Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég hef alltaf samþykkt Bjarka nákvæmlega eins og hann er“

Þótt þau Saga Ýr Nazari og Bjarki Steinn Pét­urs­son séu ung að árum hafa þau upp­lifað meira en margir sem eldri eru. Þegar þau kynnt­ust fyrir einu og hálfu ári voru þau bæði nýlega orðin edrú eftir margra ára neyslu áfengis og fíkni­efna og stuttu eftir að þau kynnt­ust kom Bjarki út sem trans maður. Í dag eru þau ham­ingju­sam­ari en nokkru sinni fyrr og und­ir­búa nú útkomu fyrsta heftis tíma­rits­ins Góðar fréttir þar sem þau ætla ein­ungis að flytja jákvæðar fréttir, enda segja þau að það skipti miklu máli fyrir vellíðan og and­lega heilsu að leggja áherslu á það jákvæða í líf­inu.

„Það voru aldrei neinir erf­ið­leikar frá minni hlið,“ segir Saga ákveðin. „Ég hef alltaf sam­þykkt Bjarka nákvæm­lega eins og hann er og var ekk­ert hneyksluð á því að hann væri að koma út sem trans maður. Mér fannst aldrei neitt mál að kalla hann Bjarka, þótt hann hafi heitið annað þegar við kynnt­umst. Þetta var mun erf­ið­ara fyrir hann, skilj­an­lega.“

„Já, það hafa poppað upp ýmis verk­efni hjá okkur alveg síðan við kynnt­umst,“ bætir Bjarki við. „Það teng­ist líka því að við erum bæði edrú og þegar við kynnt­umst var ég nýorð­inn edrú og hún búin að vera edrú í eitt ár, þannig að hún þurfti að fylgja mér í gegnum upp­hafið á mínu edrú­ferða­lagi. Það koma upp alls konar verk­efni í edrú­mennsk­unni sem eru krefj­andi, sér­stak­lega í byrjun þegar maður er að læra að vera edrú. Við kynnt­umst rosa­mikið í gegnum það að hjálpa hvort öðru í gegnum erf­ið­leika sem tengd­ust ekki okkar sam­bandi heldur voru mín per­sónu­legu áföll sem hún hjálp­aði mér að takast á við, og ég gerði það sama fyrir hana.“

„Það koma upp alls konar verk­efni í edrú­mennsk­unni sem eru krefj­andi.“

„Já, við höfum lært það mjög vel í gegnum sam­bandið okkar að við þurfum að taka ábyrgð á okkur sjálf,“ skýtur Saga inn í.

„Ég get ekki bjargað honum og hann getur ekki bjargað mér. Við spegl­uðum mikið hvort annað í því hvað það væri sem hvort okkar um sig þyrfti að taka ábyrgð á. Ég komst að mörgu um sjálfa mig í gegnum þessa speglun og upp­götv­aði að það var ýmis­legt sem ég þurfti að leita mér hjálpar við og hann sömu­leiðis, auð­vitað. Þannig að þetta hefur verið mjög þroskað og heil­brigt sam­band og erf­ið­leikar þýða bara að við þurfum að vera til­búin að horfast í augu við okkur sjálf. Þegar við kynnt­umst vorum við nýbyrjuð að lifa líf­inu á lífs­ins for­sendum; verða full­orðin og vera edrú, vinna úr for­tíð­inni og reyna að láta draumana okkar ræt­ast.“

Talandi um að læra að vera full­orðin, hvað eruð þið gömul? „Ég er tutt­ugu og eins,“ segir Saga. „Og ég varð tutt­ugu og sex ára í júní,“ segir Bjarki, sem kom, eins og áður sagði, út sem trans maður fyrir einu og hálfu ári.

Viðtalið í heild má lesa í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Emil­í­anna Valdi­mars­dóttir, förð­un­ar­fræð­ingur fyrir Urban Decay á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu