Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðlaug er fegin að vera komin á öruggan stað: „Finnst ég loksins geta andað“

Guðlaug er fegin að vera komin á öruggan stað: „Finnst ég loksins geta andað“

Guðlaug Böðv­ars­dóttir er him­in­lif­andi með að vera komin til Íslands eftir að hafa þolað margra mán­aða útgöngu­bann og óvissu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins á Ítalíu. Um tíma var ekki út séð með að Guðlaug og fjöl­skylda hennar kæmust til lands­ins en betur fór en á horfði og segir Guðlaug fjöl­skyld­una upp­lifa algjört frelsi á Íslandi.

„Ég er til! Það er ein­hvern veg­inn til­finn­ingin sem ég upp­lifði þegar ég horfði á útsýnið á Árhúsum á Hellu og sá fólk í úti­legu labbandi um án þess að vera með grímu á and­lit­inu. Allt í einu gat ég brosað framan í fólk og fengið sýni­legt bros á móti, nokkuð maður tekur ekki lengur sem sjálf­sögðum hlut. Svo var alveg ynd­is­legt að fá að faðma for­eldra mína. Mér finnst ég bara loks­ins geta andað,“ segir Guðlaug Böðv­ars­dóttir, sem er stödd á Íslandi ásamt tveimur ungum sonum þeirra, þriggja ára og eins árs, en ítalskur eig­in­maður hennar er vænt­an­legar til lands­ins í lok mán­að­ar­ins.

Erfið heimferð

Fjöl­skyldan er búsett í smá­bænum Castellucchio í Lombar­diu-hér­að­inu á Ítalíu þar sem hún hefur þurft að þola margra mán­aða útgöngu­bann og nag­andi óvissu vegna COVID-19 far­ald­urs­ins sem dregið tæp­lega 35 þús­und manns til dauða á Ítalíu og sett allt á hvolf. Um tíma var óvíst að draumur fjöl­skyld­unnar um að kom­ast til Íslands í sumar yrði að veru­leika og þegar Mannlíf ræddi við Guðlaugu síð­ast í maí var hún alls ekki bjart­sýn á að eitt­hvað yrði af ferð­inni. Hún segir að sem betur fer hafi nú ræst úr því og fjöl­skyldan sé í skýj­unum með að vera komin til lands­ins, þótt ferðin hingað hafi alls ekki gengið þrauta­laust fyrir sig.

„Allt í einu gat ég brosað framan í fólk og fengið sýni­legt bros á móti, nokkuð maður tekur ekki lengur sem sjálf­sögðum hlut. Svo var alveg ynd­is­legt að fá að faðma for­eldra mína.“

„Við flugum hingað til lands­ins föstu­dag­inn 3. júlí,“ segir Guðlaug. „Flugið frá Malpensa í Mílano voru fjórir mjög laaangir klukku­tímar. Að sitja inni í flug­vél með grímu og eins árs gam­alt barn í fang­inu, sem situr eðli­lega ekki kyrrt, er hlutur sem ég hef engan sér­stakan áhuga á að end­ur­taka. Sá eldri hafði ofan af sér í byrjun en svo fór pirr­ingur að gera vart við sig í rest­ina og það var ekki á bæt­andi að við þurftum að bíða í flug­vél­inni í næstum klukku­tíma því það voru þrjár vélar á undan okkur og það má bara viss fjöldi vera inni í flug­höfn­inni. Þá fór pirr­ingur og þreyta í hæstu hæðir hjá strák­unum,“ segir hún og dæsir.

Guðlaug segir fjöl­skyld­una hafa farið í skimum strax við kom­una til lands­ins. Þótt nið­ur­staðan hafi reynst nei­kvæð og fjöl­skyldan ekki þurft að fara í sótt­kví hafi hún samt sem áður ákveðið að verja fyrstu tveimur og hálfa deg­inum á Árhúsum á Hellu. Nú búi hún hjá for­eldrum Guð­laugar. „Það eru allir rosa ánægðir með að við séum komin heim,“ segir hún. „Bæði af því að það eru þrjú ár frá því að við komum hingað síð­ast og svo vissu líka allir hvað ástandið er búið að vera erfitt þarna úti, þannig að fólk er ánægt með að þetta skyldi takast.“

Lífið að komast aftur í samt lag

Spurð hvort ástandið sé eitt­hvað farið að skána í Castelluchio, þar sem fjöl­skyldan er eins og áður segir búsett, segir Guðlaug að þar sé lífið loks að kom­ast aftur í samt lag. „Heima hjá okkur er staðan nokkuð góð. Það er bara eitt virkt smit núna en í heild­ina hafa um 24 mann­eskjur af um 5.500 íbúa­fjölda smit­ast af COVID-19. Lífið er að fær­ast smám saman í samt horf. Kaffi­húsin hafa opnað að nýju. Bæj­ar­há­tíð verður haldin. Það er verið að reyna að gera eitt­hvað fyrir bornin. En fólk þarf enn að vera með grímur og þarf þess eitt­hvað áfram.“

Mikilvægt að sofna ekki á verðinum

Upp­li­f­irðu mun á ástand­inu hér og heima á ítalíu. „Já, það er er nátt­úru­lega svaka­legur munur á lönd­unum hvað varðar vírus­inn og hvernig hann hefur leikið þessi tvö lönd. Þar af leið­andi er kannski svo­lítið erfitt að bera saman hvernig staðið hefur verið að málum. Mér finnst þrí­eykið svo­kall­aða þó hafa staðið sig rosa­lega vel. Eflaust er ekk­ert grín að setja full­orðnu fólk reglur og reyna að segja því hvernig það á að haga sér, hvort sem það eru Íslend­ingar eða Ítalir.“ Hún bætir við að þótt staðan sé orðin góð innan gæsalappa sýni ný smit und­an­farið að mik­il­vægt sé að sofna ekki á verð­inum í bar­átt­unni gegn COVID-19.

Nýtur hverrar mínútu með sínum nánustu

En að ein­hverju létt­ara, hvað verðið þið fjöl­skyldan lengi á Íslandi og hvað ætlið þið að gera meðan þið eruð hérna? „Við erum hjá mömmu og pabba núna. Svo förum við örugg­lega eitt­hvað á flakka um landið þegar mað­ur­inn minn kemur,“ svarar Guðlaug hress í bragði og segir fjöl­skyld­una snúa aftur heim til Ítalíu 14. ágúst. „Maður bara kross­leggur fingur og vonar að allt sé á upp­leið. Að þetta redd­ist allt saman, eins og Íslend­ingar segja gjarnan. Skól­arnir fari að opna og búð­ar­ferð­irnar fari að verða skemmti­legar aftur og auð­vitað að gamla fólkið geti farið að lifa án þess að þurf að vera í stöð­ugum ótta. Annars reyni ég bara sem minnst að hugsa um heim­ferð­ina því ég er hér til að njóta lífs­ins og vera með mínum nán­ustu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi