Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sorgin er að buga mig

Í rúm fjórtán ár hef ég verið í hjóna­bandi með konu sem mér þykir mjög vænt um. Við eigum ynd­is­leg börn og þótt oft hafi gefið á bát­inn, fjár­málin verið erfið og fleira, binda okkur sterk bönd og við höfum alltaf reynt að láta hjóna­bandið ganga. Fyrir nokkrum mán­uðum komst ég hins vegar að því að hún er alkó­hólisti og hefur verið dag­drykkju­mann­eskja um tíma.

Hún ját­aði þetta fyrir mér kvöld eitt, enda var hún þá komin í þrot og vissi ekki lengur hvernig hún gæti haldið áfram blekk­inga­leiknum. Vegna vinnu minnar er ég mikið í burtu og þess vegna átti hún mjög auð­velt með að halda ástand­inu leyndu fyrir mér. Ég varð aldrei var við að hún drykki óhóf­lega þegar ég var heima, enda sagð­ist hún hafa passað að drekka mun minna þegar ég var á staðnum. Hún til­kynnti mér líka að hún hefði nokkrum sinnum farið út að skemmta sér, orðið ofurölvi og endað uppi í rúmi með ein­hverjum ókunn­ugum karl­mönnum.

Þar að auki hefur hún haldið vand­lega leyndu fyrir mér að skulda­staða heim­il­is­ins er mun verri en ég hélt vegna drykkju hennar, m.a. skuldar hún kredit­korta­fyr­ir­tækj­unum háar upp­hæðir. Ég varð óskap­lega reiður þegar hún sagði mér þetta, pakk­aði saman dót­inu mínu og rauk á dyr. Hún ákvað þá að fara í með­ferð og ég flutti heim til að hugsa um börnin okkar á meðan hún væri að klára hana. Þessar vikur sem hún var í burtu not­aði ég til að hugsa minn gang og reyna að gera mér grein fyrir stöð­unni.

Elska hana enn
Innst inni elska ég enn kon­una mína, þ.e. þá konu sem ég hélt að hún væri. Ýmislegt hefur líka rifj­ast upp fyrir mér sem gert hefur það að verkum að ég sé nú að ég kaus að loka aug­unum fyrir mörgu sem sann­ar­lega benti til að hún ætti við vanda­mál að stríða. Þegar við kynnt­umst drakk hún mikið. Ég vissi að hún var mikið á djamm­inu en bjóst við að hún myndi bara hætta því þegar við stofn­uðum heim­ili. Hún varð alltaf dauða­drukkin þegar við fórum út saman að skemmta okkur og hún fékk sér ævin­lega einn bjór til að rétta sig af dag­inn eftir. Mér var ekki vel við þetta en hún hló bara að mér og sagði að það væri ekk­ert mál að laga timb­ur­menn­ina á þennan hátt. Hún hefði gert það lengi.

Ég kaus að trúa þessu og þegar ég horfi til baka þá sé ég að oft hefur hún ekki látið sér nægja þennan eina bjór. Konan mín er hins vegar þannig að hún breyt­ist lítið við að fá sér í eitt glas eða tvö. Hún er róleg og hæg­lát að eðl­is­fari og eina breyt­ingin sem maður verður var við er þegar hún skyndi­lega er orðin blind­full, draf­andi og slag­andi. Ég skamm­að­ist oft í henni fyrir að drekka of mikið þegar við skemmtum okkur og hún lof­aði ævin­lega að passa sig betur næst. Hún hafði líka alltaf afsak­anir á reiðum höndum. Hún hafði verið svo illa fyr­ir­kölluð í þetta skiptið, hálf­lasin í annað, á túr í það þriðja og svo fram­vegis og svo fram­vegis. Alltaf trúði ég að þetta væri rétt.

Hvers vegna á ég að sýna skiln­ing? Ég gerði ekk­ert af mér annað en kannski það að vera of sak­laus og hrekk­laus. Hvers vegna á hún að fá tæki­færin en ég ekki neitt?

Sjálfur hef ég enga reynslu af alkó­hól­isma. Heima hjá mér var vín notað í miklu hófi og ég hef aldrei drukkið mikið sjálfur. Ég hef aðeins tvisvar á ævinni orðið veru­lega fullur. Kannski varð van­þekk­ing mín til þess að þetta náði að ganga svona langt. Und­an­farið hef ég heyrt ýmis­legt frá börn­unum mínum sem gefur mér til kynna að þau hafi sann­ar­lega vitað hvað gekk á og að þau hafi mátt horfa upp á ýmis­legt. Yngri börnin voru reyndar mjög með­virk og hjálp­uðu móður sinni að halda þessu leyndu fyrir mér en elsta barnið sagð­ist oft hafa verið komið á fremsta hlunn með að segja eitt­hvað við mig og kom iðu­lega með athug­semdir sem hefðu átt að nægja til að ég kveikti á per­unni en ég gerði það ekki.

Eitt kvöldið hafði konan mín lengi verið að sýsla við þvott niðri í kjall­ara þegar elsta barnið sagði: „Heldurðu að þú ættir ekki athuga með hana mömmu? Hún er svo lengi í þvotta­hús­inu.“ Ég nennti ekki að standa upp frá sjón­varp­inu og humm­aði þetta því fram af mér. Núna veit ég að konan mín var að drekka þetta kvöld og fór beint í rúmið þegar hún kom upp.

Á ég að sýna skiln­ing?
Alkó­hól­ismi er sjúk­dómur, eins og allir sjálf­sagt vita, en mér líður alls ekki eins og konan mín sé veik. Mér finnst hún hafa svikið mig á lúa­legan og and­styggi­legan hátt og ég er ösku­reiður. Sumir vinir okkar og ætt­ingjar hafa litið hér við og flestir talað um að ég verði að gefa henni tæki­færi. Hún hafi farið í með­ferð og það sé stórt skref. Þegar ég heyri þetta finnst mér troðið á mínum til­finn­ingum og mér sem mann­eskju.

Hvers vegna á ég að sýna skiln­ing? Ég gerði ekk­ert af mér annað en kannski það að vera of sak­laus og hrekk­laus. Hvers vegna á hún að fá tæki­færin en ég ekki neitt? Er ekki ástæða til að biðja mig afsök­unar? Það er eftir allt saman búið að rústa mínu lífi. Fjár­hags­staðan er slík að það mun taka mörg ár að vinna sig út úr skuld­unum, ef það tekst nokkurn tíma. Börnin mín eru tor­tryggin og miður sín og konan mín hefur haldið fram hjá mér með ein­hverjum og ein­hverjum úti í bæ. Á ég að fyr­ir­gefa þetta allt bara vegna þess að ein­hver segir mér að þetta sé sjúk­dómur?

Krabba­meins­sjúk­lingar stunda senni­lega ekki fram­hjá­hald og lík­lega gera hjarta­sjúk­lingar það ekki heldur. Af hverju er alkó­hól­ismi þá afsökun fyrir slíku meðan syk­ur­sýki er það ekki? Ég er svo reiður og bitur að ég veit ekki einu sinni hvernig ég á að fara að því að byrja að vinna mig út úr þessu. Og það versta er að mig langar ekki að fara frá börn­unum mínum og búa einn. Mig langar heldur ekki til að vera með nokk­urri annarri konu en henni.

Losaðu þig við hana
Besti vinur minn hringdi um dag­inn og hvatti mig til að losa mig við kon­una. Hann taldi að ég gæti fengið for­sjá fyrir börn­unum og ætti sann­ar­lega að reyna það. Að minnsta kosti vildi hann meina að við hefðum bæði gott af því að búa hvort í sínu lagi um tíma og eftir kannski ár eða svo mætti end­ur­meta þær til­finn­ingar sem við hefðum hvort til ann­ars. Hann áleit að hún væri með hegðun sinni búin að fyr­ir­gera öllum rétti sínum til barn­anna og eng­inn ætti að sætta sig við svona fram­komu eins og ég hefði þurft að þola.

Meðan ég hlust­aði á hann fannst mér hann hafa rétt fyrir sér en eftir á að hyggja er ég ekki viss. Ég finn fyrir með­aumkun í hennar garð og ég vil alls ekki taka börnin af henni. Samt vil ég ekki að þau þurfi að þola að horfa upp á mömmu sína drukkna á hverjum degi. Konan mín hefur skrifað mér og sagt að hún hafi ekki verið ábyrg gerða sinna þegar hún var full því alkó­hólið hafi tekið af henni völdin. Hún myndi aldrei gera þá hluti edrú sem hún gerði drukkin. Ég trúi því en veit ekki hvort það er nóg til að ég geti fyr­ir­gefið henni.

Ég skamm­að­ist oft í henni fyrir að drekka of mikið þegar við skemmtum okkur og hún lof­aði ævin­lega að passa sig betur næst.

Enn er ég á báðum áttum um hvort ég telji hjóna­bandið þess virði að bjarga því. Nú þegar hefur sjúk­dómur hennar kostað mig miklar þján­ingar, bæði til­finn­inga­lega og fjár­hags­lega. Ég þurfti að taka mér frí í vinn­unni svo hún gæti farið í með­ferð og það hefur ekki hjálpað upp á skuld­irnar. Annan dag­inn langar mig mest að slíta öll tengsl við þessa mann­eskju og hinn finnst mér við alveg geta yfir­stigið þessa erf­ið­leika og byrjað nýtt líf. Und­an­farið hefur mér oft fund­ist ég vera að því kom­inn að gef­ast upp og leit­aði því til heim­il­is­lækn­is­ins míns. Hann vís­aði mér á ráð­gjafa sem ég hef mætt í nokkra tíma hjá.

Í fyrsta tím­anum benti ráð­gjaf­inn mér á þá stað­reynd að ég væri að ganga í gegnum sorg­ar­ferli. Hann lýsti einnig fyrir mér hvernig það gengi fyrir sig og sagði að best væri að leyfa sorg­inni að hafa sinn gang. Ég þyrfti engar ákvarð­anir að taka fyrr en ég færi að jafna mig. Ég ætla að fara að ráðum hans en mikið vildi ég að ein­hver leið væri til að flýta þessu ferli eða gera það bæri­legra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu