Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Gætu opnað dyr og ný tækifæri“

„Gætu opnað dyr og ný tækifæri“
Aníta Hirlekar vann til verð­launa á The International Design Awards. Vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins fer verð­launa­af­hend­ingin fram í Los Angeles á næsta ári. Aníta stefnir á að fara út og veita verð­laun­unum við­töku ef aðstæður leyfa. Mynd / Saga Sig

Aníta Hirlekar vann til gull­verð­launa á The International Design Awards, árlegri upp­skeru­há­tíð arki­tekta og hönn­uða.

„Það er ótrú­lega jákvætt að störf manns fái svona athygli og svo er alltaf frá­bært að fá við­ur­kenn­ingu fyrir vinn­una sína, þetta er bara rosa­legur heiður,“ segir Aníta Hir­lekgar fata- og textíl­hönn­uður um sig­ur­inn.

The International Design Awards eru afhent í Banda­ríkj­unum ár hvert af alþjóð­legri dóm­nefnd og veitt þeim sem þykja skara fram úr á sviði arki­tekt­úrs, inn­an­húss­hönn­unar, graf­ískrar hönn­unar, vöru­hönn­unar og fata­hönn­unar. „Þetta eru alþjóð­leg keppni sem fer fram í Los Angeles í Banda­ríkj­unum í því skyni að hvetja unga og upp­renn­andi hönn­uði til dáða og vekja á þeim athygli,“ útskýrir Aníta, sem vann til gull­verð­launa í flokki Pret-A-Porter Woman fyrir haust- og vetr­ar­línu sína sem kom á markað á síð­asta ári.

Í umsögn dóm­nefndar kemur fram að lita­sam­setn­ing lín­unnar sé ein­stök, óvenju­leg og heill­andi og heim­ur­inn sem Aníta hafi skapað í kringum hana sé sér­stak­lega eft­ir­tekt­ar­verður „Mér finnst ótrú­lega gaman að línan skyldi heilla dóm­nefnd­ina, sér­stak­lega þar sem ég lagði mikla vinnu í hana,“ segir hún. „Ég var alveg tvö og hálft ár að vinna hana, frá því að ég skiss­aði hana upp og þar til hún fór í fram­leiðslu.“

„Stílastar erlendra stjarna hafa verið að senda mér skila­boð, þeir vilja kaupa föt á við­skipta­vini sína.“

Spurð hver sé hug­myndin að baki lín­unni segir Aníta að hún hafa byrjað sem eins­konar andóf gegn klisjum innan tísku­heims­ins. „Þar er búið að vera mjög mikið í tísku að nota fal­leg blóm og plöntur sem inn­blástur og ég vildi búa til abstrakt blóm sem væru eins­konar andóf gegn þeirri vin­sælu hug­mynd. Ég fór því að gera mínar eigin útgáfur í textíl og þróa þær og úr varð þessi lit­ríka haust- og vetr­ar­lína.“

Úr haust- og vetr­ar­línu Anítu Hirlekar. Mynd / Viðar Logi

Aníta tekur fram að fatn­að­ur­inn sé allur hann­aður og þró­aður verk­stæði hennar á Íslandi. „Þar hand­geri ég textílprufur og þróa mynstur, en mynstrin sem eru prentuð á flík­unar eru öll hand­máluð, sem krefst mik­illar vinnu. Það gerir líka að verkum að þótt flíkur séu gerðar úr sama mynstri þá er hver og ein ein­stök.“


Úr haust- og vetr­ar­línu Anítu Hirlekar. Mynd / Viðar Logi

Línan var upp­haf­lega frum­sýnd á Hönn­un­ar­Mars í fyrra og hlaut góðar und­ir­tektir og Aníta neitar ekki að henni þyki skemmti­legt að nú, heilu ári síðar, skuli hún hafa heillað dóm­nefnd úti í heimi. „Já, mér finnst ótrú­lega gaman og magnað að ég skuli hafa frum­sýnt lín­una hérna og Íslandi og nú sé dóm­nefnd úti að tala um hana. Það sýnir bara enn og aftur að íslensk hönnun er að fá athygli langt út fyrir land­stein­ana,“ segir hún glað­lega.

Úr haust- og vetr­ar­línu Anítu Hirlekar. Mynd / Viðar Logi

Og í kjöl­far sig­urs­ins hafa við­brögðin ekki látið á sér standa. „Ég hef fundið fyrir miklum áhuga frá Banda­ríkj­unum. Fólk úr öðrum geirum í hönn­un­ar­heim­inum hefur sett sig í sam­band við mig með það fyrir augum að skoða mögu­legt sam­starf og stílastar erlendra stjarna hafa verið að senda mér skila­boð, þeir vilja kaupa föt á við­skipta­vini sína. Þessi banda­ríski heimur er svo­lítið fjar­lægur og það getur verið erfitt að nálg­ast hann þannig að þessi verð­laun gætu opnað dyr og ný tæki­færi,“ segir Aníta, full til­hlökk­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu