Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Steingrímur J. og Landsdómur: Geir Haarde hefði ekki átt að taka þessu persónulega

Steingrímur J. og Landsdómur: Geir Haarde hefði ekki átt að taka þessu persónulega

„Þetta var gíf­ur­lega erfitt mál og okkur öllum held ég erfitt og með því leið­in­legra má segja sem maður hefur þurft að ganga í gegnum. En þetta var því miður óum­flýj­an­legt. Alþingi gat ekki vik­ist undan því að takast á við þetta,“ segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, um Lands­dóms­málið og ákæruna á Geir Haarde fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Þetta er eitt þeirra mála sem  Geir gerir upp að leið­ar­lokum  í Mann­lífs­við­tali og líf sitt og starf.  Þeir þing­menn sem sam­þykktu ákæruna hafa í ein­hverjum til­vikum verið  úthróp­aðir fyrir að taka Geir einan fyrir en sleppa öðrum ráð­herrum, meðal ann­ars af vinstri vængnum, við ákæru.

„Það var alveg ljóst frá byrjun þegar rann­sókn­ar­nefndin var skipuð að þá voru allir sam­mála um að eitt af því sem hún hlyti að skoða væri ábyrgð ráð­herra og æðstu emb­ætt­is­manna. Við vissum það alveg að það gat þýtt að nið­ur­stöður nefnd­ar­innar kæmu svo til Alþingis á því formi að Alþingi þyrfti að taka afstöðu til þess að ein­hver þyrfti að axla ábyrgð. Um þetta var alveg sam­staða þegar lagt var af stað með rann­sókn­ar­nefnd­ina. Þingið und­ir­bjó sig mjög vel við að taka við nið­ur­stöð­unum og stofn­aði sér­staka nefnd undir for­ystu Atla Gísla­sonar sem vann mán­uð­ina áður en rann­sókn­ar­nefndin skil­aði áliti til þess að vera und­ir­búin hver sem nið­ur­staðan yrði. Við tókum fljót­lega þá afstöðu í VG að setja traust okkar á þessa nefnd. Og það var alger sam­staða um að við myndum styðja þær til­lögur sem hún kæmi með. Þaðan kom til­lagan um að ákæra fjóra ráð­herra og við greiddum öll atkvæði alger­lega í sam­ræmi við nið­ur­stöðu meiri­hluta nefnd­ar­innar …,“ segir Stein­grímur.

Var hlýtt til Geirs Haarde

Stein­grímur segir að á meðal ástæða þess að þetta mál hafi verið honum erfitt sé að honum hafi verið og sé mjög hlýtt til Geirs H. Haarde. „Hann er að mínum dómi góður maður. En mér fannst ekki hátt risið á þeirri umræðu að maður ætti þá að greiða atkvæði í sam­ræmi við það hvort manni væri vel eða illa við við­kom­andi mann. Ég ýtti því bara algjör­lega frá mér og tók mál­efna­lega afstöðu, eins erfið og hún var. Ég hefði alveg þegið að vera aldrei í þessum sporum en ég tók afstöðu út frá því hvernig málin lágu fyrir á þessum tíma og ég hef ekki end­ur­skoðað afstöðu mína. Ég sé ekki eftir þessu í þeim skiln­ingi að ég telji að ég hefði átt að greiða öðru­vísi atkvæði. Það geri ég ekki, ég hef aldrei beðist afsök­unar og mun ekki gera það af því að ég tel að ég hafi haft mál­efna­lega nálgun á þetta mál.“

Hann bendir aftur á móti á að aðrir þing­menn hafi tekið þá afstöðu að ákæra aðeins Geir en sleppa öðrum ráð­herrum. Þeir sem Alþingi ákvað  að sleppa við ákæru voru Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir, for­maður Sam­fylk­ingar, Björgvin G. Sig­urðs­son fjár­mála­ráð­herra og Árni Mathies­sen fjár­mál­ráð­herra.

„Það sem kom okkur hins vegar í opna skjöldu og eitr­aði þetta mál mjög mikið var hvernig atkvæði féllu hjá öðrum. Það hefur ekk­ert með okkur í VG að gera. Menn í öðrum, ónefndum þing­flokkum studdu ákærur á suma ráð­herra en ekki aðra. Það er allt annað mál og setti dálítið annan svip á þetta leið­inda­mál hvernig þær atkvæða­greiðslur fóru.“

Stein­grímur segir að það megi enda­laust deila um hvort það hefði átt að ákæra bara ráð­herrana þrjá sem rann­sókn­ar­nefndin taldi að væru ábyrgir eða bæta fjórða ráð­herr­anum við eins og nefnd Alþingis ákvað.

Það voru hans beisku örlög í stjórn­málum að vera for­sæt­is­ráð­herra

Stein­grímur segir að hann telji að það hefði ekki mælst vel fyrir ef menn hefðu sópað öllu sem hét „ábyrgð stjórn­mála­manna“ undir teppið og bara lög­sótt og fang­elsað banka­menn. „Auðvitað átti bara og varð að útkljá þessi svaka­legu mál sem hrun­inu tengd­ust á for­sendum rétt­ar­rík­is­ins – láta lög og reglur gilda um það. Og ég held að Íslend­ingum hafi tek­ist það nokkuð vel. Það er að segja, við stofn­uðum þessa rann­sókn­ar­nefnd sem vann feikn­ar­lega mikið og merki­legt starf og síðan var málum vísað til dóm­stóla sem eftir atvikum áttu erindi þangað. Ég veit ekki hvað annað hefði verið hægt að gera en að láta grund­vall­ar­reglur rétt­ar­rík­is­ins virka hér eins og við aðrar aðstæður. Geir H. Haarde hafði verið for­sæt­is­ráð­herra fyrir hrun og lögin og ráð­herra­á­byrgð eru þannig að hún getur tekið til athafna eða athafna­leysis manna í til­tek­inn tíma aftur í tím­ann. Það voru hans beisku örlög í stjórn­málum að vera for­sæt­is­ráð­herra þessa tíma. Ég tel að Geir hafi ekki átt að líta á þetta sem per­sónu­lega árás eins og hann gerði. Ég held að mönnum sé hlýtt til hans. Þessi nið­ur­staða varð mjög væg í hans garð – hann var fund­inn sekur um van­rækslu á einu sviði, það er að segja að hafa ekki boðað fundi og virkjað rík­is­stjórn­ina alla sem hafði vissu­lega afleið­ingar inn í stóra sam­hengið að rík­is­stjórnin var ekki sam­stillt, fund­aði ekki og stillti ekki saman strengi og það gat mögu­lega haft nei­kvæð áhrif á það hvað menn gerðu eða reyndar fyrst og fremst gerðu ekki í aðdrag­anda hruns­ins. En það er ekki alvar­leg yfir­sjón finnst mér og ekki eitt­hvað sem hann og aðrir eigi að líta á sem þungan áfell­is­dóm í til­viki hans. En þetta var nið­ur­staða dóms­ins og þá verða menn að hlíta því. Hann gat á hinn bóg­inn bent á að hann var sýkn­aður af öðrum ákæru­at­riðum og kom þar af leið­andi ekk­ert illa út úr þessu máli svo­leiðis. En auð­vitað verður hann að stjórna og ráða við­brögðum sínum.“

Stein­grímur segir að þrátt fyrir sár­indin sem urðu vegna afgreiðsl­unnar hafi samt verið  gott á milli hans og Geirs. Þegar Stein­grímur slas­að­ist illa í bíl­veltu við Svartá og lá á spít­ala heim­sótti Geir hann.

„Það voru ekki síður keppi­nautar mínir í öðrum flokkum sem komu í heim­sókn til mín eða sendu mér kveðjur. Geir H. Haarde er á meðal þeirra sem heim­sóttu mig. Það þótti mér vænt um…“

Viðtalið í heild sinni er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu