Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ber ábyrgð á einu stærsta tískuslysi Íslandssögunnar

Ber ábyrgð á einu stærsta tískuslysi Íslandssögunnar
Gunnar Björn leik­stjóri Ömmu Hófí.

Gunnar Björn Guð­munds­son, leik­stjóri og hand­rits­höf­undur, hefur vakið athygli fyrir skemmti­legar myndir á borð við Ömmu Hófí og Astrópíu og fetar óhikað nýjar brautir í vali á verk­efnum. Enda seg­ist hann sjálfur vera óhræddur við að taka áhættur og stand­ist sjaldn­ast góðar áskor­anir þótt það hafi stundum komið honum í vand­ræði. Gunnar Björn er undir smá­sjánni að þessu sinni.

Fullt nafn: Gunnar Björn Guð­munds­son
Aldur: 48 ára. Fæddur 22. jan­úar 1972
Starfs­heiti: Leik­stjóri og hand­rits­höf­undur

Hvað hef­urðu verið að bralla fram til þessa: „Við frum­sýndum Kvik­mynd­ina Ömmu Hófí 10. júli. Í kjöl­farið fór ég með fjöl­skyld­un­inni í sum­ar­frí. Við fórum út og suður, tókum svona hátíð­ar­út­gáfu af hringnum. Ferð­uð­umst fyrst vestur, fórum síðan suð­ur­leið­ina til Akur­eyrar og þaðan heim í Hafn­ar­fjörð­inn.“

Áhugamál: „Vinnan mín er það sem ég hef mest gaman af. Ég nýt þess að horfa á kvik­myndir og fara í leik­hús. Ég hef ein­stak­lega gaman af því að stúd­era kvik­myndir og skoða hvernig þær eru settar saman. Af svona hefð­bundnum áhuga­málum þá eiga senni­lega lík­ams­rækt, golf, hlaup og ferða­lög vinn­ing­inn.“

Á döf­inni: „Ég hef vana­lega leik­stýrt svona tveimur til þremur leik­ritum á ári en nú er allt í óvissu út af COVID-19. Ég er því að ein­beita mér að klára hand­rit sem ég er búinn að vinna að í nokkur ár og byggir á bók Þórarins Leifs­sonar „Maðurinn sem hataði börn“. Ég var að enda við að fá þriðja hand­rits­styrk frá Kvik­mynda­mið­stöð og við erum gagna frá nýj­ustu útgáfu að hand­rit­inu og und­ir­búa okkur fyrir fram­leiðslu.“

„Ég hef alltaf verið fljótur að stökkva á tæki­færi. Læt bara vaða og er sjaldan með varaplan.“

Hver var mesta áskor­unin við gerð Ömmu Hófí? „Tíma­skortur og litlir pen­ingar. Það er vanda­mál sem ein­kennir reyndar alla kvik­mynda­gerð, sama hvað myndin kostar, en við gerð Ömmu Hófíar höfðum við sér­stak­lega lít­inn tíma og úr ein­stak­lega litlum pen­ingum að spila. Þess vegna skipu­lögum við okkur gríða­lega vel og nýttum hverja mín­útu og hverja krónu ein­stak­lega vel og það er rétt að taka fram að vinnan sem fór í gerð Ömmu Hófíar var mjög ánægju­leg og skemmti­leg því allir voru svo sam­stilltir.“

Talandi um það, hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið sem leik­stjóri og í líf­inu yfir­leitt? „Ég er yfir­leitt óhræddur við að taka áhættur. Ég tók til dæmis heil­mik­inn sjens þegar ég hætti í Lista­há­skól­anum til að gera kvik­mynd­ina Astrópíu. Ég var búinn með hálft ár í námi sem hét Fræði og fram­kvæmd en kall­ast núna Sviðs­lista­braut, alveg frá­bært nám en við fengum styrk til að gera Astrópíu og það var nokkuð sem ég gat ekki hafnað. Ég hef alltaf verið fljótur að stökkva á tæki­færi. Læt bara vaða og er sjaldan með varaplan.“

Hvað óttastu mest? „Að valda von­brigðum, sér­stak­lega fólk­inu mínu. Verst þætti mér ef fjöl­skyldan þyrfti að samm­ast sín fyrir mig. Já og svo er ég skít­hræddur við allar köngulær, alveg niður í minnstu teg­undir.“

Býrðu yfir leyndum hæfi­leika? „Já! Ég get lengt á mér hend­ina. Kannski flokk­ast þetta ekki beint sem leyndur hæfi­leiki þar sem allir sem ég þekki og ömmur þeirra hafa séð þetta trix. En þetta er samt mjög fyndið!“

Hver væri tit­ill­inn á ævi­sög­unni þinni? „Ég hugsa að hann yrði „Ég sé ekki hvað ætti að klikka!“ eða jafn vel „Hey á ég að lengja á mér hend­ina?“

Hver myndi leika þig í bíó­mynd­inni? „Ég hef heyrt að ég sé líkur Ryan Gossling þótt ég sjái nú sjálfur ekki lík­indin. Senni­lega væri best að fá Hjálmar Hjálm­ars­son til að leika mig. Hann getur breytt sér í hvern sem er. Ég tal­aði nú ekki um ef Ragna Fossberg sæi um ger­við. Þá myndu allir halda að ég væri að leika sjálfan mig!“

Hvaða kvik­mynd hefð­irðu viljað leik­stýra? „Það eru svo margar myndir sem ég hefði stoltur viljað leik­stýra. Underground eftir Emir Kusturica og Amelie og Delicatessen, tvær síð­ar­nefndu eru í mjög miklu upp­á­haldi. Svo held ég mikið upp á allt sem kemur úr smiðju Wes Anderson og Terry Gilliam.“

Gunnar leik­stýrir Ömmu Hófí sem nú er sýnd í bío.

Hvaða kvik­mynd eða leik­verk dreymir þig um að leik­stýra? „Það er ótrú­legt að segja frá því en Amma Hófi eru búin að vera minn draumur í ansi mörg ár. Ég fékk hug­mynd­ina senni­lega ein­hvern tím­ann í kringum 1990 og mig hefur dreymt um að gera hana síðan þá. Árið 2012 skrif­aði ég fyrsta hand­ritið og hef verið að vinna í því síðan þá. Grunn­hug­myndin hefur þó alltaf verið sú sama; sagan hverf­ist um eldra fólk sem rænir banka. Nú er draum­ur­inn að gera kvik­mynd upp úr bók­inni Maðurinn sem hataði börn. Planið er að gera skemmti­lega mynd fyrir ung­linga og bara alla sem hafa gaman af góðum ævin­týra-myndum með spennuí­vafi.“

Hvaða þættir eru í upp­á­haldi hjá þér þessa stund­ina? „Ég var að klára Ozark og Marcella á Netflix. Síðan var ég að enda við að horfa á Borg­ar­stjór­ann eftir Jón Gnarr. Ég missti af þeim þegar þeir voru sýndir hér um árið, en þeir eru frá­bærir og ég Pétur Jóhann brill­erar í þeim. Mæli heils­hugar með þessum þáttum.“

Bestu og verstu íslensku kvik­myndir allra tíma? „Þetta er svo­lítið snúin spurn­ing. Sódóma Reykja­vík er í miklu upp­á­haldi hjá mér og mér finnst Hrútar frá­bær en þær myndir sem ég hef horft oft­ast á fyrir utan Sódómu eru Með allt á hreinu, Nýtt líf og Stella í orlofi. Annars er ekki hægt að segja að ein­hver mynd sé verst eða léleg­ust. Það er ótrú­legt afrek að fram­leiða kvik­mynd og koma henni í bíó, þannig að ég segi pass við þess­ari spurn­ingu.“

En hvaða kvik­mynd þótt þér skemmti­leg­ast að gera? „Ömmu Hófí, það var ótrú­lega skemmti­legt, enda er þetta kvik­mynd sem er búin að vera í píp­unum svo lengi og henni hefur verið beðið eftir með mik­illi eft­ir­vænt­ingu. Það skemmti­leg­asta í því ferli var svo að fá að for­sýna hana í Bæj­ar­bíói, kvik­mynda­húsi sem stendur nærri hjarta mínu. Frábært að heyra fullan sal af fólki grenja úr hlátri og skemmta sér kon­ung­lega, það rifj­að­ist upp fyrir manni þegar maður var lít­ill gutti að horfa á myndir þarna í bíó­inu.“

Hvað get­urðu sjaldn­ast stað­ist? „Góða áskorun! Ég elska áskor­anir. Ég er mik­ill keppn­is­maður og til í allskyns rugl. Það hefur oft komið mér í vand­ræði.“ Hlær.

Hvaða fræga ein­stak­ling, lífs eða lið­inn, í mann­kyns­sög­unni mynd­irðu vilja bjóða í kaffi, af hverju og um hvað mynd­irðu vilja tala við við­kom­andi? „Elvis Presley, ekki spurn­ing. Elvis er stór­merki­legur lista­maður sem átti alveg ótrú­legt líf og magn­aðan feril. Ég myndi vilja hitta hann á Graceland og láta elda ofan í okkur upp­á­halds mat­inn hans. Svo myndi ég vilja ræða við hann um umboðs­mann­inn hans og bara almennt um lífið og reyna að átta mig á því hvað kveikti í honum og dreif hann áfram í líf­inu.“

„Verst þætti mér ef fjöl­skyldan þyrfti að samm­ast sín fyrir mig.“

Instagram eða Snapchat? „Ég er mjög „tækni­hræddur“ maður, en ég „skil“ betur út á hvað Instagram gengur.“

Hvaða tjá­merki (emoji) not­arðu oft­ast? „Karl með sól­gler­aug. Svo splæsi ég gjarnan í „klesstan“ hnefa. 😎 👊

Áttu ein­hverja skemmti­lega sögu úr brans­anum svona í lokin? „Ó já.“ Hlær. „Einu sinni var ég feng­inn til að leik­stýra tón­list­ar­mynd­bandi fyrir Júró­vísíon, við lag Eiríks Hauks­sonar, Val­entine Lost og það varð hrein­lega allt brjálað yfir því að hinn rauð­hærði Eiríkur skyldi vera með dökkt hár. Engin vissi hver bæri ábyrgð á því en nokkrum árum seinna rann upp fyrir mér að senni­lega væri ég söku­dólg­ur­inn.

Upp­haf­lega var nefni­lega hug­myndin sú að hafa mynd­bandið í svona svart hvítum Sin City stíl og láta rauða hárið á Eiríki skera sig úr. Þetta var auð­vitað frá­bær hug­mynd. Eina sem þurfti að gera var að lita hárið á Eiríki í ein­hverjum skærum lit svo það væri hægt að ein­angra það frá öðrum litum í eft­ir­vinnsl­unni. Náuningi sem útbjó fyrir gát­lista fyrir tök­urnar á mynd­band­inu nóter­aði þá hug­mynd niður. Þegar nær dró tökum var hins vegar ákveðið að hætta við þetta en það gleymd­ist að láta alla vita. Einn úr tökulið­inu fór því með Eirík í litun á hár­greiðslu­stofu þar sem brugðið var á það ráð að „hressa aðeins“ upp á kapp­ann og útkoman var þetta dökk­rauða hár sem fór svona fyrir brjóstið á hálfri þjóð­inni.
Hér með er það sem sagt upp­lýst að það var ég sem ber ábyrgð á hár­inu á Eiríki í Val­entine Lost vid­eó­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu