Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Setja upp fullorðinssýningu í herrafataverslun

Setja upp fullorðinssýningu í herrafataverslun
Lista­mað­ur­inn Nonni kemur fram. Mynd / Aðsend – Gallery Und­ir­heimar

„Burlesk leikur sér að kyntján­ingu, húmor og holdi og fólk má leggja þá mein­ingu sem það vill í „full­orð­ins­sýn­ing“, segir Margrét Erla Maack, fjöl­lista­kona og fram­kvæmda­stjóri Reykja­vík Kabarett sem vaknar úr dvala á laug­ar­dags­kvöld og tekur höndum saman við Vín­stúk­una og Skjáskot og færir Íslend­ingum skemmtun, burlesk-kab­ar­ett og mat heim í stofu. Að sögn Mar­grétar Erlu er þetta fyrsti fjar-jóla-burlesk-kab­ar­ett­inn á Íslandi þar sem boðið er upp á heimsendan mat og sýn­ingu í beinni útsend­ingu.

Hefur þetta aldrei verið gert áður á Íslandi? „Ekki með þessu móti, nei. Fyr­ir­tæki hafa haldið fjar­skemmt­anir og sent mat heim til starfs­fólks­ins síns, en ég held að þetta sé fyrsti svona pakk­inn sem er ekki inn í fyr­ir­tækja­skemmtun heldur stendur almenn­ingi til boða. En jú, þetta er fyrsti fjar-jóla-burlesk-kaba-rett­inn þar sem boðið er upp á mat og er í beinni útsend­ingu frá herra­fata­verslun,“ segir hún og skellir upp úr.

Sýningin er á vegum Reykja­vík Kabarett sem er braut­ryðj­andi í burlesk-kab­ar­ett­heim­inum á Íslandi að sögn Mar­grétar Erlu. „Nadia verður með burlesk, Gógó Starr verður með boylesque með smjöri svona í til­efni jól­anna og Lalli töfra­maður gerir eitt­hvað óhuggu­legt í miklu návígi með hjálp mynda­vél­anna. Gestir á sýn­ing­unni eru svo Bobbie Michelle húlla­drottn­ing og svo skemmti­krafta­karl­arnir Nonni og Sindri sem eru gríð­ar­lega glæsi­legir fim­leika­folar. Ég sjálf er svo að vinna í nýju atriði með spritt- og grímu­þema. Útsend­ingin verður svo með aktívum spjall­þræði þar sem gestir geta verið í sam­skiptum við okkur á meðan sýn­ing­unni stendur, senda klapp-tjáknið eða ferskj­una. Svona til dæmis,“ segir hún létt í bragði.

„Jiminn hvað við öll hlökkum til að sprella.“

Nú kemur fram að þetta sé full­orð­ins­sýn­ing, hvað þýðir það? „Burlesk leikur sér að kyntján­ingu, húmor og holdi og fólk má leggja þá mein­ingu sem það vill í „full­orð­ins­sýn­ing“. Við mælum alla vega með því að svæfa fyrir sjóv,“ segir hún og blikkar.

Margrét Erla seg­ist hlakka til kvölds­ins. „Fiðr­ing­ur­inn er sann­ar­lega kom­inn,“ segir hún glað­lega. „Að setja upp svona sýn­ingu er svo rosa­lega skemmti­legt og við sökn­uðum þess öll. Á þessum tíma værum við öll út um allar trissur að skemmta, sér­stak­lega á jóla­hlað­borðum,“ segir hún. Mynd / aðsend Gallery Und­ir­heimar

Spurð hvort það sé svo­lítið djörf hug­mynd að slá upp svona sýn­ingu í fata­verslun læð­ist bros fram á varir hennar. „Jú, þetta er í fyrsta sinn sem fólk kemur inn í fata­verslun til að fækka fötum en ekki bæta þeim á sig,“ segir hún og hlær. „Við Óli á Vín­stúkunni ætl­uðum fyrst að setja upp sýn­ing­una hjá honum en svo virkar loft­hæðin þar ekki alveg fyrir sirk­us­dýrin í sýn­ing­unni. Þar sem við erum miklar mið­bæj­ar­klapp­stýrur lá bein­ast við að ræða við vini okkar hjá Herra­fata­verslun Kormáks og Skjaldar. Þar er allt til alls: Húmor, þor, loft­hæð og gott pláss til að allir geti passað upp á fjar­lægð. Svo er þetta ein fal­leg­asta búð í heimi.“

Gógó Starr verður með boylesque með smjöri svona í til­efni jól­anna. Mynd / aðsend Auðunn Níelsson

En hvernig datt ykkur þetta eig­in­lega í hug? „Í raun byrj­aði þessi hug­mynd eftir að við Bragi, kollegi Óla, töl­uðum á streym­is­fundi Við­reisnar um veit­inga- og gigg­geir­ann. Þetta var hjá fram­leiðslu- og við­burða-fyr­ir­tæk­inu Skjá­skoti og í kjöl­farið á fund­inum fórum við Óli að tala um hvaða mögu­leikar væru í stöð­unni eins og fyrir okkur kab­ar­ett­fólkið sem sitjum núna uppi með nokkuð súran des­em­ber út af ástand­inu og langar að búa okkur til vinnu. Við Óli erum svona vinir sem megum helst ekki tala of mikið saman, því við byrjum alltaf að ves­en­ast eitt­hvað. Nema hvað, talið barst að gömlum burlesknem­endum mínum, Tút­tífrútt­unum, sem hafa staðið að tveimur streymis-sýn­ingum sem hafa verið mjög flottar og vel sóttar, og að veit­inga­stöðum sem eru farnir að bjóða upp á alls konar mat til að taka með, af því að þeir eru svo beisl­aðir af fjölda­tak­mörk­unum. Þannig varð þessi hug­mynd til,“ segir hún. „Skjáskot hefur svo allt sem þarf til að láta svona sýn­ingu ganga upp, hvaðan sem er og deli­pakk­inn frá Vín­stúkunni hentar vel með konsept­inu.“

Og var ekk­ert mál að fá lista­menn til að koma fram? „Ónei. Þetta fólk er allt haldið mik­illi sviðs­greddu! Það er ekk­ert leynd­ar­mál að það er jafn skemmti­legt bak­sviðs og á svið­inu í þessum kab­ar­ett­heimi. Við söknum hvors ann­ars og við söknum þess að vinna saman. Kab­ar­ett­inn byggir líka á enda­lausum til­raunum og að vera frum­leg, þannig að við erum til í þessa til­raun,“ segir Margrét Erla full til­hlökk­unar.

Nú eru margir sem kvartan og segj­ast vera að morkna úr leið­indum og til­breyt­inga­leysi í þessu enda­lausa Covid-ástandi. Má ekki segja að þessi sýn­ing verði svona ákveðin upp­lyft­ing? „Sann­ar­lega. Fyrir gest­ina auð­vitað. En jim­inn hvað við öll hlökkum til að sprella á ný. Við verðum eins og kýr að vori!“

Margrét Erla bendir á að áhuga­samir geti nálg­ast allar frek­ari upp­lýs­ingar á Facebok.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu