja aldrei upp hlað­varp.
Stofna ekki heima­síðu.
Hafa instagram­mið áfram prí­vat.

Ragga nagli Mynd / Facebook

En hug­rakkasta fólkið eru þeir sem halda áfram og er drull… um það sem öðrum finnst.

Því við getum hvort sem er ekki stjórnað því.

Hugrekki er sá sem stendur á svið­inu.
Hugrekki er að láta slag standa þrátt fyrir hræðslu.
Þrátt fyrir stóra­dóm almenn­ings.

Að hafa gjall­ar­horn í formi sam­fé­lags­mið­ils sem nær til hund­ruða eða þús­unda eru for­rétt­indi.
En það felur líka í sér risa­stóra ber­skjöldun fyrir gagn­rýni, skoð­unum og sleggju­dómum.

Það verða alltaf ein­hverjir sem krulla efri vör, rúlla aug­unum og hnussa yfir því sem þú setur frá þér.

Ekki afsaka þig. Ekki bakka út. Ekki hætta. Ekki taka það sem sann­leik. Ekki pakka í vörn.

Það eru miklu fleiri sem eru þakk­látir, og kunna að meta það sem þú gerir.
Haltu áfram fyrir þá.

Vertu drull… um álit hinna.

Facebooksíða Röggu nagla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag