Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Get ekki enn skilið fjandskap hennar“

Lífsreynslusaga úr Vikunni:

Ég var að verða tvítug þegar mamma dó. Ég var í menntaskóla úti á landi og langaði mest að hætta í honum til að styðja pabba í sorginni. En hann talaði mig til þar sem ég átti bara einn vetur eftir til stúdentsprófs. Þegar ég kom heim í jólafrí var ný kona flutt inn á heimilið og allt var breytt.

Mamma hafði verið mjög slöpp í margar vikur. Þegar hún loks­ins dreif sig til læknis kom í ljós að hún var með bráða­hvít­blæði. Um vorið dó hún. Við pabbi syrgðum hana sárt, hann var eins og væng­brot­inn fugl við lát hennar. Ég var í fram­halds­skóla úti á landi þar sem mamma ólst upp, í skól­anum hennar, og ég átti bara ár eftir í stúd­ent­inn. Ég spurði pabba hvort ég ætti ekki að ljúka nám­inu í bænum til að geta verið hjá honum en hann sagði að mamma hefði viljað að ég kláraði námið þarna. Það varð úr. Ég heim­sótti pabba stundum um helgar og ég fann að honum leið betur þegar þegar leið á árið en ekki grun­aði mig að ný kona væri komin í spilið, hann minnt­ist ekki á neitt slíkt.

Jóla­fríið mitt hófst upp úr miðjum des­em­ber og ég dreif mig strax heim. Pabbi sótti mig á BSÍ og það urðu miklir fagn­að­ar­fundir. Á leið­inni sagð­ist hann vilja segja mér svo­lítið. Svo sagði hann mér vand­ræða­legur frá því að hann hefði kynnst ynd­is­legri konu fyrir tveimur mán­uðum, konu sem hefði algjör­lega bjargað honum upp úr sorg­inni. Konan væri nýflutt inn á heim­ilið með syni sína, frá­bæra stráka sem væru 10 ára og 7 ára. Okkur ætti örugg­lega öllum eftir að koma vel saman. Ég var bæði stein­hissa og slegin yfir þessu en vildi þó alls ekki hljóma eins og eig­in­gjarn krakki svo að ég óskaði honum til ham­ingju með þetta í fát­inu.Mér fannst þó að hann hefði mátt segja mér frá þessu fyrr.

Undarlegt jólafrí

Heimili mitt hafði breyst. Það var alveg eðli­legt, enda hlaut konan að eiga hús­gögn og per­sónu­lega muni sem hún vildi hafa með sér. Sem betur fer var her­bergið mitt óbreytt. Mamma hafði haft gaman af því að gera það fal­legt, látið m.a. ramma inn teikn­ingar eftir mig frá því ég var barn, heklað fal­legt teppi á rúmið mitt og sett smekk­legan svip sinn á ung­meyj­ar­her­bergið mitt.

Nýja konan, sem ég ætla að kalla Stellu í þess­ari frá­sögn, hafði verið úti í búð og kom fljót­lega heim. Hún heils­aði mér kurt­eis­lega með handa­bandi og kynnti sig. Svo fór hún inn í eld­hús. Pabbi spurði mig spenntur hvernig mér lit­ist á hana og ég sagði að hún virk­aði voða indæl. Ég tal­aði þó þvert um hug mér, fannst hún frekar kulda­leg í fasi en það gat stafað af feimni. Það átti þó eftir að koma í ljós að Stella var hreint ekk­ert ánægð með til­veru mína og mér fór fljót­lega að líða eins og mér væri ofaukið á eigin heim­ili.

Jóla­fríið var eig­in­lega algjör martröð. Stella var yfir­leitt skárri við mig þegar pabbi heyrði til en þess á milli yrti hún varla á mig. Ég var almenni­leg við hana og lang­aði til að kynn­ast henni en hún gaf ekk­ert færi á sér.

„Mér fór smám saman að finn­ast eins og ég hefði misst hann líka.“

Ég er alls ekki feit en mætti þó alveg losna við nokkur kíló. Stella fór að stríða mér á því og sagði kannski: „Heldurðu að þú hafir gott af því að fá þér aftur á diskinn?“ „Eru þetta ekki aðeins of þröngar galla­buxur á þig? Svona buxur eru bara fyrir þær grönnu!“ Það sveið undan þessu en ég reyndi að brosa og láta á engu bera. Ég er frekar feimin að eðl­is­fari og var enn við­kvæm eftir móð­ur­miss­inn. Það síð­asta sem ég vildi gera var að bresta í grát yfir ein­hverju sem Stella segði við mig, ég veit að pabbi hefði orðið alveg eyði­lagður, ég fann hvað hann lang­aði til að allt gengi upp. Mér fór smám saman að finn­ast eins og ég hefði misst hann líka. Hann heyrði stundum þegar Stella stríddi mér en fannst þetta bara góð­lát­legt grín. Hann hélt að við værum að nálg­ast hvor aðra með þessu. Ég var auð­vitað sér­lega við­kvæm fyrir öllu áreiti á þessum tíma en ég held samt að undir öðrum kring­um­stæðum hefði þetta heldur ekki verið létt­bært. Synir Stellu voru fínir og okkur kom ágæt­lega saman. Mér fannst Stella ekki ánægð með það og hún kall­aði iðu­lega á strák­ana og bað þá um að fara út með ruslið eða vinna við­vik fyrir sig ef þeir spjöll­uðu við mig.

Ég bauðst til að ryk­suga á Þor­láks­messu og vand­aði mig mikið við það. Mér sárn­aði mjög þegar Stella ryksug­aði allt nokkrum tímum seinna með písl­ar­vætt­is­svip á and­lit­inu, eins og þetta hefði verið svona illa gert hjá mér. Hún sagð­ist ekki geta skúrað nema það væri almenni­lega ryksugað.
Pabbi gaf mér góða jóla­gjöf og að auki væna pen­inga­upp­hæð. Ég sá á Stellu að henni mis­lík­aði þetta mjög. Ég vildi að pabbi hefði laumað þessu til mín þegar hún sá ekki til.

Þegar allir voru komnir upp í rúm á jóla­nótt heyrði ég að Stella fór að skamma pabba fyrir að gefa mér pen­ing­ana. Ekki hefði hann gefið strák­unum hennar svona mikið og það væri ljótt að gera upp á milli barn­anna. Ég heyrði að pabbi svar­aði rólega að ég væri í skóla og þyrfti á pen­ingum að halda. Stellu fannst nóg að hann borg­aði skóla­bækur og heima­vist­ar­gjöld fyrir mig. Ég grúfði mig niður í kodd­ann minn og hélt fyrir eyrun til að heyra ekki meira.

Nýtt heimili

Það var léttir að kom­ast aftur í skól­ann eftir ára­mótin. Ég fór ekki til pabba og Stellu í páska­frí­inu, heldur ein­beitti mér að nám­inu. Við pabbi hringdum oft hvort í annað og spjöll­uðum saman. Í einu sím­tal­inu sagði hann mér að íbúðin væri komin í sölu. Stella átti íbúð sem hún ætl­aði að selja líka og stefnan var sett á rað­hús, jafn­vel ein­býl­is­hús. Hann bætti við að það yrði örugg­lega auka­her­bergi fyrir mig á nýja heim­il­inu. Þetta með auka­her­bergið stakk mig og ég fór að átta mig á því að líf mitt yrði aldrei samt. Ég var nátt­úr­lega orðin tví­tug og í raun full­orðin en mér fannst hlut­irnir ganga heldur hratt fyrir sig. Gamla lífið mitt var farið að lið­ast í sundur á ógn­ar­hraða. Ég þroskað­ist hratt þessa mán­uð­ina.

„Hann skildi ekki að þau höfðu fleygt hlutum sem minntu mig á mömmu, eins og hekl­aða teppið sem hún gaf mér þegar ég var 12 ára og ótal margt fleira.“

Eftir stúd­ents­prófið flutti ég heim til pabba og Stellu. Ég hafði ekk­ert val, þetta var eina heim­ilið sem ég átti. Þau voru flutt í lítið og sætt rað­hús og mín beið lítið gesta­her­bergi inn af for­stof­unni. Her­bergið var ágætt en ég fékk áfall þegar ég átt­aði mig á því að öllu gamla dót­inu mínu hafði verið fleygt í flutn­ing­unum. Bækurnar mínar, teikn­ing­arnar og margt fleira per­sónu­legt hafði endað í Sorpu. Ég fór að gráta þegar ég átt­aði mig á þessu og pabbi varð alveg miður sín. „Við héldum að þú vildir ekki púkka upp á eitt­hvert barna­dót, orðin þetta gömul,“ sagði hann. Hann skildi ekki að þau höfðu fleygt hlutum sem minntu mig á mömmu, eins og hekl­aða teppið sem hún gaf mér þegar ég var 12 ára og ótal margt fleira. Hann bað mig inni­lega fyr­ir­gefn­ingar. Stella hnuss­aði bara. Hún fór að vera hryss­ings­leg við mig þótt pabbi heyrði til en var svo sem ekki mikið skárri við syni sína, hún gat verið afar kvik­ind­is­leg við þá. Pabbi hló stundum og sagði að hún hefði svartan húmor en átt­aði sig ekki á því hvað hún var sær­andi.

Þetta sumar bjó ég heima og vann eins og skepna. Sam­skipti okkar Stellu voru í algjöru lág­marki og ég sá heldur ekki mikið af pabba. Um haustið fór ég í HÍ. Ég var svo heppin að fá her­bergi í stúd­enta­görð­unum. Ég vissi innra með mér að ég myndi aldrei flytja heim aftur.

Ég hélt næstu jól með kærast­anum mínum, ynd­is­legum strák sem ég kynnt­ist í skól­anum og sem er reyndar mað­ur­inn minn í dag. Tengda­mamma umvafði mig frá fyrstu stundu og þótt ég hefði ekki talað um þessi mál við hana átt­aði hún sig á þessu sjálf og tal­aði um ljóta fram­komu við móð­ur­laust barn. Henni fannst pabbi litlu betri en Stella og fór ekki ofan af því þótt ég reyndi að verja hann.

Ég hef reynt að setja mig í spor Stellu en get ekki enn skilið fjand­skap hennar út í við­kvæma mennta­skóla­stelpu sem var í sárum. Pabbi var svo gjör­sam­lega blind­aður af ást að hann tók ekki eftir neinu eða kannski vildi ekki taka eftir neinu. Það er ekki í eðli mínu að vera með læti, ann­ars hefði ég kannski getað breytt ástand­inu eitt­hvað, hver veit, eða gert illt verra.

Ég á mína eigin fjöl­skyldu í dag, eign­að­ist ynd­is­legan son með mann­inum mínum. Við pabbi erum alltaf góðir vinir en mér finnst erfitt að heim­sækja þau Stellu! Ég sam­gleðst pabba þrátt fyrir allt, hann er voða ham­ingju­samur með Stellu sinni. Mér finnst bara leitt að hún skuli hafa litið á mig sem ógnun og reynt með öllum ráðum að losna við mig. Henni tókst það en samt er hún alltaf frekar leið­in­leg í þau fáu skipti sem ég kem í heim­sókn. Það er hennar mál, hún er hætt að koma mér úr jafn­vægi og ég svara henni fullum hálsi en þó af fyllstu kurt­eisi. Það virð­ist virka einna best á hana, hún verður kurt­eis á móti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu