Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hildur fékk sjokk: „Margir hreinlega uggandi yfir ástandinu“

Hildur fékk sjokk: „Margir hreinlega uggandi yfir ástandinu“
Hildur Mist, rit­stjóri og rekstr­ar­stjóri versl­ana Rauða kross­ins. Mynd / Tara Tjörva­dóttir

Mikil aukn­ing hefur orðið í sölu á not­uðum fötum á Íslandi. Rekstr­ar­stjóri versl­ana Rauða kross­ins segir fólk vera með­vit­aðra um umhverf­is­leg áhrif fata­só­unar og vilja leggja sitt af mörkum til að sporna við henni. Að kaupa notuð föt snú­ist ekki lengur bara um lúkkið.

„Það er miklu meira að gera núna en síð­ustu ár og miss­eri. Við­skipta­vinum hefur fjölgað rosa­lega frá því í fyrra og með sama áfram­haldi verða þeir eflaust enn fleiri á næsta ári,“ segir Hildur Mist, rekstr­ar­stjóri versl­ana Rauða kross­ins. Hildur segir mikla vax­andi eft­ir­spurn eftir not­uðum fötum, en Rauði kross­inn rekur sautján versl­anir með notuð föt, fylgi­hluti og nytja­hluti, þar af fimm á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Snýst ekki lengur bara um lúkkið

Spurð út í ástæð­una fyrir aukn­ing­unni segir Hildur breytt hug­ar­far hafa mikið að segja, vegna auk­innar umræðu í sam­fé­lag­inu sé fólk í vax­andi mæli orðið með­vitað um neyslu og nýt­ingu og umhverf­is­leg áhrif fata­só­unar.
„Hér áður fyrr, til dæmis þegar ég var í mennta­skóla þá var alveg í gangi ein­hver umræða um þessa hluti en þetta snérist samt meira um að lúkkið á þeim tíma, að kaupa sér vin­tage föt, vera töff og skera sig svo­lítið úr fjöld­anum. Núorðið snýst þetta meira um umhverf­is­sjón­ar­mið. Auðvitað eru notuð föt alveg í tísku hjá yngra fólki líka, fólki á mennta­skóla­aldri og í þeim hópi, ég segi það ekki, en fleiri kaupa sér notuð föt af því að þeir vilja sporna við fata­sóun. Margir eru hrein­lega ugg­andi yfir ástand­inu í heim­inum í dag, loft­lags­vánni og fleiru og vilja leggja sitt af mörkum til að bjarga fram­tíð kom­andi kyn­slóða.“

„Margir eru hrein­lega ugg­andi yfir ástand­inu í heim­inum í dag, loft­lags­vánni og fleiru og vilja leggja sitt af mörkum til að bjarga fram­tíð kom­andi kyn­slóða.“

Sjálf seg­ist Hildur velta þessum hlutum mikið fyrir sér, ekki síst eftir að hún hóf störf hjá Rauða Kross­inum. „Ég fékk svo­lítið sjokk þegar ég fór að vinna hérna og sá hvað fer mikið í gámana,“ játar hún. „Nú kaupi ég nán­ast bara notuð föt, með ein­hverjum und­an­tekn­ingum þó, bæði á sjálfa mig og son minn, við erum oft í ein­hverju not­uðu.“

„Við seljum auð­vitað allt milli him­ins og jarðar og oft slæð­ist með merkja­vara, jafn vel mjög lítið notuð. Ef við fáum eitt­hvað alveg spes setjum við það á sér­stök upp­boð á Facebook undir heit­inu ger­semi vik­unnar. Uppboðið stendur þá yfir í viku og sá sem hæst býður fær vör­una í lok hennar. Þau eru mjög vin­sæl.“

Fatauppboð á Facebook vinsæl

En er eitt­hvað sér­stakst sem selst betur en annað í versl­unum Rauða kross­ins. „Það er nú bara mis­jafnt,“ segir hún. „Við seljum auð­vitað allt milli him­ins og jarðar og oft slæð­ist með merkja­vara, jafn vel mjög lítið notuð. Ef við fáum eitt­hvað alveg spes setjum við það á sér­stök upp­boð á Facebook undir heit­inu ger­semi vik­unnar. Uppboðið stendur þá yfir í viku og sá sem hæst býður fær vör­una í lok hennar. Þau eru mjög vin­sæl.“

Hildur segir að með auk­inni umræðu um neyslu og nýt­ingu hafi svoköll­uðum loppu­búðum líka fjölgað á land­inu. En hver er mun­ur­inn á þessu tvennu, loppu­búðum og versl­unum Rauða kross­ins? „Stærsti mun­ur­inn er sá að við hjá Rauða kross­inum seljum fatnað sem Íslend­ingar gefa, föt sem þeir eru hættir að nota, við seljum þau og aðra nytja­hluti í búð­unum okkar og allur ágóði rennur í verk­efni á okkar vegum og skilar sér 100 pró­sent til mann­úð­ar­mála. Það er eng­inn launa­kostn­aður í spil­inu þar sem sjálf­boða­liðar standa vakt­ina í búð­unum okkar. Á meðan loppu­búð­irnar virka þannig að maður pantar sér bás og leigir hann í til­tek­inn tíma, mætir með vör­una og selur hana og versl­unin fær kannski fimmtán pró­sent af sölu­and­virð­inu,“ bendir hún á.

Rauði kross­inn gaf á dög­unum út nýtt blað, End­ur­nýtt líf, í þeim til­gangi að vekja fólk til umhugs­unar um eigin neyslu og þær ger­semar sem leyn­ast í versl­unum Rauða kross­ins. „Þetta er annað tölu­blað,“ segir Hildur. „Það er stút­fullt af áhuga­verðu efni, m.a. tísku­þáttum með not­uðum fötum og við­tölum við fólk sem er að pæla í þessum hlutum. Við erum að reyna að fá fólk til að staldra við og spá í hvernig það geti tekið þátt.“

Fagnar fjölgun loppubúða

Hildur tekur fram að hún fagni komu loppu­búða og ann­arra versl­ana sem selja notuð föt og nytja­hluti. „Við erum oft spurð hvort við finnum ekki fyrir meiri sam­keppni eftir að þessar verl­anir spruttu fram á sjón­var­sviðið, hvort við fáum ekki minna af vörum til okkar, en okkar stóra áhyggju­efni á ekki að vera hvort við séum að missa af ein­hverju og það er það auð­vitað ekki, því það er allt flæð­andi í dóti og textíl og allir fata­skápar yfir­fullir á Íslandi. Það er bara gott að fleiri séu í þessum bransa því þá geta neyt­endur valið úr fleiri versl­unum á þessu sviði og við sem stöndum í þessu verðum stærri og sýni­legri hluti af mark­aðnum. Það er gott. Því fleiri sem standa í sam­ein­ingu gegn umhverf­is­mengun og fata­sóun því betra.

Enda stöndum við á tíma­mótum hvað það varðar, eins og flestir sjá sem fylgst hafa með fréttum síð­ustu ár. Þetta er ekki eitt­hvert grín, þetta er háal­var­legt mál og fram­tíð kom­andi kyn­slóða er í húfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu