Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grannkonan góða

Grannkonan góða

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Fyrir tveimur árum flutti móðir mín í blokk. Hún hafði ákveðið að minnka við sig eftir að pabbi dó og þetta var fal­leg íbúð, full­komin fyrir eina mann­eskju. Í byrjun gekk allt vel og mamma var mjög ánægð en svo flutti ný kona í húsið og þá breytt­ist allt.

Grann­konan bjó á móti mömmu og fljót­lega fór hún að koma yfir í tíma og ótíma. Hún var mik­ill sjúk­lingur að eigin sögn og alltaf var eitt­hvað nýtt að henni. Fyrst var hún með krabba­mein í ristli svo var það komið í mag­ann, næst í heil­ann og svo í beinin. Hún hafði alltaf þjáðst af gigt og ofnæmi, verið með mígreni frá unga aldri og eyrna­bólgur. Hún hafði ávallt nýja sorg­ar­sögu að segja. Út af fyrir sig hefði það verið í lagi ef heim­sókn­irnar hefðu ein­göngu snú­ist um að tala en svo var ekki. Í hvert sinn bað hún mömmu um hjálp við eitt­hvað.

Hún var líka óskap­lega gleymin. Mamma var alltaf að hleypa henni inn eftir að hún hafði gleymt lyklunum sínum. Hún fékk svo að sitja inni hjá henni meðan beðið var eftir að son­ur­inn kæmi með auka­lykla og opn­aði íbúð­ina. Sífellt meiri truflun var að þessu fyrir mömmu og hún fékk oft ekki frið heima hjá sér dag eftir dag vegna grann­kon­unnar.

Fegurðardrottning

Þegar hún var ung hafði þessi kona verið áber­andi í þjóð­líf­inu um tíma og flogið hátt eins og þar stendur. Hún tók þátt í feg­urð­ar­sam­keppni og vann. Eftir það starf­aði hún sem fyr­ir­sæta um tíma. Hún gift­ist manni í góðri stöðu og bjó lengi erlendis. Þegar þau hjónin skildu flutti hún heim. Mamma fékk að heyra langar og átak­an­legar sögur af því hversu illa mað­ur­inn hafði farið með hana og hvernig hann hafði séð til þess að hún færi slypp og snauð út úr skipt­unum.

„Ég fann fljót­lega að þetta var farið að leggj­ast þungt á mömmu. Hún vor­kenndi kon­unni en hafði enga orku til að sinna svona krefj­andi mann­eskju. Mamma mín er rúm­lega sjö­tug og konan á svip­uðum aldri.“

Hvernig sem því var nú háttað var að minnsta kosti víst að konan átti enga pen­inga. Sonur hennar keypti handa henni íbúð­ina á móti mömmu en að öðru leyti lifði hún á örorku­bótum. Þær gáfu ekki rúm til að leyfa sér mikið og allt var grann­kon­unni ofboðs­lega erfitt. Oft bað hún mömmu að hjálpa sér við að greiða sér, nagla­lakka negl­urnar eða ein­hver önnur smá­við­vik. Svo var hún farin að þvo henni um hárið, setja í hana rúllur og hjálpa henni að hreinsa húð­ina.

Smátt og smátt juk­ust kröf­urnar. Grann­konan  bað mömmu æ oftar að fara út í búð fyrir sig, keyra sig til vin­kvenna, lækna eða í hár­greiðslu. Hún var líka farin að kalla á mömmu þegar hún vildi flytja til hús­gögn en hún var alltaf að breyta upp­röðun í íbúð sinni. Reglu­lega kom hún og fékk lán­aða mjólk, morg­un­korn, hveiti eða eitt­hvað annað. Brátt var hún farin að mæta á mat­máls­tímum og sat um að sníkja mat af mömmu.

Hélt uppteknum hætti

Ég fann fljót­lega að þetta var farið að leggj­ast þungt á mömmu. Hún vor­kenndi kon­unni en hafði enga orku til að sinna svona krefj­andi mann­eskju. Mamma mín er rúm­lega sjö­tug og konan á svip­uðum aldri. Ég reyndi allt hvað ég gat að telja mömmu á að segja kon­unni ein­fald­lega að þetta gengi of langt en hún guggn­aði ævin­lega á því. Þess í stað var hún farin að fara út snemma á morgn­ana og laum­ast heim seinni­part­inn. Oft sat hún inni hjá sér með ljósin slökkt og þorði ekki að kveikja á sjón­varpi eða hlusta á tón­list af ótta við grann­konan heyrði og kæmi yfir. Væri dyra­bjöll­unni hringt þorði mamma ekki fyrir sitt litla líf að svara og lét sem hún væri ekki heima. Þegar ég komst að þessu vissi ég að við svo búið mætti ekki standa.

Daginn eftir fór ég sjálf yfir og tal­aði við kon­una og benti henni á að móðir mín væri full­orðin kona og stríddi við ýmsa kvilla líka. Það væri þess vegna ekki hægt að leggja á hana alls konar snún­inga og vinnu í þágu ann­arra. Konan hlust­aði á mig og sagð­ist skilja það ósköp vel. Hún væri bara svo ein í heim­inum og mamma mín ein­stak­lega greið­vikin og góð. Ég er harð­ari af mér en mamma svo ég sagði henni beint út að það gæfi engum leyfi til að mis­nota góð­vild hennar. Sjálf ætti hún son og tengda­dóttur og barna­börn og gæti lík­lega leita til þeirra. Jú, hún við­ur­kenndi það og lof­aði að gera meira af því hér eftir. Hún var klökk þegar hún sagði þetta en ég lét engan bil­bug á mér finna. Mamma átti betra skilið en að búa við hálf­gert umsát­urs­á­stand.

„Smátt og smátt juk­ust kröf­urnar. Grann­konan bað mömmu æ oftar að fara út í búð fyrir sig, keyra sig til vin­kvenna, lækna eða í hár­greiðslu. Hún var líka farin að kalla á mömmu þegar hún vildi flytja til hús­gögn en hún var alltaf að breyta upp­röðun í íbúð sinni.“

Ég hélt að þar með væri málið leyst en svo var aldeilis ekki. Nokkrum vikum seinna komst ég að því að konan hélt áfram að sitja um mömmu og biðja hana um greiða. Eini mun­ur­inn var að nú byrj­aði hún allar beiðnir á: „Heldur þú að dóttur þinni þætti nokkuð of mikið ef þú gerðir mér smá­greiða?“ Og mamma gaf alltaf eftir og gerði það sem beðið var um. Sam­eig­in­legt þvotta­hús var í kjall­ara blokk­ar­innar og oft setti mamma í vél fyrir grann­konu sína, hengdi upp fyrir hana þvott og tók hann niður og færði henni. Reyndar var hún hætt að biðja mömmu að flytja hús­gögn en mamma sótti fyrir hana pakka á póst­húsið og borg­aði aðflutn­ings­gjöld sem hin borg­aði ekki til baka.

Hringt í soninn

Nú var mér algjör­lega nóg boðið. Ég hafði upp á síma­núm­er­inu hjá syn­inum og hringdi í hann. Ég benti honum á að móðir hans væri aug­ljós­lega mikið veik og nær ósjálf­bjarga. Það hefði hingað til lent á mömmu minni að sinna henni nán­ast frá morgni til kvölds á kostnað hennar heilsu. Nú vildi ég að lát yrði á þessu. Ef konan gæti ekki búið ein yrðu þau að leggja drög að því að koma henni á stofnun eða ráða mann­eskju til að sinna henni. Hann hlust­aði kurt­eis­lega á mig og sagð­ist mundu kanna málið.

Næstu daga fylgd­ist ég vel með og mamma fékk algjöran frið frá grann­konu sinni. Ég var farin að halda að málið væri leyst þegar ég frétti að konan var farin að herja á aðra mann­eskju í hús­inu. Sonurinn hafði greini­lega bannað henni að plaga mömmu svo hún var farin að hringja hjá kon­unni á hæð­inni fyrir ofan þegar hún gleymdi lyklunum og setj­ast upp hjá henni. Ég vona sann­ar­lega að sú kona hafi meira bein í nef­inu en mamma og láti hlut­ina ekki ganga eins langt. Mamma er auð­vitað dauð­fegin að vera laus og geta aftur gengið ófeimin um íbúð­ina sína. Ég veit þó ekki hve lengi sú dýrð stendur því ég gæti vel trúað kon­unni til að byrja aftur að biðja hana um greiða ef ekki gengur vel að fá þá frá öðrum íbúum húss­ins.

Ég er líka mjög hissa á að félags­þjón­ustan skuli ekki gera meira fyrir hana. Hvort sem konan ýkir sjúk­dóma sína og sjúk­dóma­sögu eða ekki er aug­ljóst að hún er ósjálf­bjarga að mjög mörgu leyti. Ég hef sjálf séð að hún á mjög erfitt með gang og másar eins og físi­belgur í hvert sinn sem hún þarf að ganga meira en nokkur skref. Ég veit að hún fær heim­il­is­hjálp en þyrfti mun meiri aðstoð. En mamma er alla vega laus í bili og er á meðan er.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun >

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu