Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég er ekki að leita að karli“

„Ég er ekki að leita að karli“

Fyrir fjórum árum skildi ég við mann­inn minn. Ég komst að því að hann hafði haldið fram­hjá mér um tveggja mán­aða skeið. Konan var fyrr­ver­andi kærasta hans og þetta var gríð­ar­legt áfall. Mér fannst eins og allt okkar hjóna­band hefði verið lygi, eitt­hvert milli­bils­á­stand meðan hann biði eftir að hún losn­aði. Ég var því mjög brotin og kærði mig sann­ar­lega ekki um sam­bönd við aðra karl­menn en þeir létu mig ekki í friði.

Við Biggi kynnt­umst á bar í mið­bænum. Hann var fynd­inn og skemmti­legur og ég féll eig­in­lega strax fyrir honum. Hann var líka umhyggju­samur og ljúfur og mér fannst lengi að ég hefði fundið drauma­prins. Að vissu leyti var hann það líka en hann hafði brennt sig illa í fyrra sam­bandi. Fljót­lega sagði hann mér frá Stínu, sinni fyrr­ver­andi, hversu hrif­inn hann hefði verið af henni og hvernig hún hafði svikið hann. Þau höfðu haft allt til alls, hann var með góðar tekjur, hún líka og lífið virt­ist brosa við þeim. Þar til Biggi komst að því að hún hélt við yfir­mann sinn í vinn­unni. Heimur hans hrundi. Í tvö ár var hann ger­sam­lega brot­inn og gat varla farið út fyrir húss­ins dyr.

Hann leit­aði sér loks hjálpar og með­ferðin farin að skila árangri þegar við hitt­umst. Við nutum þess að fara hægt af stað, fórum mjög margt saman og skemmtum okkur. Við bjuggum sitt í hvoru lagi en not­uðum vel kvöldin og helg­arnar. Við eigum sam­eig­in­legt áhuga­mál sem við stund­uðum saman en fórum líka mikið í leik­hús, bíó, göngu­ferðir, bílt­úra og út að borða. Þetta var ynd­is­legur tími. Ég hef aldrei haft það jafn­gott á ævinni. Vinir Bigga tóku mér mjög vel en kannski hefðu við­vör­un­ar­ljós átt að kvikna þegar einn þeirra hafði orð á því að ég líkt­ist Stínu í útliti. Ég hafði séð myndir af henni og fannst það ekki vera svo en sé eftir á að við erum svip­aðar týpur, báðar ljós­hærðar og blá­eygðar og með líkan vöxt. Ég veit ekki hvort það var þess vegna sem hann valdi mig, það er ómögu­legt að segja en hefur ábyggi­lega haft áhrif.

Rómantískari og betri

Eftir rúm­lega árs sam­band fórum við Biggi að búa saman. Það gekk mjög vel þótt auð­vitað yrðu árekstrar. Ég átti mína eigin íbúð og hafði búið ein meðan ég var í námi í útlöndum og var þess vegna fremur fast­heldin á margar venjur en okkur gekk vel að vinna úr hlut­unum. Kannski hjálp­aði sú vin­átta sem við vorum búin að byggja upp þegar koma að því. Eftir nokk­urra mán­aða sam­búð giftum við okkur. Við vorum alveg viss um að þetta vildum við en vorum sam­mála um að bíða með að eign­ast börn þar til við værum komin í fram­tíð­ar­hús­næði.

Eftir tveggja ára hjóna­band vorum við Biggi farin að tala um barn­eignir og að kaupa okkur hús saman. Þá tók ég eftir að hann hafði breyst. Fyrst fannst mér hann hálf­ann­ars hugar og alltaf upp­tek­inn þegar ég stakk upp á að við gerðum eitt­hvað. Hann þurfti að vinna, hitta vini, þvo bíl­inn eða eitt­hvað annað. Ég hafði litlar áhyggjur því jafn­framt þessu varð hann enn ljúfari og betri við mig en hann hafði verið. Hann kom oft heim með blóm, eld­aði mat­inn, gaf mér gjafa­kort í spa og hvatti mig til að fara eitt­hvert og njóta lífs­ins meðan hann væri upp­tek­inn.

„Það sem fór þó mest í taug­arnar á mér var að út úr ýmsum skúma­skotum og orma­gryfjum skriðu karlar sem töldu að ég væri að leita hugg­unar og þeir réttu menn­irnir til að veita hana. Í þeim hópi var besti vinur Bigga, sá sem mér fannst svo skiln­ings­ríkur í fyrstu.“

Fyrst fannst mér þetta ekk­ert skrýtið, var bara ánægð með hvað ég ætti góðan mann en þegar hann var far­inn að fara undan í flæm­ingi þegar ég nefndi börn eða stakk upp á að við skoð­uðum hús saman varð ég tor­tryggin. Áður varð það hann sem ýtti á að við gerðum þessa hluti. Ég spurði hann þess vegna hreint út hvort eitt­hvað hefði breyst. Hvort hann væri ekki enn sama sinnis. Hann reidd­ist og sak­aði mig um að vera ósann­gjarna í sinn garð. Það væri mikið að gera og mjög skrýtið að ég treysti honum ekki betur en þetta. Þessi við­brögð voru svo fárán­leg og ekki í neinu sam­ræmi við orð mín að ég vissi um leið að hann stæði í fram­hjá­haldi.

Ég spurði hann hreint út og hann þver­neit­aði. Ég var ekki sann­færð og gekk á hann aftur og aftur. Hann varð alltaf ösku­reiður og rauk jafnan út. Þetta end­aði með því að ég hringdi í besta vin  hans, sagði honum hvernig málin stæðu og að ég yrði að vita sann­leik­ann. Við hefðum verið farin að tala um barn­eignir og ég væri hætt að nota getn­að­ar­varnir. Það síð­asta sem ég vildi væri að sitja uppi ófrísk eftir mann sem ekki væri hund­rað pró­sent skuld­bund­inn mér. Vinur hans vildi ekk­ert segja í fyrstu og tal­aði um að þetta væri okkar mál, milli tveggja og hann ætti ekk­ert með að blanda sér í það. Loks gafst hann upp en sagð­ist ekki vita meira en að Biggi hefði hitt Stínu fyrir tveimur mán­uðum og hún væri farin frá yfir­mann­inum.

Mikið áfall

Þetta var algjört áfall. Þótt ég hefði verið nokkuð viss um að Biggi stæði í ein­hverju fram­hjá­haldi hafði mér aldrei dottið hún í hug. Mér fannst þetta þýða að ég hefði ævin­lega verið vara­skeifa fyrir Stínu og full­góð meðan hann beið eftir henni en um leið og hún kall­aði sneri hann aftur til hennar. Ég var nið­ur­brotin og ger­sam­lega búin á taugum þegar Biggi kom loks­ins heim. Ég sagði honum að ég væri búin að fá stað­fest­ingu á að hann héldi fram­hjá mér og að ég vissi hver konan væri. Þá ját­aði hann allt en grét og bað mig að skilja ekki því hann elskaði mig. Hann hefði bara þurft að ná Stínu út úr system­inu, eins og hann orð­aði það. Ég sagði honum að ekki kæmi til greina af minni hálfu að halda hjóna­band­inu áfram og sama kvöld flutti hann út.

„Við eigum sam­eig­in­legt áhuga­mál sem við stund­uðum saman en fórum líka mikið í leik­hús, bíó, göngu­ferðir, bílt­úra og út að borða. Þetta var ynd­is­legur tími. Ég hef aldrei skemmt mér betur á ævinni. Vinir Bigga tóku mér mjög vel en kannski hefðu við­vör­un­ar­ljós átt að kvikna þegar einn þeirra hafði orð á því að ég líkt­ist Stínu í útliti.“

Næstu mán­uðir voru skelfi­legir. Ég var sund­ur­tætt af sorg og reiði og reyndi allt hvað ég gat að púsla mér saman. Ekki hjálp­aði að til að byrja með lét Biggi mig ekki í friði og suð­aði stans­laust í mér að fyr­ir­gefa sér, tala við ráð­gjafa, taka við sér aftur og þar fram­eftir göt­unum. Á sama tíma frétti ég af honum heima hjá Stínu á degi sem nóttu. Að lokum sá ég mér ekki annað fært en að flýja til vin­konu minnar í Frakk­landi. Þar dvaldi ég í mánuð og svar­aði engum sím­tölum, sms-um eða tölvu­skila­boðum frá honum. Ég eyddi öllu óséðu, ákveðin í að gefa mér tíma til að hugsa málin ótrufluð. Það hjálp­aði mér að vinur Bigga, sá sem ég hringdi í hafði sam­band af og til og spurði hvernig ég hefði það. Hann spjall­aði við mig en nefndi Bigga aldrei á nafn og minnt­ist ekki á hvað væri í gangi þar, gaf mér bara færi á að tala um hversu rugluð ég væri, döpur og illa stemmd. Mér fannst hann ein­stak­lega skiln­ings­ríkur og fínn, enda mennt­aður á sál­fræðisviði.

Þegar ég kom heim hitt­umst við Biggi til að ræða um okkar mál. Ég sagði honum að ég hefði tekið end­an­lega ákvörðun, okkar sam­bandi væri lokið. Hann tók því ekki illa en seinna komst ég að því að á því tíma­bili höfðu þau, Stína og hann, ákveðið að taka upp sam­búð. Við skildum svo í nokkuð sæmi­legri sátt miðað við það sem á undan var gengið. Biggi og Stína urðu hins vegar ekki lang­líf. Hún henti honum út og tók aftur saman við eig­in­mann­inn. Eftir það reyndi hann nokkrum sinnum að hringja í mig en ég svar­aði aldrei.

Aðrir menn

Allt þetta var mér mjög erfitt og ég þurfti að leggja hart að mér til að vinna úr því. Leitaði mér hjálpar fag­fólks og fann lengi fyrir ein­kennum áfallastreiturösk­unar. Það sem fór þó mest í taug­arnar á mér var að út úr ýmsum skúma­skotum og orma­gryfjum skriðu karlar sem töldu að ég væri að leita hugg­unar og þeir réttu menn­irnir til að veita hana. Í þeim hópi var besti vinur Bigga, sá sem mér fannst svo skiln­ings­ríkur í fyrstu. Þetta hrein­lega olli mér ógleði og ég hef ekki tölu á hversu oft ég varð að segja: „Ég er ekki að leita að karli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu