Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig tók U-beygju í lífinu – Fann í hjartanu að þetta var rétt

Sólveig tók U-beygju í lífinu – Fann í hjartanu að þetta var rétt
Sólveig Páls­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Rit­höf­und­ur­inn Sólveig Páls­dóttir, sem hefur sent frá sér hverja æsispenn­andi glæpa­sög­una af annarri síð­ustu ár og hlotið góða dóma, var byrjuð á nýrri spennu­bók þegar kór­ónu­veiran komst á flug. Far­ald­ur­inn hafði þau áhrif að Sólveig ákvað að venda kvæði sínu í kross og leita hóf­anna í allt annarri gerð sagna, end­ur­minn­inga­bók, og úr varð Kletta­borgin sem kemur út fyrir jól.

„Ég ákvað gefa sjálfri mér næði til að gera það sem ég fyndi í hjart­anu að væri rétt. Leyfði mér að fylgja ein­fald­lega inn­sæ­inu en það hefur alltaf reynst mér best í líf­inu,“ segir Sólveig um nýju bók­ina í sam­tali við Vikuna.

Kletta­borgin heitir bókin og seg­ist Sólveig vera langt komin með að klára hana. „Ég er á loka­sprett­inum. Er að fín­pússa hana, bæta við og laga, velja myndir og fleira. Alveg dásam­leg vinna og gef­andi en það er eins gott að halda vel á spöð­unum því Kletta­borgin á að koma út núna fyrir jólin, ann­að­hvort í októ­ber eða í byrjun nóv­em­ber þannig að hún flýtur á fullum hraða inn í jóla­bóka­flóðið,“ segir hún létt í bragði.

Varð til í upplausnarástandi

Bókin er sú sjötta sem Sólveig sendir frá sér, en fyrri bækur hennar eru allar í glæpa­sagna­stíl og hafa fengið fínar við­tökur og góða dóma. Fyrir síð­ustu bók sína, Fjötra, hlaut Sólveig Blóð­dropann 2020 en verð­launin eru veitt ár hvert fyrir bestu íslensku glæpa­sögu und­an­far­ins árs. Hvernig stóð á því að svona virtur og vin­sæll glæpa­sagna­höf­undur ákvað skyndi­lega að söðla um?

„Ég var reyndar byrjuð að skrifa nýja glæpa­sögu þegar brast á með COVID-19 far­aldr­inum,“ við­ur­kennir hún, „en mér gekk illa að ein­beita mér við skrifin, þótt ég væri komin með söguramma. Ég bara fann mig ekki í því að vera að skálda upp flókin glæpaplott þegar heim­ur­inn var allt í einu í full­kominni upp­lausn vegna ósýni­legrar veiru. Þannig að ég ákvað því að geyma hug­mynd­ina að spennu­sög­unni til betri tíma og tók mér tíma til að finna út hvað væri rétt.“

Ótrúlegt persónugallerí

Sólveig seg­ist ekki hafa farið að skrifa Kletta­borg­ina fyrr en núna í mars en hún hafi skynjað um leið og hún byrj­aði að hún var að gera það sem hún ætti að gera. Hún hafi líka fundið að bókin hafði búið lengi innra með henni.

Spurð hvort um sé ræða end­ur­minn­ingar eða hrein­rækt­aða ævi­sögu segir hún að Kletta­borg geymi minn­ing­ar­sögur sínar. „Hún hefst þegar ég er fimm ára gömul á leið í sveit austur í Hraunkot í Lóni sem er í Austur-Skafta­fells­sýslu. Ég var nýflutt til Íslands en pabbi minn starf­aði í utan­rík­is­þjón­ust­unni. Ég fer fram og til baka í tíma en frá­sögnin spannar fyrst og fremst árin fram undir tví­tugt eða þegar ég hef nám við Leik­list­ar­skóla Íslands.“

„Ég fundið sterka þörf fyrir stöð­ug­leika, kær­leika og ein­fald­ara líf.“

Að sögn Sól­veigar koma fjöl­margar per­sónur við sögu í bók­inni, fjöl­skylda hennar, vinir og ýmsir þjóð­þekktir ein­stak­lingar. „Svo sem fólkið mitt í sveit­inni, for­eldrar mínir og systk­ini, afi Ásgeir og amma Dóra á Bessa­stöðum en afi var for­seti í sextán ár, Tryggvi Ófeigs­son föð­ur­afi og amma mín Herdís Ásgeirs­dóttir, mágur minn frá Indónesíu, Vala móð­ur­systir mín og mað­ur­inn hennar Gunnar Thorodd­sen, fyrsti kærast­inn, kenn­arar og krakkar í Mela­skóla, Björn skóla­stjóri í Haga­skóla, Þór­bergur Þórð­ar­son, Helgi Skúlason leik­ari, Sig­ur­björn biskup og kirkjukór­inn í sveit­inni, Kvenna­list­inn, Alice Cooper, Stevie Wonder og fleiri. Bókin geymir minn­ing­ar­sögur mínar en fyrst og fremst er hún um dýr­mætar mann­eskjur sem ég vil ekki að gleym­ist.“

Ekki hætt í glæpum

Sólveig tekur fram að þótt hún hafi fylgt inn­sæ­inu og tekið þessa U-beygju frá glæpa­sög­unum sé ekki þar með sagt að hún sé hætt að skrifa þær. „Hreint ekki! Það er svo gaman að finna spenn­una sem hrísl­ast um mig þegar ég skrifa þannig texta en einmitt núna passa þessi skrif mér betur,“ útskýrir hún. „Ég er að kanna nýjar bók­mennta­slóðir og það er gríð­ar­lega spenn­andi. Það er bæði gaman að geta verið ein­læg út frá eigin per­sónu og ekki síður að leyfa mér smá­húmor fyrir sjálfri mér og ver­öld­inni,“ segir hún.

„Eins og ég segi þá eru þetta minn­inga­sögur mínar,“ heldur hún áfram, „og mér finnst að þær eigi erindi inn í nútím­ann í ljósi þess að við erum að end­ur­skoða gild­is­mat okkar. Að minnsta kosti hef ég fundið sterka þörf fyrir stöð­ug­leika, kær­leika og ein­fald­ara líf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu