Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nethrellir hótaði Dísu slátrun með hnífi: „Þetta var auðvitað hræðilegt“

Nethrellir hótaði Dísu slátrun með hnífi: „Þetta var auðvitað hræðilegt“
Dísa Dungal Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Dísa Dungal átt­aði sig ekki á alvar­leika máls­ins þegar net­hrellir byrj­aði að áreita hana og fylgj­endur hennar á Instagram. Það var vin­kona hennar sem starfar hjá Bjark­ar­hlíð, mið­stöð fyrir þolendur ofbeldis, sem opn­aði augu Dísu fyrir því að verið var að beita hana ofbeldi. Dísa kærði málið til lög­regl­unnar sem gat ekk­ert aðhafst í mál­inu vegna þess að kerfið ein­fald­lega býður ekki upp á það. Hún vill leggja áherslu á að fólk segi frá, sama hversu ómerki­leg því finn­ist upp­lifun og reynsla þess vera.

Dísa hefur verið dug­leg að sýna fylgj­endum sínum á Instagram frá lífi sínu þar sem hún heldur úti reikn­ingi undir not­anda­nafn­inu @disadungal. Eftir að hún kom heim frá þátt­töku í feg­urð­ar­sam­keppni í Dóminíska lýð­veld­inu tók hún eftir því að ein­hver var að búa til gervi­að­gang á Instagram og tagga hana, taka sér nafnið hennar og stela myndum af hennar aðgangi.

„Ég tók þessu ekki alvar­lega í fyrstu en eftir því sem tím­inn leið ágerð­ist áreitið og þessi aðili var far­inn að áreita fylgj­endur mína, skrifa athuga­semdir undir mínu nafni og setti inn alls konar móðg­anir og hót­anir. Ef ein­hverjir fylgenda minna skrif­uðu til dæmis eitt­hvað fal­legt við myndir af mér skrif­aði hann eitt­hvað ljótt við athuga­semd­ina þeirra og jafn­vel hót­anir.“

Það þýddi lítið fyrir Dísu að til­kynna málið til stjórn­enda Instagram því þótt gervi­að­göngum sé taf­ar­laust eytt ef til­kynn­ing berst bjó net­hrellir­inn bara til nýjan aðgang í hvert sinn sem hún til­kynnti hann.

„Á tíma­bili var hann far­inn að búa til fjóra, fimm aðganga á hverjum degi,“ segir hún og hristir höf­uðið í van­trú.

„Hann var far­inn að deila mynd­unum mínum og mynd­böndum og síma­núm­er­inu mínu, áreita mig og fylgj­endur mína, þykj­ast vera ég og þykj­ast vera aðrir fylgj­endur mínir eða vinir mínir auk þess sem hann sendi fólki ljótar hót­anir. Þetta var auð­vitað hræði­legt og hót­an­irnar, sem stundum voru morð­hót­anir, voru virki­lega grófar.“

Dísa er í for­síðu­við­tali í nýjasta tölu­blaði Vikunnar sem kemur í versl­anir á morgun, fimmtu­dag.

Ingileif Frið­riks­dóttir og María Rut Krist­ins­dóttir voru að gefa út sína fyrstu barna­bók. Í við­tali við Vikuna segja þær að það sé ekk­ert hættu­legt að segja börnum að þau megi vera eins og þau eru, hafa áhuga á því sem þau hafa áhuga á, elska þann sem þau elska og klæða sig eins og þau vilja klæða sig.

Ásta Margrét Jóns­dóttir förð­un­ar­fræð­ingur segir frá starf­inu og segir það heill­andi að skapa nýjar per­sónur eða nýta and­lit og lík­ama fólks sem vett­vang sköp­unar.

Vilborg Dav­íðs­dóttir rit­höf­undur var að senda frá sér skáld­sög­una Ygg­dras­ill, þar sem hún heldur áfram með sögur kvenna á land­náms­öld. „Mér finnst þessi horfni heimur land­náms­fólks­ins svo gríð­ar­lega heill­andi, sér í lagi yfir­nátt­úru­legi hluti hans.“

Helga Margrét Agn­ars­dóttir lög­fræði­nemi er undir smá­sjánni. Hún segir Britney Spears mik­il­væg­ustu mann­eskj­una í sínu lífi.

Katrín Ósk Jóhanns­dóttir ákvað að láta drauma sína ræt­ast og hefur nú stofnað eigið fyr­ir­tæki þar sem hún gefur út barna­bækur sínar, ásamt tengdum vörum. Katrín Ósk lætur gott af sér leiða og hluti af ágóða bók­ar­innar Mömmugull rennur til Umhyggju, styrkt­ar­sjóðs fjöl­skyldna lang­veikra barna, nú í nóv­em­ber,

Í Vikunni má einnig finna umfjöllun um tísku, fræga fólki, sálu­fé­lag­ann og fleira, auk þess sem Líf­reynslu­saga Vikunnar, kross­gátan, orða­leit og stjörnu­spá Vikunnar eru á sínum stað

Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í vef­verslun okkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu