Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Krabbameinsfélagið krefst þess að frétt verði fjarlægð

Krabbameinsfélagið krefst þess að frétt verði fjarlægð

Krabba­meins­fé­lagið hefur kraf­ist þess að Mannlíf fjar­lægi frétt um fyrr­ver­andi starfs­mann félags­ins sem félagið hefur sagt bera ábyrgð á mis­tökum við frumu­grein­ingar hjá félag­inu. Mannlíf mun ekki verða við þeirri kröfu.

Í stjórn Krabba­meins­fé­lags­ins sitja Val­gerður Sig­urð­ar­dóttir, Árni Ein­ars­son, Halldóra Björg Sæv­ars­dóttir, Kristín Hall­dórs­dóttir, Sigríður Zoëga, Sigurður Hann­es­son og Þor­steinn Pálsson.

Starfs­mað­ur­inn hafði orð á því í fyrr­nefndu við­tali að sér sárn­aði mjög sá varn­ar­leikur félags­ins að benda á hana eina til saka. Í til­kynn­ingu félags­ins er fram­koma félags­ins rétt­lætt.

„Félagið hefur legið undir ámæli fyrir að greina frá því að mis­tökin hafi verið gerð af einum starfs­manni. Það var ekki gert til að koma sök á starfs­mann­inn, heldur til að skýra í hverju mis­tökin fólust,“ segir þar.

Félagið full­yrðir að það hafi staðið við bakið á Þórdísi. Hún sagði þó sjálf að fram­koma félags­ins hafi bætt gráu ofan á svart. „Ég gerði mann­leg mis­tök en það er líka hvernig var staðið að þessu og fjöldi sýna á dag sem maður þurfti að greina. Að félagið bendi bara á mig finnst mér sár­ast og erfitt að kyngja. Ég er enn með kökk­inn í háls­inum,“ sagði starfs­mað­ur­inn fyrr­ver­andi í gær.

Sjá einnig: Einka­við­tal við Þórdísi hjá Krabba­meins­fé­lag­inu: „Enn með kökk­inn í háls­inum“

Um þetta segir Krabba­meins­fé­lagið: „Undir engum kring­um­stæðum hefur Krabba­meins­fé­lagið eða stjórn­endur þess haldið því fram að starfs­mað­ur­inn bæri þessa ábyrgð. Skýrt hefur verið tekið fram að Krabba­meins­fé­lagið beri ábyrgð á mis­tök­unum. Krabba­meins­fé­lagið hefur verið í góðum sam­skiptum við starfs­mann­inn alveg frá því að málið kom upp í sumar og veitt honum stuðn­ing. Fram­kvæmda­stjóri félags­ins ræddi aftur við hann í dag til að biðja hann afsök­unar á því að hann hafi dreg­ist inn í umfjöllun um málið með þessum hætti og til að upp­lýsa hann um hvernig það kom til.“

Líkt og fyrr segir þá hefur Krabba­meins­fé­lagið kraf­ist þess að við­tal við Þórdísi verði fjar­lægt. Þess má geta að rit­skoðun og þöggun félags­ins var það sem kom Mannlífi á sporið um hvaða starfs­mann ræddi. Félagið fjar­lægði til­kynn­ingu á eigin vef sem fjall­aði um að hún væri að láta af störfum. Sú til­kynn­ing var fyrst birt í sumar en er enn aðgengi­leg á Google. Í þeirri til­kynn­ingu var haft eftir Ingi­björgu Guð­munds­dóttur, yfir­lækni á frumu­rann­sókn­ar­stofu:

„Hún reynd­ist fyr­ir­mynd­ar­starfs­maður sem hefur unnið störf sín af mik­illi kost­gæfni og við kveðjum hana með miklu þakk­læti – þó svo að við munum nú von­andi hitt­ast á öðrum vett­vangi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag