Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég sá að hann var á barmi taugaáfalls af þreytu og álagi“

Vinur minn var rétt um tví­tugt þegar hann kynnt­ist jafn­öldru sinni og stofn­aði fjöl­skyldu með henni. Ástin ent­ist ekki lengi en það var hæg­ara sagt en gert að slíta sam­band­inu eftir að tvö börn voru komin til sög­unnar.

Mér leist ekk­ert illa á Nínu þegar Gummi kynnti mig fyrir henni en fljót­lega eftir að þau fóru að búa saman kom í ljós að hún glímdi við mikla and­lega erf­ið­leika, m.a. þung­lyndi og svo drakk hún líka mikið. Hún var á lyfjum við þung­lynd­inu og fékk fullar örorku­bætur. Gummi vissi næstum frá byrjun af þessum erf­ið­leikum Nínu þótt hann tal­aði ekki um þau og ég held að hann hafi von­ast til þess að með því að vera bara nógu góður við hana myndi það hjálpa henni. Það má þó segja að það hafi haft öfug áhrif með tím­anum og Nína nýtti sér góð­semi hans frekar en hitt.

Mér finnst ekki ólík­legt að Gummi hefði gef­ist upp fyrr eða síðar ef Nína hefði ekki orðið ófrísk nokkrum mán­uðum eftir að þau byrj­uðu saman. Hann hefur alltaf verið mjög ábyrgur og það tel ég vera ástæð­una fyrir því að hann lét sig hafa þetta. Ástandið versn­aði mjög á meðan Nína var ófrísk. Gummi vann eins og hestur og þegar hann kom heim tóku hús­verkin við því Nína lá mest fyrir. Sumar konur eru veikar alla með­göng­una og vinna samt en mér fannst alltaf sem Nína nýtti sér ástandið til að fá meiri þjón­ustu frá Gumma.
Sonurinn fædd­ist á til­settum tíma og var ekki nema nokk­urra mán­aða þegar Nína varð ófrísk aftur og lítil dama kom í heim­inn á til­settum tíma.

Gummi var að springa út ham­ingju og stolti en Nínu leið sífellt verr. Hún sá sæmi­lega um börnin á meðan Gummi vann en þegar hann kom heim lok­aði hún sig inni í svefn­her­bergi og sagði honum að taka við. Ég hafði mikla samúð með þeim báðum, hún var mögu­lega með fæð­ing­ar­þung­lyndi og hann var alltaf þreyttur, enda tvö­falt álag á honum.

Gummi stóð sig vel í föð­ur­hlut­verk­inu þrátt fyrir ungan aldur en hann leit sífellt verr út. Hann átti margar svefn­lausar nætur þegar börnin voru veik eða voru að taka tennur en lét það ekki aftra sér frá því að mæta til vinnu næsta morgun. Hann var í vakta­vinnu og átti góð frí á milli. Stundum kíkti hann í heim­sókn til mín með börnin þegar Nína lagði sig sem oftar og nokkrum sinnum steinsofn­aði hann í stofu­sóf­anum hjá mér. Ég hafði ofan af fyrir börn­unum á meðan og fannst gott að geta eitt­hvað hjálpað. Litla hjálp var að fá frá öfum og ömmum. For­eldrar Gumma búa úti á landi og for­eldrar Nínu virt­ust eiga nóg með sig. Það var eins og allir hefðu sam­mælst um að unga fólkið ætti að axla ábyrgð­ina sjálft, sem hefði eflaust verið rétt ef ábyrgðin hefði ekki bitnað öll á Gumma sem var of stoltur til að biðja um aðstoð. Hann skamm­að­ist sín líka fyrir Nínu og útgang­inn á heim­il­inu en það var eins og Nína ork­aði bara að drasla allt út en ekki taka til.

Skilnaður og áhyggjur

Þegar börnin voru á öðru og þriðja árinu gafst Gummi loks­ins upp og flutti út. Öll ást var löngu horfin úr sam­band­inu og Gummi kveið fyrir að koma heim úr vinn­unni og hitta Nínu. Hann lifði bara fyrir börnin og átti ekki von á öðru en hún sam­þykkti að hann fengi for­ræðið yfir þeim þar sem hún virt­ist ekki geta hugsað um þau hjálp­ar­laust. Hann tal­aði um að skipta um vinnu þar sem vakta­vinna myndi þá ekki henta lengur. Það kom honum á óvart að Nína harð­neit­aði að gefa eftir for­ræðið. Þau sömdu um sam­eig­in­legt for­ræði, að börnin byggju hjá henni áfram, hún fengi með­lag og hann hefði börnin í öllum vakta­fr­íum. Mig minnir að hann hafi unnið í fimm daga og fengið síðan fjög­urra daga frí, en það var þó eitt­hvað breyti­legt.

Börnin voru byrjuð í leik­skóla á þessum tíma og Gummi sótti þau þangað fyrsta dag í vakta­fríi eða sótti þau ýmist þangað eða til Nínu, ef það var helgi, þegar hann var búinn að sofa eftir næt­ur­vakta­törn. Þetta gekk svona í nokkrar vikur. Eitt kvöldið þegar Gummi kom dauð­þreyttur heim eftir vinnu­törn beið Nína eftir honum með börnin steinsof­andi í bíl­stól­unum. Gummi varð hissa og spurði hana hvort lítil börn ættu ekki að vera sof­andi í rúmum sínum á þessum tíma en Nína spurði á móti hvort hann væri ekki kom­inn í frí, hann hefði lofað að vera með börnin. Gummi gat ekki neitað því og tók við börn­unum. Nína sat sífellt oftar um hann og það skipti engu þótt hann bæði hana um að fá að sofa nokkra klukku­tíma eftir næt­ur­vaktir áður en hann tæki börnin ef vakta­fríið bar upp á helgi. Hann benti henni á að það væri slæmt fyrir börnin ef hann væri alveg svefn­laus en henni virt­ist standa á sama um það. Hann var kom­inn í frí og þá var hans tími með börn­unum.

Eitt föstu­dags­kvöldið þegar Gummi lauk kvöld­vakta­törn ákvað hann að skreppa með vinnu­fé­lögum sínum á pöbb­arölt á eftir og lét Nínu vita til öryggis svo að hún mætti ekki óvænt með börnin. Hún spurði hann hvenær hann héldi að hann kæmi heim um nótt­ina en hann sagð­ist ekki geta sagt til um það, bað hana bara um að koma með þau um morg­un­inn.

Á barmi taugaáfalls

Þetta var skemmti­legt skrall með strák­unum og Gummi skreidd­ist heim um miðja nótt. Það fyrsta sem Gummi sá þegar hann kom út úr leigu­bílnum var Nína á bílnum með sof­andi börnin. Klukkan var að verða fjögur að morgni og hann vissi ekki hvað hún hefði beðið lengi með börnin í bílnum til að afhenda honum þau, hún neit­aði að segja honum það. Hann vildi ekki ríf­ast, tók við sof­andi börn­unum og setti þau í rúmið. Hann var búinn að sofa í tæpa þrjá tíma þegar þau vöktu hann og var þakk­látur sjálfum sér fyrir að hafa ekki drukkið meira um nótt­ina.

„Heimilið væri alltaf sóða­legt, stundum bjór­dósir á stofu­gólf­inu, börnin oft skítug og þótt Nína væri ekki vond við þau gerði hún samt lítið til að sinna and­legum og lík­am­legum þörfum þeirra.“

Hann heim­sótti mig þennan laug­ar­dag og sagði mér undan og ofan af því sem hafði gengið á. Ég held að fram að þessu hafi fæstir vitað hvað ástandið var slæmt. Gummi sagð­ist vera ráða­laus. Nína væri nán­ast óhæf móðir og hann hefði enda­lausar áhyggjur af börn­unum. Hann færi mjög oft í heim­sókn til hennar og barn­anna eftir vinnu, dag- eða næt­ur­vaktir, til að fylgj­ast með og aðstoða ef á þyrfti að halda. Heimilið væri alltaf sóða­legt, stundum bjór­dósir á stofu­gólf­inu, börnin oft skítug og þótt Nína væri ekki vond við þau gerði hún samt lítið til að sinna and­legum og lík­am­legum þörfum þeirra. Hann sagð­ist hika við að leita til Barna­verndar af hræðslu við að börnin end­uðu í fóstri hjá vanda­lausum. Hann væri kannski ekk­ert í stakk búinn til að taka við þeim, væri svo ungur, byggi í pínu­lít­illi leigu­í­búð og ynni mikið, ekki væri full­víst að hann fengi börnin þótt hann vildi það. Atvinnu­á­standið var ekk­ert sér­lega gott fyrir ungan, ómennt­aðan mann og Gummi var viss um að hann gæti ekki fengið betur borg­aða vinnu en vakta­vinn­una sem hann var í. Ég sá að hann var á barmi tauga­á­falls af þreytu og álagi.

Ástandið bitn­aði óneit­an­lega á börn­unum sem voru stundum ergi­leg og óör­ugg, þau límdu sig á Gumma þegar þau voru hjá honum og hann gat sig varla hreyft. Að lokum missti Gummi þol­in­mæð­ina og tal­aði alvar­lega við Nínu. Hann sagð­ist vilja for­ræðið en þá spurði hún á móti á hverju hún ætti þá að lifa! Sem öryrki fékk hún tvö­falt með­lag með börn­unum og fannst það greini­lega slæm til­hugsun að þurfa að sjá af þeim pen­ingum. Pabbi Nínu komst að þessu og varð alveg brjál­aður, hann hafði lítið gefið sig að barna­börn­unum en fannst að dóttur sinni vegið með þessu. Hann ráð­lagði Nínu ein­dregið að gefa for­ræðið ekki eftir.

Loksins réttlæti

Um þetta leyti fór Nína að búa með manni sem var líka öryrki, tíu árum eldri og jafn­mikið fyrir bjór­drykkju og hún. Maðurinn var þó góður við börnin og heim­ilið fór að líta aðeins betur út. Eftir að hann kom til sög­unnar hætti Nína líka að mestu að mæta með börnin til Gumma um leið og vakta­fríin hófust hjá honum sama hvenær sól­ar­hrings­ins það var.

Það var ekki fyrr en Gummi missti vinn­una, ásamt nokkrum öðrum sem var sagt upp vegna sam­dráttar, að eitt­hvað gerð­ist í mál­unum. Hann flutti út á land til for­eldra sinna, leigði litla íbúð skammt frá þeim og fékk ágæta vinnu. Hann fór oft til Reykja­víkur að hitta börnin og tók þau með sér heim aftur í lengri eða skemmri tíma. Mamma hans og pabbi voru alsæl með að hitta barna­börnin svona mikið og hjálp­uðu honum með þau þegar á þurfti að halda.
Þau Nína próf­uðu um tíma að vera með börnin mánuð í senn hvort um sig en þegar hún átt­aði sig á því að hún þurfti að borga leik­skóla­plássin fyrir börnin þann mán­uð­inn sem þau væru ekki hjá henni sleit hún sam­komu­lag­inu.

Ekki svo löngu síðar gafst Gummi gafst upp á þessu rugli. Hann hafði sam­band við Barna­vernd og lagði spilin á borðið. Þar fékk hann góða aðstoð og fann að þar var hugsað fyrst og fremst um hags­muni barn­anna og hvað þeim væri fyrir bestu. Sem betur fer náð­ist sam­komu­lag í mestu vin­semd og nú eru börnin búsett hjá Gumma sem hefur einn for­ræðið yfir þeim. Þau fara tvær helgar í mán­uði til Nínu og oftar eftir sam­komu­lagi. Börnin hafa þroskast hratt eftir að þau fluttu til pabba síns og fá þá örvun og umhyggju sem þau þurftu á að halda. Þau hafa líka loks­ins öðl­ast það öryggi sem þau bjuggu ekki við áður. Kannski dæmi ég Gumma of hart með þessu en hann var oft svo dauð­þreyttur og úttaug­aður þegar hann var með börnin í frí­unum sínum og átti litla orku aflögu þótt hann reyndi sitt besta. Það var bara ekki nóg.

„Klukkan var að verða fjögur að morgni og hann vissi ekki hvað hún hefði beðið lengi með börnin í bílnum til að afhenda honum þau, hún neit­aði að segja honum það.“

Ég veit um feður sem hafa reynt að mis­nota Barna­vernd til að hefna sín á barns­mæðrum sínum en ekki borið hag barn­anna fyrir brjósti. Oft sér starfs­fólkið í gegnum slíkt en ekki alltaf og í flestum til­fellum táknar þetta bara leið­indi og rask fyrir heim­ili barns­ins, sem er kannski það sem sóst er eftir þegar kært er í hefnd­ar­skyni.

Í til­felli Gumma sigr­aði rétt­lætið, hags­munir barn­anna voru hafðir að leið­ar­ljósi. Ég er alsæl fyrir hönd vinar míns og barna hans.

Hægt er að hlusta á Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Storytel. Guðrún Óla Jóns­dóttir, Gógó, blaða­maður hjá Vikunni, les upp lífs­reynslu­sögur sem sendar hafa verið inn í blaðið í gegnum tíð­ina og sög­urnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. Ekki missa af því þegar nýr þáttur af Lífs­reynslu­sögum fer í loftið í viku hverri – fylgstu með okkur á Facebook. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu