Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigríður um ríkisstjórnarsamstarfið: „Er auðvitað í grundallaratriðum ósammála VG“

Sigríður um ríkisstjórnarsamstarfið: „Er auðvitað í grundallaratriðum ósammála VG“
Sigríður hyggst gefa kost á sér fyrir næstu kosn­ingar að ári. Hún seg­ist ekki vita hvort það verði próf­kjör innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins en seg­ist munu sækj­ast eftir því að vera í fram­varð­ar­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík eins og hún hefur verið.

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur gagn­rýnt sótt­varna­að­gerðir, hún vill að útlend­inga­lögum sé breytt og stemma stigu við til­hæfu­lausum umsóknum um alþjóð­lega vernd. Hún sté til hliðar sem dóms­mála­ráð­herra í kjöl­far þess að dómur féll í Strass­borg í Lands­rétt­ar­mál­inu og seg­ist í grund­vall­ar­at­riðum vera ósam­mála stefnu Vinstri­hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs.

Sigríður er spurð hver henni finnst vera afrakstur núver­andi rík­is­stjórnar.

„Þessi rík­is­stjórn var sett á lagg­irnar einkum og sér í lagi með það að mark­miði að koma á ákveðnum stöð­ug­leika í stjórn­málin og þing­störfin. Það var með því leið­ar­ljósi sem við Sjálf­stæð­is­menn tókum saman við flokk lengst til vinstri en okkur fannst nokkuð til þess vinn­andi að fá þennan stöð­ug­leika fram. Rík­is­stjórnir höfðu staðið stutt við eftir hrunið og það tók okkur all­langan tíma að komst upp úr fjár­mála­hrun­inu. Þannig að það var heil­mikið til þess vinn­andi að reyna aðeins að kæla hinn póli­tíska hita sem kraum­aði við­stöðu­laust. Við Sjálf­stæð­is­menn átt­uðum okkur alveg á því að þetta yrði ekki tími stór­kost­legra breyt­inga í þágu aðal­mark­miða okkar og sjón­ar­miða í stjórn­málum og ég var alveg búin að sætta mig við að hér yrði ekki mikið af skatta­lækk­unum eða einka­væð­ing­ar­á­formum í þess­ari rík­is­stjórn. En um leið gerðum við auð­vitað kröfu um að það yrði þá ekki farið í hina átt­ina og skattar yrðu hækk­aðir eða það yrðu búnar til nýjar rík­is­stofn­anir og þar fram eftir göt­unum. Við höfum reynt að halda í horf­inu með þetta.

Ég hef nefnt það að rík­is­stjórnin byrj­aði ekki vel hvað stöð­ug­leik­ann varðar þegar tveir þing­menn VG lýstu ekki yfir stuðn­ingi við þessa rík­is­stjórn þannig að óstöð­ug­leik­inn var skrif­aður í skýin frá upp­hafi. Mér hefur samt fund­ist ágæt­lega hafa tek­ist þrátt fyrir þetta að halda frið­inn. Ég reyndi nú að leggja mitt lóð á vog­ar­skál­arnar þegar ég sté til hliðar vegna þessa póli­tíska upp­hlaups sem Lands­rétt­ar­málið var allt saman og var mál frá fyrra kjör­tíma­bili. En ég skynj­aði það að menn ætl­uðu sér að láta það mál snú­ast um mína per­sónu en ekki málið sjálft og ekki taka mál­efna­lega afstöðu. Þannig að mér fannst það nú í þágu til dæmis þessa mark­miðs þess­arar rík­is­stjórnar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ber auð­vitað ábyrgð á. Nú er svo komið í ljós að málið er eins og önnur mál sem valda oft miklu fjaðrafoki tíma­bundið en er í raun­inni hvorki fugl né fiskur og var alls ekki til­efni þeirrar geðs­hrær­ingar sem sumir leyfðu að ná tökum á sér.“

„Það herðir mann auð­vitað að vera í póli­tík. Ætli ég myndi ekki segja að það hafi komið mér á óvart hvað maður róast við hvert ruglið sem maður verður vitni að í stjórn­mál­unum; með hverju nýju rugl­inu herð­ist maður og slakar því meira á.“

Sigríður segir að sér finn­ist þess vegna ágæt­lega hafa tek­ist til í þess­ari rík­is­sjórn við að reyna að láta hlut­ina ganga. „Ég held að flokk­arnir hafi verið heilir í því svo sem að reyna að láta þetta ganga. Auðvitað eru mönnum mis­lagðar hendur í því eins og gengur og ger­ist en það er alveg ljóst og örugg­lega finnst þing­mönnum allra flokk­anna þeirra flokkur ekki hafa fengið mikið fyrir sinn snúð. Það er alltaf þannig í stjórn­ar­sam­starfi en þetta hefur gengið svona þokka­lega.

Við stöndum núna hins vegar frammi fyrir þessum aðstæðum út af Covid-19 þar sem hlut­irnir breyt­ast mjög hratt og þarf í fram­hald­inu kannski svo­lítið aðrar áherslur heldur en bara það að hér starfi rík­is­stjórn ein­hvers konar stöð­ug­leika. Núna þurfa stjórn­mála­menn aðeins að taka á sig rögg, stinga út hausnum í umræð­unni og lýsa skoðun sinni á því hvernig menn ætla að koma sér út úr þessu ástandi sem er að skaða okkur öll dag frá degi.“

Sigríður segir að það þurfi ekki að koma neinum á óvart að hún sé auð­vitað í grund­vall­ar­at­riðum ósam­mála stefnu VG. „Innan VG eins og í öllum öðrum flokkum finnst ágætis fólk sem ágætt er að starfa með.“

Hún er spurð hverjir ættu að vinna saman ef hún réði stjórn­ar­mynstri. Hún segir að það yrðu flokkar sem næðu að koma sér saman um fram­fara- og umbóta­skref á Íslandi. „Það þarf að byggja upp atvinnu­lífið á ný og gefa fyr­ir­tækjum í öllum greinum svig­rúm til að koma sér upp á fæt­urna aftur og í fullan rekstur. Það blasir við að við þurfum að koma ferða­þjón­ust­unni upp sem fyrst ef það á að vera hér ein­hver efna­hags­bati í aug­sýn. Ég myndi segja að þeir flokkar sem ættu að stýra land­inu næstu fjögur til átta árin séu þeir sem gætu sam­mælst um að gera þetta fljótt og örugg­lega og átta sig á að hvorki skatta­hækk­anir né flóknar reglur eru inn­legg í umræð­una næstu árin.“

„Menn nota allt sem hægt er til að að koma höggi á póli­tíska and­stæð­inga og það þarf ekk­ert að koma neinum á óvart sem er í póli­tík. Og ef menn geta ekki staðið í því þá eiga menn ekki að vera í póli­tík.“

Sigríður seg­ist eiga gott sam­starf við alla þing­menn. „Ég er for­maður í utan­rík­is­mála­nefnd og þar sitja þing­menn úr öllum flokkum og ég á gott sam­starf við þá. Þingmenn eru jafn­ó­líkir og þeir eru margir. Mér finnst kannski vanta meira fyr­ir­vara­lausa umræðu á þingi um þau mál sem eru til umræðu eða þjóð­mál og póli­tík­ina almennt. Menn koma í þing­sal með ræður á blaði sem þeir lesa upp en það vantar að menn kasti bolt­anum á milli sín; kannski finnst sumum þing­mönnum ekki vera nógu gaman á þingi. Kannski finna þeir sig ekki í því að vera að lýsa yfir mál­efna­legum ágrein­ingi við næsta þing­mann. En það er einmitt hlut­verk þing­manna að gera það – að opin­bera að minnsta kosti skoð­anir sínar og ræða við þing­menn af kurt­eisi og yfir­vegun og auð­vitað með mál­efna­legum hætti við þá þing­menn sem eru ekki sömu skoð­unar og velta upp mál­unum. Mér finnst skorta þetta í þing­inu.“

Sigríður hyggst gefa kost á sér fyrir næstu kosn­ingar að ári. Hún seg­ist ekki vita hvort það verði próf­kjör innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins en seg­ist munu sækj­ast eftir því að vera í fram­varð­ar­sveit Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík eins og hún hefur verið.

„Ég hef ennþá áhuga á að starfa á þessum vett­vangi enn sem komið er þótt tæki­færin séu auð­vitað mýmörg utan þings­ins. Ég tala nú ekki um í þessu árferði sem nú blasir við þar sem það verður auð­vitað mjög spenn­andi fyrir marga að taka þátt í upp­bygg­ing­unni sem fram undan er. Ég hef hins vegar tekið ákvörðun um að reyna að standa að baki öllu því athafna­fólki sem ætlar að henda sér í það verk­efni og standa vörð um frelsi þess og efna­hags­líf sem getur borið það vel­ferð­ar­kerfi sem við viljum hafa hér á Íslandi. Þeirri öfl­ugu heil­brigð­is­þjón­ustu sem við höfum haft verður til dæmis ekki haldið öðru­vísi við en að það verði öfl­ugt atvinnu­líf hér og efna­hags­bati. Hann verður að vera hraður og öruggur á næstu mán­uðum. Það er alveg ljóst.“

Sigríður er í helg­ar­við­tali Mannlífs. Hér getur þú lesið allt við­talið. 

Texti: Svala Jóns­dóttir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi