Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heiða Björg um borgina: „Engin óráðsía í gangi“

Heiða Björg um borgina: „Engin óráðsía í gangi“
Heiða Björg Hilm­is­dóttir. Mynd / Aðsend

Margir hafa upp­lifað ólga innan borg­ar­stjórnar síð­ustu ár og störf meiri­hlut­ans verið umdeild. Sumir telja stjórn­leysi og óráðsíu ríkja í Ráð­hús­inu. Heiða Björg Hilm­is­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ingar og borg­ar­full­trúi flokks­ins í Reykja­vík, segir sjálf­sagt að gagn­rýna það sem betur megi fara en það sé engin óráðsía í gangi. Hún kveðst ánægð með þær breyt­ingar sem eru að verða á borg­inni og stolt af þeim.

„Í borg­inni þar sem ég er borg­ar­full­trúi er auð­vitað tek­ist hart á um stór mál og utan frá séð geta stórn­málin virkað eins og víg­völlur,“ segir hún. „Þar spilar inn í að leið­in­legu málin fá oft­ast meira pláss í fjöl­miðlum. En mér hefur alltaf verið vel tekið og ég hef eign­ast góða sam­starfs­menn bæði innan Sam­fylk­ing­ar­innar og í öðrum flokkum. Almennt vinnum við þétt saman og erum að ná árangri saman. Enda tel ég að ef við ætlum að gera það þá eigum við að horfa meira í það sem við eigum sam­eig­in­legt og hvar við getum unnið saman og eyða minni tíma í að reyna að klekkja á fólki eða segja ljóta hluti um það.“

Ég bendi á að margir upp­lifi samt mikla ólga innan borg­ar­stjórnar. Störf meiri­hlut­ans hafa verið umdeild. Bragga­málið, pálma­trén, fram­úr­keyrsla Sorpu. Sumir telja stjórn­leysi og óráðsíu ríkja í Ráð­hús­inu.

„Mér finnst sjálf­sagt að gagn­rýna það sem má betur fara,“ svara Heiða yfir­vegað. „Fram­kvæmd Braggans var til dæmis klár­lega ekki eins og á að vera. Við höfum ekki reynt að hylma yfir það. En það er engin óráðsía í gangi. Borgin stendur vel og henni er vel stjórnað. Og vegna þess hvernig kerfið er upp­byggt þá gætum við ekki, ekki einu sinni þótt við vildum, stjórnað borg­inni jafnilla og sumir vilja láta í veðri vaka.

„Af hverju þetta tók svona langan tíma skal ég ekki segja. Þeir sem sátu við samn­inga­borðið eiga svar við því.“

En auð­vitað leggjum við okkur fram um að stjórna vel og mér finnst ég sjá jákvæðar breyt­ingar á borg­inni. Sem dæmi erum við að byggja upp þjón­ustu fyrir fólk með fatl­anir. Erum að opna fleiri hjúkr­un­ar­rými. Erum að gjör­bylta þjón­ustu vel­ferð­ar­sviðs. Erum meira að horfa í að veita þjón­ustu sem fólk óskar eftir heldur en að ákveða þjón­ustu fyrir það í ein­hverju excel-skjali, eins og var kannski meira áður fyrr. Eins og bara þegar ekklar, menn sem voru í sorg, leit­uðu til félags­þjón­ust­unnar og var þá boðið þrif, en vant­aði kannski ann­ars konar aðstoð. Við erum að vinna í því að snúa kerf­inu. Hlusta á fólkið, frekar en að ákveða hlut­ina fyr­ir­fram. Þetta eru bara nokkrar breyt­ingar og ég er ánægð með þær og stolt af þeim.“

Átök Eflingar og borgarinnar tóku á

Hérna gríp ég fram í og bendi á að ekki deili nú allir þeim skoðun með Heiðu að hlut­irnir séu að þró­ast í rétta átt í Reykja­vík. Kaupmenn í mið­bænum hafi sem dæmi sett út á meiri­hlut­ann einmitt fyrir að hlusta ekki á þá með því að fjölga göngu­götum í borg­inni. Meiri­hlut­inn hafi líka verið gagn­rýndur fyrir úrræða­leysi í mál­efnum heim­il­is­lausra og þegar kjara­við­ræður stóðu yfir sak­aði Efling hann um hræsni og óbil­girni.

„Varðandi mið­bæ­inn og Lauga­veg­inn þá sjáum við sam­kvæmt könn­unum að Reyk­vík­ingar eru ánægðir með þá þróun sem á sér stað,“ bendir Heiða á. „Hverf­is­gatan er orðin frá­bær­lega flott. Þar hafa sprottið upp mörg fyr­ir­tæki. Og ekki má gleyma nýja Hafn­ar­torg­inu. Fyrir utan það veit ég að þau hjá umhverfis- og skipu­lags­sviði hafa lagt sig fram um að vera í góðu sam­tali og eru opin fyrir marg­vís­legum lausnum, því að sjálf­sögðu viljum við sem blóm­leg­asta mið­borg. Það skiptir máli fyrir mann­lífið. Við þurfum bara ein­hvern veg­inn að finna leið þarna á milli þannig að Reyk­vík­ingar séu ánægðir og kaup­menn­irnir líka.

Hvað varðar heim­il­is­lausa, þá þurfti að bæta þjón­ust­una og við höfum sett tvö­falt meira fjár­magn í þann mála­flokk.“

Hvað með gagn­rýni Eflingar? Hvernig fannst þér, með þinn bak­grunn, að vera sökuð um að tala niður til verka­lýðs­stétta?
„Ég styð alltaf bar­áttu verka­lýðs­fé­laga fyrir bættum kjörum og mér fannst mikið af kröfum Eflingar skilj­an­legar. Mér fannst þetta hins vegar mjög erf­iður tími,“ játar Heiða fús­lega. „Mér fannst mjög miður að það þyrfti að koma til þess að það þyrfti að fara í verk­fall. Ég hefði á allan hátt viljað að við gætum komið í veg fyrir það.

Ég hefði líka viljað geta haft meiri áhrif á samn­inga­við­ræð­urnar. Stjórn­mála­menn hafa hins vegar ekki umboð til þess heldur samn­inga­nefndir og við urðum að leggja traust okkar á það að þær næðu saman. Sem betur fer gerð­ist það og ég held að samn­ing­ur­inn sem náð­ist loks sé ásætt­an­legur fyrir báða aðila þótt við í Reykja­vík séum svo­lítið gagn­rýnd fyrir það að hafa samið of vel við Eflingu. Við eigum bara að vera stolt af því og standa við þann samn­ing. Þarna eru stórar og mik­il­vægar kvenna­stéttir sem eru á of lágum launum. Þannig að þetta var mik­il­vægt skref, sem ég er ánægð með að við skyldum taka. En af hverju þetta tók svona langan tíma skal ég ekki segja. Þeir sem sátu við samn­inga­borðið eiga svar við því.“

Lestu við­talið við Heiðu í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu