Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólskur rabarbari í íslenskum sultum

Íslensk rabar­bara­sulta er unnin úr pólskum rabar­bara sem hingað er fluttur inn í stórum stíl. Einn fram­leið­enda segir íslenskan markað ekki ráða við magnið sem til þarf. Íslenskt árferði kemur í veg fyrir meiri afköst.

Rabar­bara­sultan að margra mati ómissandi með ýmsum réttum og uppi­staða í fjöl­mörgum kræs­ingum. Það kann að koma manni spánskt fyrir sjónir að stór hluti þess rabar­bara sem not­aður er til fram­leiðslu á íslenskri sultu er alls ekki íslenskur. Hann kemur frá Póllandi.

Pólskur fyrir iðnaðinn – íslenskur fyrir heimilin

Í svari frá Kjarna­vörum, sem fram­leiða bæði rabar­bara­sultu og rabar­bara­graut, kemur fram að allur sá rabar­bari sem not­aður er til að fram­leiða sultur fyrir iðn­að­inn, er fluttur inn frá Póllandi. Ástæðan, segir í svar­inu, er sú að magnið sem þarf til sultu­gerð­ar­innar sé það mikið að íslenski mark­að­ur­inn ráði ekki við það.

Hins vegar er rabar­bar­inn sem fer í 400 gramma krukk­urnar sem fara á neyt­enda­markað keyptur hér á landi og er líf­rænt rækt­aður.

Lítið framboð en mikil eftirspurn

Það kann að hljóma und­ar­lega að ekki sé rækt­aður rabar­bari í nógu stórum stíl hér á landi, enda vex hann víða, innan girð­inga og utan.

Fagvörur fram­leiða rabar­bara­sult­una fyrir Mömmu-sultur og í svari þeirra við fyr­ir­spurn blaða­manns kom fram að ein­ungis væri íslenskur rabar­bari not­aður við fram­leiðsl­una.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Sölu­fé­lagi garð­yrkju­manna eru ákaf­lega fáir græn­met­is­bændur sem leggja þar inn rabar­baraupp­skeru og kílóin það fá að varla sé um upp­skeru að ræða.

Kjarna­vörur benda á í svari sínu að vilj­inn til að nota íslenskt hrá­efni til fram­leiðsl­unnar sé til staðar en það sé ekki alltaf hægt bæði vegna lít­ils fram­boðs og þess að ekki sé hægt að reiða sig á upp­sker­una í íslensku árferði.

Ein góð íslensk uppskrift

Það er vel við hæfi að ljúka þess­ari umfjöllun með upp­skrift að rabar­bara­sultu þar sem not­aður er ramm­ís­lenskur rabar­bari. Upp­skriftin er góð og raunar í holl­ari kant­inum en hún er fengin af vefnum Café Sigrún:

Innihald:

  • 350 gr rabar­bari, þveg­inn og saxaður gróft
  • 100 gr döðlur, saxaðar gróft
  • 60 ml hlynsíróp
  • 0,5 tsk kanill
  • 1 tsk sítrónu­safi

Aðferð:

Skolið rabar­bar­ann, skerið laufin frá og hendið þeim og saxið stöngl­ana gróft. Setjið í stóran pott.

Saxið döðl­urnar gróft og setjið í pott­inn.

Bætið hlynsíróp­inu, kanilnum og sítrónusafanum saman við. Látið sjóða í 15-20 mín­útur.

Gott er að hræra kröft­ug­lega í sult­unni með gaffli af og til.

Setjið í sótt­hreins­aðar krukkur (sjóðið krukkur og lok í 10 mín­útur).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag