Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Notar listina til að segja sögur

Notar listina til að segja sögur

Íris Auður er fædd árið 1981 á brekkunni á Akureyri. Tvítug flutti hún til Spánar þar sem hún ætl­aði að verða list­mál­ari en plönin breytt­ust og skráði hún sig í fata­hönnun við IED í Madrid. Hún útskrif­að­ist þaðan sem fata­hönn­uður. Eftir fjögur ár í Madrid flutti hún til Reykja­víkur en einnig er hún mennt­aður kenn­ari og jóga­kenn­ari. Síð­ast­liðin tíu ár hefur mynd­listin átt hug hennar allan og reynir hún að eyða öllum frí­stundum í að mála.

Hvernig lista­maður ertu? Ég veit hrein­lega ekki hvernig lista­maður ég er. Hef ekki enn sett mig í eitt mót. Ég held áfram að læra og þró­ast svo lengi sem ég held áfram. Það er það skemmti­lega. Ég veit aldrei í hvaða átt verkin mín eiga eftir að þró­ast. Þó að það sé óneit­an­lega mik­il­vægt að selja verk, þá er ekki síður mik­il­vægt að þró­ast áfram sem lista­maður. Ég nota list­ina til að losa um til­finn­ingar, búa til sögur í hug­anum og hverfa inn í eigin hug­ar­heim. Ekkert annað fær mig til að finn­ast ég eins frjáls og þegar ég mála.

Hvernig byrj­aði fer­ill­inn? Eftir námið við Mynd­lista­skól­ann á Akureyri fluttum ég og mað­ur­inn minn, Heimir Freyr, til Madrid. Þar ætl­aði ég að finna mér háskóla í mynd­list en ákvað að skoða nokkra skóla og kynna mér mögu­leik­ana. Þegar ég gekk inn í IED (Istituto Europeo Di Design) var mér svo vel tekið, ég kysst hægri vinstri, sýndur allur skól­inn og mikið spjallað, að ég eig­in­lega óvart skráði mig í fata­hönn­un­ar­nám. Þó að ég vinni ekki sem fata­hönn­uður í dag hefur það nám veitt mér inn­blástur í mína mynd­sköpun. Fljót­lega eftir að við fluttum heim mynd­skreytti ég margar kennslu­bækur og tók að mér eitt og eitt teikni­verk­efni fyrir fyr­ir­tæki og sýn­ingar. Í og með mál­aði ég og teikn­aði fyrir sjálfa mig. Ég hélt svo sýn­ingu í Hofi á Akureyri árið 2017 sem fékk bolt­ann til að rúlla.

Þú mál­aðir mynd fyrir blaðið, af hverju valdir þú að gera þessa mynd og hvað heitir hún? Verkið heitir Himbrimi í kjarri. Ég mála mikið fugla, hvort sem þeir eru einir eða leyn­ast með and­lits­myndum af fólki. Fugl­arnir ásamt and­lits­mynd­unum eru ein­kenn­andi fyrir minn stíl þessa stund­ina.

Hvernig var myndin unnin? Þegar ég var yngri áleit ég að olía væri æðri en akrýl­máln­ing. Ég veit ekki hvort nokkur hafi sagt það við mig beint. Mér leið bara þannig. Þegar ég svo byrj­aði að mála fyrir alvöru bjuggum við í lít­illi íbúð og neydd­ist ég til að mála inni í svefn­her­bergi. Þar varð ég að nota akrýl því hún er lykt­ar­minni. Þá sá ég að þessa tvo miðla, olíu og akrýl, á ekki að bera saman, heldur hafa báðir sína kosti og galla. Þessi mynd, Himbrimi í kjarri, er máluð með akrýl­máln­ingu á pappír.

Hvernig er ferlið frá hug­mynd að mynd? Ég mála alltaf við tón­list. Ég held ég hafi í raun aldrei málað í þögn hrein­lega. Oft tekur tón­listin völdin. Ég set á lag og hug­mynd­irnar koma til mín. Ég er ekki vön að skissa áður en ég byrja. Ef ég ætla að mála fugl er ég búin að ákveða fugl­inn út frá ljós­myndum. Hug­myndir að and­lits­myndum fæ ég mikið úr tísku­blöðum og ljós­myndum. Stundum nota ég lýs­ing­una frá ljós­mynd­inni, augun frá þessu mód­eli og nefið frá hinu eða mála beint eftir ljós­mynd og breyti stemn­ingu og bak­grunni.

Hvernig mynd­irðu lýsa þínum list­ræna stíl? Ætli ég sé ekki enn flakk­andi milli stíla, ég fer þangað sem listin leiðir mig. Und­an­farið hef ég dansað á línu ein­hvers konar töfraraun­sæis en tek kannski abstrakt verk á milli eða jafn­vel hefð­bundið vatns­lita­verk.

Hefur þú alltaf haft gaman af listum? Það má segja að ég hafi fæðst inn í fjöl­skyldu sem gerir list­inni hátt undir höfði. Móðurafi minn, Einar Helgason, var mjög fjöl­hæfur mynd­list­ar­maður og jafn­vígur í ólíu­málun og vatns­litum. Ég var mikið hjá honum og ömmu, Ásdísi Karls­dóttur. Þar var ýmis­legt brallað og mikið teiknað. Ég skála stundum við hann í kaffi í hug­anum á meðan ég mála. Hann var mér mikil fyr­ir­mynd í mynd­list.

Hvaða litir og form heilla þig mest? Þegar ég er úti í nátt­úr­unni, borg­inni, heima eða hvar sem er sé ég allt út frá litum og formum. Hef alltaf gert það. Stundum tek ég myndir til að varð­veita lýs­ingu, lita­sam­setn­ingar eða form. Þannig byrj­aði ég til dæmis að setja inn fléttur og skófir inn á mynd­irnar mínar. Horfði niður á stein, fram hjá hinni aug­ljósu feg­urð og niður í litlu fal­legu smá­at­riðin sem oft fara fram hjá manni.

Hvaðan sæk­irðu inn­blástur? Inn­blást­ur­inn kemur úr öllum áttum en þegar ég sest fyrir framan hvítt blað eða tóman striga veit ég yfir­leitt ekk­ert hvað ég er að fara að mála. Fyrst þarf ég að kveikja á tón­list. Tón­listin stýrir mér, hún stjórnar til­finn­ing­unni í mynd­unum, svipnum í and­liti þess sem ég mála, litum og stemn­ingu. Ég fór ábyggi­lega að mála konu­and­litin vegna þeirra til­finn­inga sem hægt er að ná fram með augn­s­vip einum saman. Það er mark­mið mitt að þær segi sögu með aug­unum. Það er svo túlk­un­ar­at­riði hvað fólk sér.

Þó að það sé algjör klisja, þá hefur íslensk nátt­úra mikil áhrif á mig. Fegurðin í mosa, lyngi, skógum og fjöllum læð­ist inn í mynd­irnar áður en ég veit af. Ég er með eina mynd í vinnu­stof­unni sem byrj­aði sem sak­laus and­lits­mynd af konu. Ég byrj­aði að bæta við örlitlum gróðri og áður en ég vissi af var ekk­ert eftir af kon­unni nema augun, falin í mosa­hjúp.

Hvenær sól­ar­hrings finnst þér best að vinna? Ég kenni textíl­mennt á dag­inn og hef þar af leið­andi kvöldin fyrir mína sköpun. Þessi tvö störf fara einkar vel saman, ys og líf á dag­inn og ég með sjálfri mér seinni part­inn. Svo er líka dásam­legt að rölta með kaffi­boll­ann út um helgar og byrja dag­inn í vinnu­stof­unni. Ég er alls ekki B-mann­eskja, get ekki vakað fram eftir og get lítið mundað pensil­inn seint að kvöldi.

Hvaða lista­menn eru í upp­á­haldi hjá þér? Með til­komu nýrra sam­fé­lags­miðla er svo gaman að upp­götva nýja lista­menn sem eru ekk­ert endi­lega frægir en ná til manns með ákveðnum stíl, litum, skila­boðum eða til­finn­ingum. Þegar ég var í mynd­lista­skól­anum á Akureyri sótti ég mikið í gömlu meist­ar­ana, eins og Gustav Klimt, Egon Schiele, Van Eyck og Goya. Það sem þessir mynd­list­ar­menn eiga sam­eig­in­legt er að allir nota þeir manns­lík­amann sem við­fangs­efni. Eftir að ég fór svo óvart í fata­hönnun hef ég haldið mig við þessa blöndu af tísku­teiknun og list­málun. Lista­menn sem ég sæki inn­blástur hjá í dag eru allt núlif­andi, starf­andi mynd­list­ar­fólk eins og Nicola Samori, got­neskur barokk­mál­ari frá Ítalíu. Anne Sophie Tschiegg er frönsk lista­kona sem er óhrædd við liti og notar mikið hið mennska form. Það er svo ynd­is­lega mikið af hæfi­leik­a­ríku lista­fólki um allan heim sem ég sæki inn­blástur til á ólíkan hátt.

Hvar fást verkin þín? Ég er svo heppin að hafa dásam­legt lítið „atelier“ við heim­ili mitt sem áður var bíl­skúr og við vinnum mikið þar bæði, ég og mað­ur­inn minn. Þangað er hægt að kíkja við og skoða eftir sam­komu­lagi. Mest af mynd­unum fara á Instagram-síð­una mína www.instagram.com/irisillustrator/.

Umsjón / Stefanía Alberts­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni