Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig gerir það gott: „Ég er auðvitað húrrandi glöð!“

Sólveig gerir það gott: „Ég er auðvitað húrrandi glöð!“
Sólveig Páls­dóttir. Mynd / Aðsend

Breskir bók­menntaunn­endur eiga vart orð til að lýsa hrifn­ingu sinni á Refnum eftir Sólveigu Páls­dóttur. Bókin kom út í Bret­landi á dög­unum í enskri þýð­ingu og er lofuð í hástert af gagn­rýnendum.

„Ég er auð­vitað húrr­andi glöð! Það er ákaf­lega gaman að lesa svona vand­aða og ígrund­aða bók­mennta­gagn­rýni,“ segir rit­höf­und­ur­inn Sólveig Páls­dóttir, sem er í skýj­unum um þessar mundir og með réttu því bók hennar Refurinn kom út á ensku í Bret­landi fyrir skemmstu og hefur fengið glimmr­andi góða dóma. Einn gagn­rýn­andi segir bók­ina heill­andi, á meðan annar hrósar höf­und­inum fyrir spennu­þrungið verk og ein­stæða per­sónu­sköpun og gefur bók­inni fullt hús stiga, eða fimm stjörnur.

„Það gleður mig sér­stak­lega hvað þau sem skrifa um bók­ina tengja vel við sam­fé­lags­lega hlið verks­ins sem er „mál­leysið“ á milli menn­ing­ar­heima og ólíkra lífs­við­horfa en ekki síður hið sammann­lega,“ nefnir Sólveig og bendir á að í bók­inni sé saga per­són­unnar Sajee frá Sri Lanka á vissan hátt tákn­mynd fyrir þetta. „Já, og þeim finnst sagan hörku­spenn­andi, sem er auð­vitað lyk­il­at­riði í glæpa­sögu,“ bætir hún við og kímir.

„Þeim finnst sagan hörku­spenn­andi, sem er auð­vitað lyk­il­at­riði í glæpa­sögu.“

Þess utan virð­ast flestir sam­mála um að sög­sviðið, Aust­ur­land, eigi þátt í því hversu vel heppnuð bókin er, en sagan ger­ist aðal­lega á Höfn og við Eystra­horn í Lóni. „Já, það höfðar greini­lega mjög mikið til þeirra,“ segir Sólveig glöð. „Núna er meira að segja búið að búa til leið­ar­vísi fyrir túrista til að kanna sögu­slóðir bók­ar­innar, allt frá Reykja­vík til Horna­fjarðar. Það er auð­vitað bara stór­skemmti­legt,“ segir hún og hlær.

Svekkjandi að geta ekki fylgt bókinni eftir

Spurð hvernig sé að fá svona góðar við­tökur í Bret­landi segir Sólveig það vera afskap­lega góða til­finn­ingu og hún finni fyrir miklu þakk­læti. „Ég verð samt að við­ur­kenna að það er dálítið leið­in­legt að geta ekki fylgt bók­inni eftir úti vegna COVID,“ játar hún. „Núna ætti ég til dæmis að vera nýkomin heim frá London og svo var mein­ingin að fara allt að þrisvar sinnum eftir ára­mót en svona er þetta,“ segir hún og brosir dauft.

Þetta er í fyrsta sinn sem Refurinn er gefin út á erlendum vett­vangi en bókin kom út í Bret­landi sem raf­bók í lok sept­em­ber. Sólveigu skilst að salan hafi gengið vel og að við­tökur les­enda séu góðar.
„Bretland hefur farið illa út úr heims­far­aldr­inum og fólk hefur þurft að halda sig mikið heima. Þess vegna var ákveðið að gefa bók­ina fyrst út á raf­rænu formi,“ segir hún, spurð af hverju sá háttur hafi verið hafður á. „En kiljan er rétt að koma út,“ flýtir hún sér að bæta við, „og henni verður dreift mjög fljót­lega.“

Fleiri bækur gefnar út erlendis

Það er til­tölu­lega nýtt útgáfu­fyr­ir­tæki, Corylus Books sem stendur að útgáfu Refsins, eða The Fox, í Bret­landi en Sólveig segir að það séu í eigu fjög­urra aðila, sem eiga sam­eig­in­legt að vera ástríðu­fullir bókaunn­endur sem brenna fyrir því sem þau gera. „Einn eig­enda er þýð­andi Refsins, Quentin Bates. Hann er ekki bara frá­bær þýð­andi heldur einnig rit­höf­undur,“ segir hún og kveður eflaust marga Íslend­inga þekkja bækur hans, þar á meðal sög­urnar um lögg­una Gunn­hildi Gísla­dóttur sem berst við und­ir­heima­lýð Reykja­víkur.

„Quentin hefur einnig þýtt bækur eftir Ragnar Jónasson, Lilju Sig­urð­ar­dóttur og Einar Kárason,“ bendir hún á. „Núna er hann að þýða Fjötra eftir mig, eða Schacles eins og hún heitir á ensku. Hún kemur út á vegum sama for­lags haustið 2021.“

Með mörg járn í eldinum

Það er auð­heyri­lega nóg að gera hjá Sólveigu því ný bresk þátta­röð sem byggir á Refnum er líka í vinnslu og sjötta og nýjasta bók hennar, Kletta­borgin, var að koma út. Líkt og Refurinn sækir hún líka í Lónið í Austur-Skafta­fells­sýslu en að sögn Sól­veigar er hún þó eins ólík þeirri bók og hugs­ast getur, enda ákvað glæpa­sagna­höf­und­ur­inn að söðla um og leita hóf­anna í allt annarri gerð sagna, end­ur­minn­inga­bók.

„Kletta­borgin geymir minn­ing­ar­sögur mínar frá fimm ára aldri og fram undir tví­tugt en snertir líka á því sem ger­ist seinna í lífi mínu,“ segir Sólveig um nýju bók­ina.

„Kletta­borgin geymir minn­ing­ar­sögur mínar frá fimm ára aldri og fram undir tví­tugt en snertir líka á því sem ger­ist seinna í lífi mínu. Hún hefst þegar ég er fimm ára gömul á leið í sveit austur í Hraunkot í Lóni sem er í Austur-Skafta­fells­sýslu, í fylgd fólks sem ég hafði aldrei hitt, til að dvelj­ast hjá fólki sem ég hafði aldrei séð. Ég var nýflutt til Íslands en pabbi minn starf­aði í utan­rík­is­þjón­ust­unni. Ég fer fram og til baka í tíma en frá­sögnin spannar fyrst og fremst árin fram undir tví­tugt eða þegar ég hef nám við Leik­list­ar­skóla Íslands.“

Fjöl­margar per­sónur koma við sögu í bók­inni, fjöl­skylda Sól­veigar, vinir og ýmsar þjóð­þekktar per­sónur. „Svo sem Þór­bergur Þórð­ar­son, Sig­ur­björn Ein­ars­son biskup, Helgi Skúlason leik­ari, móð­ur­afi minn Ásgeir Ásgeirs­son for­seti, fyrr­ver­andi mágur minn sem er frá Indónesíu og kom til Íslands 1970, fólkið í Hraun­koti, fyrsti kærast­ann, kirkjukór­inn í Lóni, kenn­arar í Mela­skóla og Haga­skóla og fleiri,“ telur hún upp og brosir.

Spurð hvort hún sé nokkuð hætt að skrifa um glæpi, segir Sólveig nú aldeilis enga hættu á því. „Nei, það held ég alls ekki. Ég er núna með tvær hug­myndir í tölv­unni, báðar á byrj­un­ar­stigi. Önnur er glæpa­saga en hin er meira í ætt við Kletta­borg­ina. Svo verður bara að koma í ljós hvor hefur vinn­ing­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu