Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Móðir Ólivers kemur skólastjórnendum til varnar: „Ekkert barn vill meiða eða særa annað barn“

Móðir Ólivers kemur skólastjórnendum til varnar: „Ekkert barn vill meiða eða særa annað barn“

Sigríður Elín Ásmunds­dóttir, móðir Ólívers litla sem þolað hefur land­var­andi ein­elti í Garðabæ, segir skóla­stýru Sjá­land­skóla góða konu og að skól­inn hafi reynt að hjálpa. Hjálpin var bara ekki næg og því hafi son­ur­inn ekki þolað þar lengur við.

Sam­fé­lagið í Garðabæ leikur á reiði­skjálfi eftir að greint var frá ein­elti í garð Ólívers, ell­efu ára drengs í Sjá­lands­skóla. Heim­ildir Mannlífs herma að óánægju hafi gætt vegna máls­ins innan skól­ans, meðal for­eldra í Garðabæ og meðal for­svars­manna íþrótta­fé­lags­ins í bænum.

Fáir, ef nokkrir, draga í efa frá­sögn Sigríðar af skelfi­legu ein­elti sem Ólíver sonur hennar hefur orðið fyrir. Áður­nefnd óánægja snýr hins vegar að því að móð­irin hafi hvorki gefið skól­anum né íþrótta­fé­lag­inu þar sem dreng­ur­inn iðk­aði íþróttir nægj­an­legt svig­rúm til að virkja verk­ferla og taka á mál­inu áður en farið var með frá­sögn­ina í fjöl­miðla.

Nú biður móð­irin net­verja að hætta að úthróp­unum. Mik­il­vægt sé að hafa aðgát í nær­veru sálar. Sigríði hefur sviðið í hjartað við að lesa athuga­semdir í kommenta­kerf­unum. Hún full­yrðir í nýrri færslu sinni á Facebook að skól­inn hafi lagt sig fram um að leysa máið.

Börn að leik við Sjá­lands­skóla. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

„Við eigum að hjálp­ast að í bar­átt­unni gegn ein­elti og standa saman. Ekki úthrópa skóla­stjórn­endum, for­eldrum ger­enda í ein­elt­is­málum eða ger­endum sjálfum sem eru börn. Ein­blínum á að upp­ræta ein­elti í sam­fé­lag­inu okkar og á að finna leiðir til þess sem virka. Leiðir til að reyna að koma í veg fyrir að ein­elti eigi sér stað og lausnir sem virka til þess að upp­ræta ein­elt­is­mál. Gerum þetta saman og hjálpum öllum sem koma að þessum málum. Þolendum að sjálf­sögðu en líka ger­endum því það vill ekk­ert barn meiða eða særa annað barn, hjálpum börnum að læra að gera það ekki,“ segir Sigríður og bætir við:

„Þegar ég var lítil hékk alltaf inn­ram­mað plakat uppi á vegg í eld­hús­inu heima þar sem stóð: Aðgát skal höfð í nær­veru sálar. Þessi setn­ing er greipt í huga mér og þess vegna svíður mig í hjartað þegar ég les sumar athuga­semdir í kommenta­kerf­inu. Ég vand­aði mig þegar ég skrif­aði stöðu­upp­færsl­una á fimmtu­dags­kvöldið því ég vildi ekki ásaka neinn enda er skóla­stýran góð kona og skól­inn reyndi þó svo hann hafi ekki tekið nógu fast á mál­inu miðað við hversu alvar­legt ein­eltið var orðið, mitt barn var komið að þol­mörkum. Auðvitað var sárt að staðan hafi verið orðin það slæm að hann hafi ekki getað hugsað sér að vera áfram í skól­anum. Ég var í ein­lægni að segja frá birt­inga­mynd ein­eltis með þá von í brjósti að það gæti, meðal ann­ars, hjálpað ein­hverjum í sömu sporum, látum það vera afleið­ing­arnar; að knýja fram breyt­ingar til hins betra svo við öll getum tekið betur á ein­elt­is­málum fyrir börnin okkar.“

Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir hefur Sesselja Þóra Gunn­ars­dóttir, skóla­stjóri Sjá­lands­skóla, ekki viljað ræða við Mannlíf. Því neit­aði Ósk Auð­uns­dóttir aðstoð­ar­skóla­stjóri einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi