Eftir / Olgu Björt Þórðardóttur
Einhvern tíma var mér sagt að líkja mætti sjálfstrausti við þrífættan stólkoll. Stólfæturnir tákni færni, viðurkenningu og ábyrgð. Sé einn fótur tekinn undan stólnum geti hann einfaldlega ekki staðið.
Færni eru t.d. styrkleikar okkar, þekking, reynsla og menntun. Viðurkenning tengist því að það sem við erum og gerum hafi tilgang og við séum metin að verðleikum. Okkar eigin viðurkenning er einna mikilvægust þótt við hrökkvum stundum í þann gír að verða okkar hörðustu gagnrýnendur. Hugtakið ábyrgð er einnig mikilvægt en stundum misskilið. Við þurfum eðlilega að uppfylla skyldur okkar í hlutverkunum sem við erum í hverju sinni og gerðar eru kröfur til okkar þegar við tökum að okkur störf og verkefni.
Öll erum við breysk; við rekum okkur á, tökum skrýtnar ákvarðanir, gerum upp á bak í samskiptum og fjármálum og gleymum að gefa okkur tíma til að hlúa að heilsunni. Það felst ábyrgð í því að játa að hafa ráfað af leið, viðurkenna mistök sín og gjörðir. Að taka ábyrgð á eigin lífi merkir einnig að sleppa taki af einhverju/m sem ekki verður stjórnað og fyrirgefa sjálfum sér og öðrum. Það krefst hugrekkis að taka fyrsta mögulega skrefið til sátta en getur skilað sé margfalt til baka.
Það felst einnig ábyrgð og oft heilmikil áskorun í því að taka öðrum eins og þeir eru, leyfa þeim að fljúga eins og þeir eru fiðraðir, sérstaklega þegar það er fólk sem er ólíkt okkur í eðli, skoðunum og gjörðum. Reyna í staðinn að gefa styrkleikum þeirra meiri gaum og jafnvel hrósa þeim fyrir þá. Það er einfaldlega hollara fyrir hjartað, ónæmiskerfið og geðheilsuna. Og langoftast verða samskiptin meira gefandi í kjölfarið.
Á þessum stórfurðulegu og krefjandi tímum, eins og núna, þurfum við mörg að hafa okkur öll við með að gera okkar besta til að fara sem best með okkur. Við kunnum ótal margar aðferðir til þess en gefum okkur gjarnan ekki tíma. Við leitum jafnvel aðstoðar hjá sérfræðingum eða stuðnings hjá fólki í innsta hring sem við treystum og dæmir okkur ekki.
Við erum öll að glíma við eitthvað en getum öll haft mikilvæg áhrif. Sýnum sjálfum okkur og öðrum meiri skilning, nærgætni, hlýju, hvatningu og allt það sem getur hjálpað til með að draga fram það besta mögulega í hverjum og einum. Í því felast einnig kjörin tækifæri til að hlusta á aðra, upplifa þá og læra af þeim. Tengslamyndunin sem á sér stað í samskiptum við fólk sem við kynnumst – og í dýpri samskiptum við það fólk sem við þekkjum fyrir, veitir nýja og ferska sýn á lífið.
Við lærum jafnvel eitthvað sem eflir færnina, eykur viðurkenninguna og skerpir á ábyrgðinni.
Höfundur er útgefandi, ritstjóri, stundakennari og tengiliður FKA í útgáfunefnd































Athugasemdir