Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnar Þór krefur Jóhannes um svör: „Hverjir fengu greiddar tæpar 685 milljónir í þóknanir“

Ragnar Þór krefur Jóhannes um svör: „Hverjir fengu greiddar tæpar 685 milljónir í þóknanir“

Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, og Jóhannes Stef­áns­son, fram­kvæmda­stjóri Lind­ar­vatns ehf., hafa átt í hörðum skoð­ana­skiptum á sam­fé­lags­miðlum vegna fram­kvæmda á Lands­símareitnum.

Deilur þeirra hófust með skrifum Ragnars Þórs í gær um meint „brask og brall“ stjórn­enda Icelanda­ir og Sam­taka at­vinnu­lífs­ins og aðkomu þeirra að upp­bygg­ingu á Land­símareitn­um Ragnar Þór sagði þar að 700 millj­ónum króna hefði verið skotið undan.

Jóhannes svarar Ragnari Þóri og segir full­yrð­ingar hans vera úr lausu lofti gripnar. Sagðist hann ekki hafa áður séð ástæðu til að svara Ragnari Þóri og mál­flutn­ingi hans vegna þess hve „fjar­stæðu­kenndur hann er.“

Sjá einnig: Vísar full­yrð­ingum Ragnars Þórs á bug

Boltinn er því aftur kom­inn til Ragnars Þórs, sem þykir lítið til svara Jóhann­esar koma og svarar honum með langri færslu.

„Það er barns­lega ein­falt að benda á með opin­berum gögnum að verk­efnið, sem var kynnt fyrir fjár­festum árið 2016, átti að kosta rúma 6 millj­arða og verk­lok yrðu 2018 hafi ekki stað­ist nokkra ein­ustu skoðun né síbreyti­legar áætl­anir um kostnað og verk­lok,“ segir Ragnar Þór, sem er sam­mála því að ófyr­ir­sjá­an­legar tafir hafi orðið, en „við blasir að stjórn­endur félags­ins hafa lagt sig mikið fram við að fela hina raun­veru­legu stöðu gagn­vart fjár­festum og almenn­ingi.“

Segir hann ljóst að lánin séu komin í 12 millj­arða, þrátt fyrir að Jóhannes full­yrði að fram­kvæmdir séu innan áætl­ana.

Tengsl stjórnarmanns Lindarvatns við Icelandair, SA og SUS

„Þegar ég skrif­aði um „Lind­ar­vatns­snún­ing­inn“ á sínum tíma var það gert til að vekja athygli á tengslum aðila við Icelandair, Samtök atvinnu­lífs­ins og Samband ungra sjálf­stæð­is­manna. Og hvernig 685 millj­ónum af fjár­munum almenn­ings­hluta­fé­lags var komið undan í tvö eign­ar­halds­fé­lög, MB2015 og Fella­smára ehf. sem tengj­ast að hluta stjórn­ar­for­manni Lind­ar­vatns,“ segir Ragnar Þór, sem segir Jóhannes alls ekki svara kjarna máls­ins.

Segir félagið tæknilega gjaldþrota

Ragnar Þór rekur fram­kvæmd­ina á Lands­símareitnum, og fyrri skrif sín um hann árið 2019.

„Nú þegar skuld­irnar eru komnar í 12 millj­arða, og verk­lok ekki í sjón­máli, er ljóst að félagið skuldar meira en full­kláraðar eignir munu standa undir. Og þannig skil­málar brostnir á skulda­bréf­unum sem gefin voru út 2016. Einnig hlýtur að liggja fyrir að leigu­samn­ing­ur­inn um hót­elið komi ekki til með að standa undir fram­kvæmda­kostn­aði. Á manna máli þýðir þetta að félagið er tækni­lega gjald­þrota,“ segir Ragnar Þór og bætir við: „Þó löngu ljóst væri að áætl­anir um fram­kvæmda­tíma og kostnað gætu aldrei stað­ist var samt haldið áfram til að allt liti út fyrir að vera slétt og fellt.“

Segir hann Lind­ar­vatn hafa tekið lán hjá Íslands­banka, sem fært var á 1. veð­rétt, auk þess sem trygg­inga­bréfi hafi verið þing­lýst, sem „vænt­an­lega á lánið að tryggja fram­kvæmdafé til loka. Verður ekki annað séð en að þeir fjár­munir almenn­ings, aðrir en þeir sem fóru í vasa vild­ar­vina, séu end­an­lega tap­aðir,“ segir Ragnar Þór og segir Jóhannes gefa þannig allt annað í skyn en opin­ber gögn og stað­reyndir bera með sér.

Bætir Ragnar Þór við að vænt­an­lega verði COVID-19 söku­dólg­ur­inn, „þegar illa fer þó hægt sé að álykta að litlar líkur eru á að dæmið hefði gengið upp hvort sem er.“

Ragnar Þór líkir samn­inga­gerð­inni og fyr­ir­komu­lag­inu við Upp­haf fast­eigna­fé­lag sem var í eigu Kviku og var metið á millj­arða þangað til mis­ferli við rekst­ur þess kom í ljós.

Segir hann Jóhannes enn eiga eftir að útskýra „fyrir stjórn Icelandair og öðrum fjár­festum hverjir fengu greiddar tæpar 685 millj­ónir í þókn­anir og hvers vegna í gegnum félögin MB2015 og Fella­smára ehf?,“ og „einnig að skýra út hvert sé nú virði hluta Icelandair í Lind­ar­vatni ehf?.“

Lofar uppskrift að 850 milljóna gróða

Ljóst er af nið­ur­lagi skrifa Ragnars Þórs að hann er hvergi hættur að tjá sig um mál líf­eyr­is­sjóð­anna og tengsl þeirra við atvinnu­lífið, en hann seg­ist fljót­lega munu senda „frá mér upp­skrift­ina af því hvernig sjall­arnir græða 850 millj­ónir, og grilla á kvöldin, með því að selja almenn­ings­hluta­fé­lagi, í eigu líf­eyr­is­sjóð­anna, 3 ára fyr­ir­tæki, sem fram­leiðir ekki neitt, á 30 faldri ebitda en þar koma við sögu m.a. Magnús Júl­í­us­son fyrrum for­maður sam­bands ungra sjálf­stæð­is­manna og fleiri góðir gestir,“ segir Ragnar Þór og biður „fjár­mála­eft­ir­litið, stjórn Festi og stærstu eig­endur sem eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir að leggja við hlustir „lesa vel“ næstu daga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi