Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einar og Kjartan fordæma Fréttablaðið: „Furðuleg frétt og hreint afturhvarf til dimmustu fornaldar“

Einar og Kjartan fordæma Fréttablaðið: „Furðuleg frétt og hreint afturhvarf til dimmustu fornaldar“
Einar Þór Jónsson, fram­kvæmda­stjóri HIV Ísland

„Þetta er nú alveg furðu­leg frétt og hreint aft­ur­hvarf til ótta og dimm­ustu forn­aldar að ímynda sér að það sé hægt að smit­ast af þessum sjúk­dómum með þessum hætti,“ segir Einar Þór Jónsson, fram­kvæmda­stjóri HIV Ísland, um frétta­flutn­ing Frétta­blaðs­ins sem slær því upp í fyr­ir­sögn að far­þegi í strætó sem hrækti framan í bíl­stjóra sé með bæði HIV og lifr­ar­bólgu C.

Aðstoð­ar­maður land­læknis, Kjartan Hreinn Njálsson, vekur sömu­leiðis máls á frétta­flutn­ingnum á Twitter í morgun með þeim orðum að „þessi ömur­lega fyr­ir­sögn“ kalli á áminn­ingu um að bæði HIV og lifr­ar­bólga smit­ist með blóði en ekki munn­vatni. Þess má geta að Kjartan er fyr­ir­ver­andi rit­stjóri blaðs­ins.

Vísir greindi fyrst frá mál­inu í morgun með við­tali við strætó­bíl­stjór­ann, Eirík Bark­ars­son, sem varð fyrir árásinni í gær­kvöldi. Segir hann þrjá menn í ann­ar­legu ástandi hafa komið inn í vagn­inn. Einn þeirra hafi verið með leið­indi sem end­uðu á þann veg að hann hrækti framan í Eirík.

Frétta­blaðið tekur málið upp og slær upp í fyr­ir­sögn að árás­armað­ur­inn sé með HIV og lifr­ar­bólgu C, en strætó­bíl­stjór­inn mun hafa fengið þær upp­lýs­ingar frá lög­reglu
Einar Þór segir að í fyr­ir­sögn­inni birt­ist sjúk­dóma­ótti sem minni á gömlu dag­ana þegar HIV-smit­aðir voru jað­ar­settir og urðu fyrir miklum for­dómum í sam­fé­lag­inu. „Eflaust hefur þessi sjúk­dóma­ótti rumskað núna út af COVID, en þetta eru bara gömlu tím­arnir að banka upp á og svona fárán­legur frétta­flutn­ingur gerir ekki annað en að vekja upp gamla for­dóma og mis­skiln­ing um ákveðna sjúk­dóma.“

Sjálfur greind­ist Einar Þór með HIV á 9. ára­tugnum þegar veiran var talin jafn­gilda dauða­dómi. „Þá var ótt­inn auð­vitað miklu meiri og for­dóm­arnir líka því HIV tengd­ist jað­ar­hópum. Þetta var alveg hrylli­legur tími.“

Í dag séu hins­vegar um 98-99% allra HIV-greindra á Íslandi í lyfja­með­ferð sem heldur sjúk­dómnum niðri og gerir það að verkum að við­kom­andi smita ekki. „Þetta er það sem við erum stöðugt að minna á hjá sam­tök­unum, að fólk með HIV hér á Íslandi er á lyfjum og sjúk­dómnum er haldið alveg í skefjum. Svo það þarf ekk­ert að sýna frek­ari aðgát en hver annar í kyn­lífi eða annarri hegðun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag