Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Drekkt fyrir að eignast barn með mági sínum

Drekkt fyrir að eignast barn með mági sínum
Þóra Karítas. Mynd / Saga Sig

Frumraun Þóru Kar­ítasar Árna­dóttur, bókin Mörk – saga mömmu, vakti athygli þegar hún kom út fyrir nokkrum árum, en í henni sagði Þóra Karítas örlaga­ríka sögu móður sinnar. Nú er von á annarri bók frá Þóru sem byggir sömu­leiðis á raun­veru­legum atburðum, aftökum við Drekk­ing­ar­hyl þar sem konum var drekkt fyrir duls­mál og blóð­skömm.

„Þetta er allt frekar óraun­veru­legt núna en á sama tíma ger­ist það svo­lítið hratt. Ég skil­aði inn hand­rit­inu í ágúst sem er svo­lítið seint fyrir jóla­bóka­flóðið en nú er verið að kanna hvort hægt verði að hraða bók­inni í búðir fyrir jól svo já, það er ekki laust við að það séu fiðr­ildi í mag­anum og spenn­andi að vita hvort það náist,“ segir Þóra Karítas sem hefur und­ir­ritað samn­ing við Forlagið vegna útgáfu nýrrar skáld­sögu.

Bókin byggir á raun­veru­legum atburðum, en hún segir sögu Þórdísar nokk­urrar Hall­dórs­dóttur sem hlaut þau skelfi­legu örlög að vera drekkt í Drekk­ing­ar­hyl. „Hug­myndin kvikn­aði í draumi sem ég ákvað að taka mark á,“ segir Þóra Karítas, þegar hún er spurð út í til­urð sög­unnar, „og úr varð að ég valdi að skrifa um eina konu af þeim átján sem voru teknar af lífi á tímum stóra­dóms á Íslandi. Fyrir val­inu varð Þórdís Hall­dórs­dóttir sem end­aði ævina í Drekk­ing­ar­hyl fyrir þá sök að hafa eign­ast barn með mági sínum eftir að hafa verið vinnu­kona á heim­ili systur sinnar.“

„Þessi bók hefur ferð­ast með mér víða og verið hluti af lífi mínu mjög lengi.“

Hún við­ur­kennir að það hafi verið skelfi­legt að lesa sér til um þessa atburði. „Já, það er alveg gott að koma upp úr kaf­inu eftir þetta grúsk,“ segir hún.

Örlagaríkir atburðir

Þetta er önnur bókin sem Þóra Karítas sendir frá sér. Fyrri bók hennar Mörk – saga mömmu kom út árið 2015 og vakti athygli á sínum tíma og hlaut bæði jákvæða dóma og fínar við­tökur. Spurð hvort nýja bókin eigi eitt­hvað skylt með þeirri fyrri segir Þóra Karítas að vissar hlið­stæður séu fyrir hendi. „Já, að því því leyti til að þessi bók er inn­blásin af raun­veru­legri sögu og snýst að mestu um örlaga­ríka atburði í lífi íslenskrar konu,“ útskýrir hún. „Ég tek mér þó mun meira skálda­leyfi í þess­ari bók enda er ég að skrifa um atburði sem áttu sér stað í lok sext­ándu aldar og byrjun þeirrar sautj­ándu.“

Tayler Swift kemur við sögu

Og Þóra Karítas sækir inn­blástur víða, þar á meðal í vin­sæla dæg­ur­laga­texta. „Fyrstu setn­ing­una eða kafl­ann í bók­inni skrif­aði ég eftir að hafa séð í mat­ar­boði, inni á bað­her­bergi, snyrti­veski með áletr­un­inni So don´t you worry your pretty little mind, people throw rocks at things that shine,“ lýsir hún, en seg­ist ekki hafa vitað hvaðan kvótið kæmi, en það hafi hins vegar orðið til þess að hún varð að fara heim að skrifa. „Svo fann ég síðar út, með aðstoð frú Google, að kvótið væri í Taylor Swift og lagið hennar Ours,“ segir hún og hlær.

Löng meðganga

Aðspurð segir Þóra Karítas að bókin hafi verið í vinnslu í nokkurn tíma. „Já, en í tarna­vinnu með löngum pásum inn á milli þar sem ég sinnti öðrum verk­efnum,“ tekur hún fram. „Í maí 2017 fékk ég úthlutað litlu vina­legu lista­manna­húsi hjá Hvera­gerð­isbæ og var þar í heilan mánuð. Bóka­safnið í Hvera­gerði reynd­ist vera mik­ill gull­moli, það átti allar bæk­urnar sem ég þurfti að kíkja í til að kom­ast af stað, ann­ála auk bóka sem inni­héldu greinar sem höfðu verið skrif­aðar um Þór­dís­ar­málið. Svo vann ég einnig að bók­inni í einn mánuð í Kjar­vals­stofu í októ­ber sama ár, þannig að þessi bók hefur ferð­ast með mér víða og verið hluti af lífi mínu mjög lengi.“

Fékk spark í rassinn

Þóra Karítas segir að eflaust hefði hún ekki klárað bók­ina nema vegna þess að hún hlaut þrisvar sinnum úthlutun úr launa­sjóði lista­manna í þrjá mán­uði í senn, einka­styrk sem barst óvænt og svip­aði til einna lista­manna­launa, og svo frá Rit­höf­unda­sam­band­inu loka­styrk til að klára loka­sprett­inn. „Fyrir allt þetta er ég afar þakk­lát,“ segir hún og brosir, „því það gaf mér spark í rass­inn og styrkti ein­beit­ingar-, þrjósku- og úthalds­vöðvann.“

Hvenær reiknar hún svo með að bókin komi fyrir sjónir almenn­ings? „Vonandi í vetur,“ segir hún von­góð, „eða í besta falli þegar hún er alveg til­búin, það er að segja eftir próf­arka­lestur, umbrot, kápu­vinnu og prentun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu