Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frísklegra útlit í fjórum skrefum

Frísklegra útlit í fjórum skrefum
Pexels

Okkur hættir til að láta allt annað, jóla­gjafainn­kaup, smáköku­bakstur, þrif, skreyt­ingar, elda­mennsku eða bað­tíma barn­anna, ganga fyrir okkar eigin vellíðan og afslöppun. Þess vegna erum við oft örmagna á aðfanga­dags­kvöld og þau þreytu­merki sjást í and­liti okkar. Í ár ættum við allar að reyna að gefa okkur tíma fyrir okkur sjálfar, það þarf ekki að vera meira en tutt­ugu mín­útur og getur ýmist verið á jóla­dag, annan í jólum eða hvenær sem hentar. Nýtum þennan tíma til að hressa upp á húð­ina og til að láta stressið líða úr okkur.

Fyrsta skref
Það er grund­vall­ar­at­riði að byrja með hreina húð, þannig að ef þú ert með farða á þér eftir dag­inn skaltu þrífa hann af þér, muna að taka tvö­falda hreinsun. Síðan er mik­il­vægt að djúp­hreinsa húð­ina því þegar dauðar húð­frumur safn­ast fyrir á yfir­borð­inu verður ásýnd húð­ar­innar líf­laus­ari og ójafn­ari. Hægt er að nota ein­hvers konar skrúbb en best er að nota ávaxta­sýru, öðru nafni glycolic-sýra, því hún hreinsar burtu dauðu húð­frum­urnar í hvelli án þess að erta húð­ina.

Annað skref
Fylgdu hreins­un­inni eftir með léttu and­litsnuddi því það eykur blóð­flæði til húð­ar­innar og byggir upp vöðvana svo að hún slapp­ast síður. Lyk­ill­inn að góðu and­litsnuddi er að nota ein­hvers konar olíu til að koma í veg fyrir að húðin drag­ist til. Það má nota olíu­hreinsi eða þartil­gerða and­litsolíu en einnig er vel hægt að nota almennar plöntu­ol­íur svo sem kókosolíu eða möndlu­olíu. Gott er að byrja með léttum en þéttum strokum upp á við og til hliðar til að und­ir­búa húð­ina og síðan eru fing­ur­gómar löngu­tangar not­aðir til að þrýsta á punkta á and­lit­inu. Eftir ein­göngu eitt skipti er hægt að sjá mik­inn mun á húð­inni sem virkar slak­ari en jafn­framt stinn­ari og ljómar vegna auk­ins blóð­flæðis og nær­ingar. Þrífðu húð­ina svo með volgum þvotta­poka eða not­aðu tis­sjú til að fjar­lægja leifar af olíu.

Þriðja skref
Við höfum áður mælt með því að nota tvo maska hvorn á fætur öðrum, fyrst hreinsimaska og svo rakamaska, til að hámarka áhrifin. Hreinsi­möskum er ætlað að hreinsa burtu dauðar húð­frumur og önnur óhrein­indi og gefa húð­inni slétt­ara yfir­bragð. Í raka­möskum eru hins vegar ýmis raka­gef­andi og róandi efni sem hjálpa við að styrkja húð­ina, gera áferð hennar fal­legri og auka ljóma hennar. Þegar maður er tíma­bund­inn er sniðugra að nota nokkra maska í einu á ólík svæði and­lits­ins og sníða þannig and­lits­mask­ann eftir sínum þörfum. Flestir maskar þurfa um fimmtán mín­útur til að virka, en yfir­leitt er óhætt að leyfa þeim að vera á húð­inni í um það bil hálf­tíma svo það er um að gera að slappa af. Húð augn­s­væð­is­ins er þynnri og við­kvæm­ari en ann­ars staðar á and­lit­inu sem þýðir að öll þreytu­merki verða sýni­legri þar og hún þarfn­ast sér­stakrar umhirðu. Regluleg notkun augn­krema getur dregið úr baugum, minnkað poka og þrota og spornað gegn hrukku­myndun á svæð­inu. En stundum er þörf á skjót­ari lausn og þá er gott að grípa til augnmaska sem eru oft­ast þunnar tauskífur, gegn­sósa í virkum efnum, og lagðar á augn­s­væðið.

Fjórða skref
Eftir að þú hefur þvegið mask­ana af er mik­il­vægt að koma strax aftur raka á húð­ina. Byrjaðu á að strjúka bómull­ar­skífu yfir með raka­gef­andi og róandi and­lits­vatni sem und­ir­býr húð­ina fyrir þann raka­gjafa sem kemur á eftir. Rakaþörf húðar getur verið mjög mis­mun­andi, sumir eru með þurra húð, aðrir feita, en allir þurfa þó að nota raka­krem við sitt hæfi. Ekki er úr vegi að nota olíu á húð­ina ef maður er að fara í hátt­inn því olíur inni­halda mikið magn virkra og nátt­úru­legra efna og veita húð­inni góðan raka og nær­ingu. Ef þú ert að dekra við þig á aðfanga­dags­morgun eða ert ekki að fara beint í hátt­inn nægir þér að setja á þig raka­gef­andi serum, síðan þitt venju­lega dag­krem og þá ertu til­búin í slag­inn.

Umsjón / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu