Þrátt fyrir að 18 ár eru liðin frá því að auðkonan Sonja Zorilla lést og stofnaður var minningarsjóður í hennar nafni er vefsíða sjóðsins enn í smíðum. Samkvæmt erfðaskrá áttu auðævi hennar að renna í sjóð til styrktar fátækum börnum.
Sonja Zorila hagnaðist vel á viðskiptum á Wall Street. Minningarsjóði hennar, Sonja Foundation, var ætlað að styrkja langveik börn á Íslandi og í Bandaríkjunum og hefur verið fjallað um að eignir Sonju um aldamótin hafi verið um tíu milljarðar króna. Lítið sem ekkert hefur enn fengist uppgefið um sjóðinn sem varð til við andlát auðkonunnar.
Allt frá því Sonja lést hefur leyndarhjúpur verið um eignir hennar og ekkert spurts til sjóðsins eða úthlutana úr honum. Guðmundur A. Birgisson, frændi Sonju og annars sjóðsstjóranna, hefur sjálfur farið undan í flæmingi þegar fjölmiðlar hafa spurt um sjóðinn eða afdrif eignanna í gegnum árin. Allt frá því Sonja lést árið 2002 er minningarsjóður hennar enn í sama myrkri og hann hefur verið undanfarin 18 ár.
John J. Ferguson, bandarískur lögmaður auðkonunnar heitinnar Sonju Zorilla, aðskilur sig alfarið frá viðskiptum Guðmundar A. Birgissonar, oftast kenndum við Núpa í Ölfusi, sem hefur játað á sig skattsvik og peningaþvætti. Lögmaðurinn segist bæði undrandi og vonsvikinn að heyra af því hvernig er komið fyrir kollega sínum hjá minningarstjóði Sonju.
Ferguson lögmaður neitar Mannlífi einnig um aðgang að sjóðsyfirliti, Sonja Foundation, góðgerðasjóði auðkonunnar. „Þetta eru trúnaðarupplýsingar og eru því ekki ætlaðar til opinberrar birtingar,“ sagði Ferguson í samtali við Mannlíf.































Athugasemdir