Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Að alast upp við alkóhólisma brýtur sjálfsmyndina

Að alast upp við alkóhólisma brýtur sjálfsmyndina

Kolbrún Bald­urs­dóttir, borg­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, hefur lengi barist fyrir því að börn alkó­hólista fái sál­fræði­þjón­ustu á vegum borg­ar­innar, en sú til­laga hefur ekki hlotið hljóm­grunn. Kolbrúnu er þetta hjart­ans mál enda þekkir hún sjálf afleið­ingar þess að alast upp við alkó­hól­isma á sjálfs­mynd og sjálfs­mat barna. Hún seg­ist hafa verið komin á full­orð­insár þegar hún loks fór að trúa því að hún gæti eitt­hvað og væri ein­hvers virði.

Kolbrún Bald­urs­dóttir Mynd / Unnur Magna

„Ég er yngst fjög­urra systk­ina og þegar ég fædd­ist bjó fjöl­skyldan á Víðimel hjá móð­ur­ömmu í agn­ar­smárri þak­íbúð,“ segir Kolbrún beðin um að gera grein fyrir bak­grunni hennar. „Pabbi var þá byrj­aður að byggja í Sól­heimunum, var í góðri vinnu á Kefla­vík­ur­flug­velli og for­eldrar mínir voru fólk sem átti mikla mögu­leika á að koma sér vel fyrir. Á yfir­borð­inu var allt slétt og fellt og fal­legt, fjögur börn og for­eldrar og föð­ur­amma mín sem bjó hjá okkur síðar í Sól­heimunum, virki­lega fal­leg mynd utan frá séð. En alkó­hól­ismi pabba hvafði verið að þró­ast í tölu­verðan tíma um það leyti sem ég er að fæð­ast og smátt og smátt fór þessi fal­lega mynd að molna og það end­aði með því að pabbi missti allt út úr hönd­unum og for­eldrar mínir skildu þegar ég var sex ára. Þá vorum við búin að vera að þvæl­ast milli staða, búa heima hjá móð­ur­ömmu minni í annað sinn í einni kös. Áfengið var búið að taka allt frá okkur.“

„Síðasta minn­ing mín um pabba heima er að hann kom heim fullur og reiður, sem við höfðum öll kviðið fyrir meira að segja ég var hrædd þótt ég væri ekki eldri en þetta, þá fann maður alltaf þegar hættan steðj­aði að.“

Kolbrún segir föður sinn hafa verið góðan mann, hjálp­saman, ljúfan og rólegan, en hann hafi oft verið ofbeld­is­fullur þegar hann drakk og það hafi hann tekið út aðal­lega á móður hennar.

Kolbrún Bald­urs­dóttir Mynd / Unnur Magna

„Ég vissi alltaf að pabba þótti mjög vænt um okkur systk­inin en sjúk­dóm­ur­inn alkó­hól­ismi var bara búinn að taka hann. Síðasta minn­ing mín um pabba heima er að hann kom heim fullur og reiður, sem við höfðum öll kviðið fyrir meira að segja ég var hrædd þótt ég væri ekki eldri en þetta, þá fann maður alltaf þegar hættan steðj­aði að,“ segir Kolbrún. „Í þetta sinn réðst hann á mömmu og elsti bróðir minn, sem þá var fjórtán ára, sóp­aði okkur systr­unum inn í her­bergi en ég kíkti fram því ég heyrði öskur og læti. Þá var bróðir minn að reyna að hjálpa mömmu og ég sá hann koma út úr sínu her­bergi sínu og glíma við pabba til að reyna að hjálpa mömmu. Á end­anum var pabbi bor­inn út í lög­reglu­bíl. Eftir þetta hafði mamma með aðstoð bróður míns loks kjark til þess að skilja við hann. Við fluttum í eitt ár á Bar­óns­stíg en síðan tókst mömmu að kaupa þak­íbúð­ina í hinum enda blokk­ar­innar þar sem móð­ur­amma mín bjó.“

„Ég var bara algjör­lega búin að fá upp í kok af fullum mönnum. Þetta var góður maður en með þennan erf­iða sjúk­dóm. Þegar hann var í lagi var hann ynd­is­legur, studdi mig og hvatti til dáða.“

Algjörlega búin að fá upp í kok af fyllibyttum

Kolbrún var sjö ára þegar hér var komið sögu og á Víði­melnum bjó fjöl­skyldan þangað til hún var tólf ára. Móðir hennar var þá ein með þau systk­inin og Kolbrún segir þessi ár hafa verið þau bestu í upp­vext­inum, þrátt fyrir allt.

„Pabbi sem var einka­sonur, bjó hjá mömmu sinni á Ásvalla­götu. Þessi ár voru örugg­ari,“ segir hún. „Ég vissi það þegar ég fór að sofa að það yrðu engin læti um nótt­ina. En ég var líka mikið hjá föð­ur­ömmu minni og pabbi var auð­vitað oft að koma þangað fullur þannig að hræðslan og ógnin voru alltaf skammt undan. Það er mikið myrkur í kringum þessi ár út af þess­ari hræðslu við pabba fullan og reyndar bara alla fulla karla. Skömmin og felu­leik­ur­inn umlukti allt. Ekki bætti úr skák að ég var lögð í ein­elti um tíma af kenn­ara mínum í Haga­skóla. Ég varð að lokum að flýja bekk­inn“.

Þegar Kolbrún var tólf ára flutti móðir hennar á Nes­veg­inn og ferm­ing­ar­árið fór hún í sveit á Grund í Eyja­firði, þar sem henni lík­aði vel en hún varð ekki glöð þegar hún kom heim úr sveit­inni og komst að því að móðir hennar var tekin saman við annan mann sem var einnig alkó­hólisti og hann var fluttur inn.

„Ég var bara algjör­lega búin að fá upp í kok af fullum mönnum,“ segir hún. „Þetta var góður maður en með þennan erf­iða sjúk­dóm. Þegar hann var í lagi var hann ynd­is­legur, studdi mig og hvatti til dáða. Hann hafði líka þann kost, að áliti mömmu, að hann var aldrei reiður þegar hann var drukk­inn og beitti aldrei ofbeldi. Hann gat hins vegar gjör­sam­lega drepið mann úr leið­indum þegar hann var drukk­inn og ég var alveg rosa­lega þreytt á honum næstu árin. Ég reyndi allt til að losna við hann á tíma­bili, var í kringum 15 ára þegar ég reyndi að henda honum út fyrir fullt og allt, tók af honum lyklana, fór síðan heim til vin­konu minnar og þegar ég kom heim aftur seinna sama dag var hann kom­inn inn aftur. Þá var mér allri lokið.“

Kolbrún Bald­urs­dóttir Mynd / Unnur Magna

Lagast allt ef við eignumst barn

Kolbrún seg­ist hafa gef­ist upp á ástand­inu á heim­il­inu þegar hún var fimmtán ára og flutt til systur sinnar. Fljót­lega eftir það kynnt­ist hún Vigni Ljósálfi Jónssyni, en sam­band þeirra varð um margt óvenju­legt og lauk með því að Vignir kom út úr skápnum sem sam­kyn­hneigður maður árið 1983. Þau eiga eina dóttur saman og þrjú barna­börn og Kolbrún segir þau hafa skilið sem vinir og við­haldi nánu sam­bandi.

„Ég var alltaf í dansi,“ segir hún um upp­haf kynna þeirra Vignis. „Það var eitt af því sem mamma pass­aði alltaf upp á að ég fengi að gera því hún hafði sjálf verið lengi í dansi. Þar hafði ég hitt Vigga og við höfðum verið danspar lengi áður en við byrj­uðum að vera saman sem par. Við bjuggum eig­in­lega saman frá því að ég var sextán ára, heima hjá honum fyrir utan útskrift­ar­árið en þá höfðu for­eldrar hans flutt aftur til Kefla­víkur. Eftir að ég útskrif­að­ist úr Verzló og Viggi kláraði Kenn­ara­skól­ann fluttum við til Stokks­eyrar þar sem við fórum bæði að kenna og bjuggum í þrjú ár. Svo kom hann út úr skápnum og okkar leiðir skildu.“

Spurð hvenær hana hafi farið að gruna að Vignir væri sam­kyn­hneigður seg­ist Kolbrún hafa verið mjög lengi að átta sig á því.

„Það var ekki fyrr en eftir að við fluttum aftur í bæinn og vorum komin með barn,“ útskýrir hún. „Ég hélt alltaf að sam­bandið myndi lag­ast og sagði meira að segja við hann að þetta myndi allt saman lag­ast þegar við værum búin að eign­ast barn. Ég vissi samt ekk­ert hvað ég var að segja eða hvað ætti að lag­ast því við vorum alltaf svo miklir vinir og mjög náin, en vissum samt, held ég, að sam­bandið var kannski ekki alveg eins og það átti að vera. Þegar ég bjó í Banda­ríkj­unum kom Viggi þrisvar sinnum út og var hjá okkur og dóttur sinni í þrjár vikur yfir jólin. Það var alveg ynd­is­legt.“

Spurð hvort að þáver­andi eig­in­manni, Clarence Glad, hafi ekki fund­ist neitt athuga­vert við það að fyrr­ver­andi eig­in­maður dveldi lang­dvölum hjá þeim segir Kolbrún að það hafi aldrei valdið honum neinu hug­ar­angri.

„Það stendur engin ógn af sam­kyn­hneigðum fyrr­ver­andi eig­in­manni fyrir hjóna­band,“ segir hún. „Vignir ógn­aði eig­in­manni mínum aldrei á nokkurn hátt. Við hlökk­uðum alltaf mikið til þegar hann var vænt­an­legur í heim­sókn.

Kolbrún Bald­urs­dóttir Mynd / Unnur Magna

Fannst ég allt of léleg til að geta neitt

Kolbrún flutti til Banda­ríkj­anna með „milli­mann­inum“ eins og hún kallar Clarence, en hann fór þangað til dokt­ors­náms í fræðum Nýja testa­ment­is­ins og ári síðar hélt hún á eftir honum með dótt­ur­ina Karen Áslaugu.

„Þegar við kynnt­umst var Clarence að byrja í dokt­ors­námi og við vorum í fjar­búð í eitt og hálft ár á meðan ég kláraði kúrsa í BA-námi í Háskól­anum og í jan­úar 1986 flutti ég út til Rhode Island til hans,“ útskýrir Kolbrún. „Ég byrj­aði á því að klára BA-rit­gerð­ina þarna úti og fór svo í MA-nám um haustið og við bjuggum þarna í fimm ár.“

Spurð hvort bak­grunnur hennar og barn­æska hafi verið ástæðan fyrir því að hún valdi sál­fræð­ina segir Kolbrún svo ekki vera.

„Mér gekk vel í námi og eftir þessi fimm ár og tvær MA-gráður var ég bara ansi ánægð með mig eftir að hafa eig­in­lega ekk­ert vitað hvað eða hvort ég gæti orðið nokkuð.“

„Nei, veistu, ég hef yfir­leitt alltaf vitað nákvæm­lega hvað ég hef viljað, er alltaf með mjög skýra sýn á mín mark­mið nema þegar kom að því að velja hvaða starf ég vildi leggja fyrir mig. Ég vissi bara ekk­ert hvað ég vildi gera,“ segir hún. „Ég var með svo brotna sjálfs­mynd sem háði mér og gerir stundum enn, þótt það sé ekki í sam­ræmi við þann karakter sem ég er. Ég trúði aldrei að ég gæti neitt, kem úr þessu alkaum­hverfi og var alltaf með skömm og þá til­finn­ingu að ég væri ekki á réttum stað á réttri stund. Heim­il­is­lífið í æsku var nátt­úr­lega bara dap­ur­legt og sner­ist svo mikið í kringum alkó­hól­isma pabba, með­virkni og skömm­ina að eiga pabba sem drakk. Ég var bara mjög illa á mig komin og með svo litla trú á sjálfri mér að korteri áður en ég setti upp stúd­ents­húf­una trúði ég ekki að ég myndi verða stúd­ent.

Þessi til­finn­ing var svo lýj­andi og erfið að ég get varla lýst því. Það hefur rekið mig áfram við að halda þessum mála­flokki á lofti. Þetta hafði líka áhrif þegar að því kom að velja nám í háskóla, ég fletti háskóla­bæk­lingnum og spurði sjálfa mig hvað ég gæti eig­in­lega orðið, mér fannst ég eig­in­lega allt of léleg til að geta orðið neitt. Það end­aði með því að ég byrj­aði í upp­eld­is­fræði, fannst að ég gæti kannski mögu­lega eitt­hvað í henni. Síðan leiddi eitt af öðru en ég fer alltaf mjög sér­kenni­legar leiðir að öllu vegna þess að ég hef aldrei trú á að ég geti nokkurn skap­aðan hlut. Ég byrj­aði reyndar á því í háskól­anum að klára þrjá­tíu ein­ingar í lat­ínu, því mér hafði gengið vel í henni í Verzló, en það var auð­vitað ekki und­ir­bún­ingur að neinu fram­tíð­ar­starfi þannig að ég skipti yfir í upp­eld­is­fræð­ina. Það fannst mér alveg hund­leið­in­legt enda var námið nokkuð nýtt á þessum árum og ekki nógu vel for­mað. Ég slædd­ist svo inn í ein­hverja sál­fræði­kúrsa og mitt BA-próf er sam­bland af lat­ínu, upp­eld­is­fræði og smá­vegis sál­fræði. Þann far­angur hafði ég með mér til Banda­ríkj­anna og þá vakn­aði spurn­ingin hvað ég ætti að gera við svona skrýtið BA-próf.

Ég fór í nám sem heitir Educational Psychology and Counselling, en „counselling“ er þekkt starf í Banda­ríkj­unum. Ég kláraði master-gráðu í því og verð að segja að þetta var alveg ótrú­lega flott nám. Eftir masters-námið ákvað að bæta við mig öðru námi, skipta um deild og fara í sál­fræði. Það var reyndar vesen því ráð­gjafa­námið var ekki metið neitt þar inn og ég þurfti að byrja frá grunni þannig að það fór alveg heil önn í að ná mér í fleiri grunn­á­fanga í sál­fræð­inni. Mér gekk vel í námi og eftir þessi fimm ár og tvær MA-gráður var ég bara ansi ánægð með mig eftir að hafa eig­in­lega ekk­ert vitað hvað eða hvort ég gæti orðið nokkuð. Þá átti ég reyndar auð­vitað eftir að fara heim og fá leyfi sem sál­fræð­ingur og það var eig­in­lega ekki fyrr en það leyfi kom sem ég var komin á leið­ar­enda með það hvað ég væri. Þegar heim kom dreif ég mig í kennslu­rétt­indin og hef kennt sam­hliða sál­fræði­vinnu á öllum skóla­stigum.“

Kolbrún Bald­urs­dóttir Mynd / Unnur Magna

Þolir ekki stjórnleysi

Kolbrún segir sjálfs­traustið hafa eflst mjög mikið þessi ár í Banda­ríkj­unum, það hafi eig­in­lega skipt sköpum í lífi hennar að kom­ast út, ná tökum á ensk­unni og ljúka við­ur­kenndu starfs­rétt­inda­námi. Árin í Banda­ríkj­unum hafi verið góð ár.

„Þarna var ég orðin dálítið til í hvað sem var og þegar ég kom heim byrj­aði ég bara að vinna, opna stofu og gerði allt mögu­legt,“ segir hún og brosir. „Ég byrj­aði að vinna hjá Fang­els­is­mála­stofnun, fór þaðan yfir á Stuðla þar sem ég var yfir­sál­fræð­ingur í nokkur ár. Svo var ég í barna­vernd­ar­málum í Kópavogi í nokkur ár og alltaf með sál­fræði­stof­una mína og að kenna með, halda nám­skeið, þýða kafla í bók, skrifa greinar í blöðin, skrif­aði bók og svona hélt lífið áfram. Síðustu árin áður en ég fór í póli­tík­ina var ég á Heilsu­gæslu­stöð­inni í Mjódd og svo hef ég verið verk­taki á Göngu­deild sótt­varna þar sem ég aðstoða hæl­is­leit­endur. Ég er líka enn þá með stof­una mína, en það gefst reyndar lít­ill tími til að sinna henni eftir að ég komst inn í borg­ar­stjórn.“

Nokkrum árum eftir heim­kom­una frá Banda­ríkj­unum skildu Kolbrún og Clarence, þá búin að eign­ast eina dóttur, Hörpu Rún Glad.

„Eftir skiln­að­inn var ég ein í þrjú ár með dætur mínar þangað til ég hitti Jón Guð­munds­son sem er búinn að vera eig­in­maður minn núna í átján ár,“ segir hún. „Hann er plöntu­líf­eðl­is­fræð­ingur, hefur verið að rækta upp land á Rang­ár­völlum í mörg ár og við eigum bústað þar sem við erum mikið í. Hann á tvö upp­komin börn af fyrra hjóna­bandi og sex barna­börn, ég á þessar tvær dætur og fjögur barna­börn, þannig að þetta er orðin ansi stór fjöl­skylda.“

Spurð hvort hún hafi aldrei farið í það munstur, sem mörg upp­komin börn alkó­hólista fest­ast í, að velja sér maka sem eru alkó­hólistar segir Kolbrún það aldrei hafa komið til greina.

„Það hefði sko aldrei getað gerst, get ég sagt þér,“ segir hún og glottir. „Tauga­kerfi mitt hefði bara ekki þolað það. Ég þoli stjórn­leysi mjög illa og þoli illa að vera innan um fólk sem er komið á það plan að vera búið að missa stjórn á lífi sínu. Það fyllir mig óör­yggi sem stafar auð­vitað bara af gömlum sárum síðan ég hafði enga stjórn á aðstæðum. Ég er svo mörkuð af þessu upp­eldi þótt fólk trúi því oft ekki þar sem ég hef alltaf verið þessi frakka týpa, áræðin og er séð sem sterk, ein­hver sem lætur ekki vaða yfir sig. Oft fer það ekki saman, hvernig manni líður og hvernig maður birt­ist öðrum út á við.“

Kolbrún Bald­urs­dóttir Mynd / Unnur Magna

Ákvað bara að nú væri tímabært að hella sér í pólitík

Hvernig stóð á því að Kolbrún gerð­ist aktíf í póli­tík? Var það ein­hver gam­all draumur?

„Nei, ég hef engan póli­tískan bak­grunn úr fjöl­skyld­unni, nefni­lega,“ segir Kolbrún og hlær. „Ég veit ekki alveg hvaðan ég fékk þá hug­mynd að láta að mér kveða í póli­tík­inni, en þessi þrjú ár eftir skiln­að­inn bjó ég rétt hjá Valhöll og fékk þá hug­mynd að kannski væri tími til kom­inn að fara út í póli­tík­ina. Ég byrj­aði á því að fara á stjórn­mála­nám­skeið í Valhöll og fannst það alveg ægi­lega gaman svo ég varð strax ákveðin í því að ég vildi kom­ast á lista. Það end­aði með því að ég fór í próf­kjör og varð fjórði vara­þing­maður fyrir Geir Haarde um tíma. Svo gerð­ist það að allt í einu var röðin komin að mér að setj­ast á þing því allir aðrir vara­þing­menn voru upp­teknir.

Geir Haarde hringdi í mig og spurði hvort ég væri til­búin í slag­inn. Ég hélt það nú og mætti á þing með frum­varp til laga um hækkun öku­leyf­is­ald­urs í átján ár, sem eng­inn í Sjálf­stæð­is­flokknum hafði áhuga á nema Pétur Blöndal heit­inn, honum fannst þetta fín­asta frum­varp. Það fór svo auð­vitað bara sína leið inn í nefnd og sofn­aði þar. Ég vildi endi­lega kom­ast í fjöl­skyldu­málin, ver­andi sál­fræð­ingur á kafi í ein­elt­is­málum, og hafði svo mikið fram að færa að ég var alveg að rifna, en mér fannst félagar mínir í Sjálf­stæð­is­flokknum ekki hafa mik­inn áhuga á þessum málum. Þannig að ég datt bara út úr þessu póli­tíska starfi, nema hvað ég fór í Barna­vernd­ar­nefnd Reykja­víkur fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins um ára­bil eftir að nefnd­inni var gert að skipa fag­fólk í hana. Löngunin til að kom­ast í póli­tík var þó alltaf til staðar, að þoka málum til betri átta og laga það sem betur má fara og er jafn­vel ósann­gjarnt, er það sem ég brenn fyrir.“

Það var þó ekki fyrr en Kolbrún komst í kynni við Ingu Sæland og Flokk fólks­ins sem hjólin fóru að snú­ast.

„Þegar Flokkur fólks­ins kom fram á sviðið og fór að leggja áherslu á fjöl­skyldu­málin fórum við Inga að tala saman á messen­ger og það gerð­ist mjög hratt að ég gaf kost á mér í odd­vita­sæti flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum,“ útskýrir Kolbrún. „Og nú er ég búin að vera næstum tvö ár í borg­ar­stjórn og hef lagt fram örugg­lega á fjórða hund­rað mála, alls konar mál. Við í minni­hluta höfum engin völd og mér finnst mjög leið­in­legt hvað meiri­hlut­inn tekur illa í okkar mál, ýmist fellir þau eða vísar frá. Komist ein­hver í gegn eru þau aftengd þeim sem lagði þau fram upp­haf­lega.“

Er það ekk­ert frústrer­andi?

„Jú, það er mjög frústrer­andi,“ segir Kolbrún með áherslu. „Ég hef stundum farið af fundum bara hálf­grát­andi, oft reið og svekkt. Ég hef alveg látið vita af hversu ósátt ég er við þetta. Meiri­hlut­inn gæti gert svo margt til að stuðla að sam­vinnu en ekki sundr­ungu. En um leið og ég fæ að vera með í ein­hverjum starfs­hóp gengur þetta ljóm­andi vel, vil bara fá að deila reynslu og þekk­ingu minni til góðs fyrir heild­ina. Ég hef alltaf átt gott með að vinna með fólki og gengið vel í sam­starfi, held ég, en ég þarf að fá að vera með. Ég verð ljúf sem lamb ef ég fæ að vera með.“

„Nema þú ætlir bara að vera í borg­ar­stjórn upp á punt og ég er aldrei neins staðar upp á punt. Ég vil alltaf þoka málum áfram.“

Þarf að komast í meirihluta

Ertu enn jafn­ást­fangin af póli­tík­inni og þú varst í upp­hafi?

„Jú, jú, ég þarf bara að kom­ast í meiri­hluta,“ segir Kolbrún. „Ég vil vera þar sem ég get komið ein­hverju til leiðar. Það er mjög erfitt að vera með háleit mark­mið fyrir borg­ina og borg­ar­búa og þann hóp sem kaus mig og vera í minni­hluta. Nema þú ætlir bara að vera í borg­ar­stjórn upp á punt og ég er aldrei neins staðar upp á punt. Ég vil alltaf þoka málum áfram. Ég sat í átta ár í samn­inga­nefnd fyrir hönd sál­fræð­inga, var for­maður Stétt­ar­fé­lags sál­fræð­inga og þau ár voru mjög skemmti­leg. Þar var ég að djöfla málum áfram með blóði, svita og tárum og náði bara ofboðs­lega fínum árangri. Mér fannst alveg æðis­legt þegar nýja launa­kerfið komst í gegn, til dæmis.“

Stefnir þú kannski á þing í næstu kosn­ingum?

„Ég veit það ekki,“ segir Kolbrún bros­andi. „Það er best að tala var­lega. Mér þætti það örugg­lega æðis­legt, ef ég á að vera alveg hrein­skilin. En þá finnst kannski ein­hverjum ég vera að svíkja borg­ar­búa sem treysta á mig. Ég treysti svo­lítið á guð og lukk­una með það að fá leið­bein­ingar um hvar minn staður er hverju sinni þótt ég viti alltaf sjálf hvað ég vil. Maður er stundum mjög ein­mana í þess­ari bar­áttu. Ég hef ekki átt for­eldra lengi, þau eru farin fyrir löngu en mér finnst þau samt ein­hvern veg­inn nærri. Fyrir utan að eign­ast börnin mín og barna­börnin mín var það að vera kosin í borg­ar­stjórn einn stærsti áfangi lífs míns. Ég er mjög þakk­lát fyrir að hafa fengið þetta tæki­færi og vil standa mig vel.“

Það eru tvö ár eftir af kjör­tíma­bil­inu, hvaða mál eru það sem Kolbrúnu dreymir mest um að koma í gegn innan borg­ar­stjórnar?

„Ég hef lagt fram mjög mörg mál sem varða skóla­mál, börn, líðan og vel­ferð þeirra,“ útskýrir hún. „Sér­kennslu­málin og sér­úr­ræði í skólum. Mér finnst sá mála­flokkur ekki vel staddur. Flokkur fólks­ins var búinn til utan um öryrkja, fátæka og barna­fjöl­skyldur. Við erum flokkur sem vill taka utan um þá sem minna mega sín. Ég hef verið með mörg mál um félags­bú­staði. Mér finnst bara svo ótrú­legt hvernig ástandið í þeim málum hefur verið en ég ræð engu þar. En með því að benda á hluti og gef­ast ekki upp þá held ég það skili sér með einum eða öðrum hætti þótt meiri­hlut­inn myndi auð­vitað aldrei við­ur­kenna að það væri mér eða öðrum úr minni­hlut­anum að þakka.“

Spurning um að sýna virðingu og virða sjónarmið annarra

Því er gjarnan slegið upp í fjöl­miðlum þegar ágrein­ingur verður í borg­ar­stjórn­inni og stór orð falla, en er fólkið í borg­ar­stjórn ekki bara ágætis félagar svona á heild­ina litið?

„Jú, jú,“ full­yrðir Kolbrún. „Það er stundum talað harka­lega en ég held að þetta sé allt saman gott fólk og þessi ágrein­ingur er ekk­ert per­sónu­legur. Ég er alveg viss um að ef meiri­hlut­inn biði minni­hlut­anum rík­ari aðkomu að málum og tæki betur á móti okkar til­lögum þá myndum við vinna mjög vel saman.“

Hefur það að kom­ast í sviðs­ljós stjórn­mál­anna og verða and­lit sem allir kann­ast við breytt ein­hverju fyrir þig per­sónu­lega?

„Þegar þú ert alin upp við svona mikla óreiðu skiptir það gríð­ar­legu máli að hafa skipu­lag á líf­inu, reyna að vanda sig og gera eins vel og maður getur.“

„Nei, ég held ekki,“ segir Kobrún ákveðin. „Líf mitt er í mjög föstum skorðum, ég á fáa og góða vini, er ekki mikið fyrir að umgang­ast stóra hópa, hef ekki lengur gaman að því að ferð­ast mikið erlendis, hef ferð­ast mjög mikið um ævina og búin að fá nóg í bili. Ég er rosa­lega heima­kær, finnst ofboðs­lega gott að vera heima og hef alltaf nóg að gera. Svo sinni ég börn­unum mínum og barna­börnum, borða hollt, hreyfi mig reglu­lega, fer snemma að sofa og svo fram­vegis. Þegar þú ert alin upp við svona mikla óreiðu skiptir það gríð­ar­legu máli að hafa skipu­lag á líf­inu, reyna að vanda sig og gera eins vel og maður getur. Ég er ekki að segja að það sé endi­lega alltaf gott, það vantar í mig kæru­leysið kannski og ef ég geri mis­tök líður mér mjög illa. Ég hlusta mjög mikið á mína innri rödd, hvað inn­sæið segir mér og er til­búin að standa með sjálfri mér í erf­iðum hlutum. Þegar ég finn að til­finn­ingin er sönn þá geri ég það sem gera þarf sama þótt það kæmi heill her og garg­aði á mig. Með­virkni er ekki til í mér, ég henti henni burt í öllu þessu alka­ves­eni í fjöl­skyld­unni, ég segi hlut­ina bara hreint út en reyni alltaf að segja þá mildi­lega. Ég hef verið far­sæl bæði í einka­lífi og starfi, þrátt fyrir allt, og ég er inni­lega þakk­lát fyrir það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu