Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Uppnám við Downingstræti 10: Sigurður mátti ekki sjást berrrassaður

Uppnám við Downingstræti 10: Sigurður mátti ekki sjást berrrassaður

Blaða­full­trúi breska for­sæt­is­ráð­herr­ans greip í taumana þegar Spaug­stofu­menn ætl­uðu að taka upp atriði á tröppum heim­ilis for­sæt­is­ráð­herra. Atriðið þótti gróft og jafn­vel ögrun við  breska heims­veldið. Karl Ágúst Úlfsson, einn for­sprakka Spaug­stof­unnar, rifjar atvikið upp á Facebook og sam­skiptin við fjöl­miðla­full­trú­ann sem birt­ist skyndi­lega á tröppum Downingsstrætis 10 þar sem Spaug­stofu­menn voru að gera sig klára.

„Við létum eins og við værum í miðbæ Reykja­víkur og stilltum upp mynda­vél. Siggi var í hlut­verki Gunn­laugs Skarann og byrj­aði að æfa texta sem fjall­aði um bresk stjórn­mál. Það stóð bobby við dyrnar á Nr. 10 og fljót­lega eftir að við mættum á stað­inn og byrj­uðum að æfa sá ég að hann var far­inn að ókyrr­ast. Síðan brá hann sér inn­fyrir dyrnar. Það leið ekki á löngu áður en hann kom út aftur í fylgd með öðrum manni. Sá storm­aði ákveðnum skrefum í átt­ina til okkar. Ég man því miður ekki nafnið, en hann kynnti sig sem blaða­full­trúa breska foræt­is­ráð­herr­ans. „Afsakið en hver eruð þið?“ spurði hann afar hvasst.
„Við erum Spaug­stofan, ein­stak­lega vin­sælt grín­gengi frá Íslandi. Við erum með marg­stimpluð leyfi til að vera hér,“ sagði ég.
„Grín­gengi? Hvað eruð þið að gera hér?“ Honum fannst ég greini­lega ekki hafa útskýrt neitt.
„Já, við erum að gera gam­an­þátt“, sagði ég og hélt ennþá að allt væri í lagi.
„Gott og vel, sagði hann, en hvers vegna í ósköp­unum eruð þið hér við Downingstræti 10?“
„Jú, vegna þess að við erum meðal ann­ars að fjalla um breska póli­tík á svip­aðan hátt og við reynum að gera íslenskum stjórn­málum skil í hverri viku, og Downinstræti 10 er vissu­lega heims­frægur staður, ekki satt“?
Karl sá strax á svip við­mæl­and­ans að honum fannst þessi skýr­ing hreint ekki full­nægj­andi en svo virt­ist hannn ætla að gefa sig.
„Jæja já. Og hvað er það sem þið ætlið að taka upp?“
Nú hélt Karl að hann hefði und­ir­tökin og hélt víg­reifur áfram og lýsti því að Siggi Sig­ur­jóns, léki frétta­mann sem segði fréttir af því sem efst væri á baugi í höf­uð­stað heims­veld­is­ins.
„Segjum það“, sagði blaða­full­trú­inn með full­kom­unum Oxford fram­burði.
Karl hélt áfram að lýsa atrið­inu sem fól í sér stuttan inn­gang en þá komi Pálmi Gestsson, sem íslenskur kver­úlant, og Randver Þor­láks­son í kven­gervi  og ryðj­ast inn í mynd og girða niðrum Sigurð. Blaða­full­trú­inn tók kipp.
„Girða niðrum hann?“
Karl stað­festi og gat vart haldið niðri í sér hlátr­inum.
„Já, þau girða niðrum hann, vegna þess að þeim finnst eins og hann hafi ekki nýtt sér öll þau ein­stöku kauptæki­færi sem Lund­úna­borg hafi uppá að bjóða sama­borið við Reykja­vík, þar sem verð­lagið sé svo fárán­lega óhag­stætt miðað við …“.
„Nei! sagði blaða­full­trú­inn. Hreint ekki! Alls ekki! Hér verður ekki girt niður um nokkurn mann. Ekki hér fyrir framan Downingstræti 10. Bara alls ekki!“.

Spaug­stofu­menn­irnir frá Íslandi urðu að hörfa frá hjarta breska heims­veld­is­ins án þess að fðá tæki­færi til að girða niður um Sigurð Sig­ur­jóns­son.

Pistill Karls Ágústs á Facebook í heild sinni: Þetta var sem sagt Lund­úna­ferð Spaug­stof­unnar og ég var kom­inn til stór­borg­ar­innar á undan félögum mínum til að velja töku­staði og kort­leggja ferða­lag okkar um borg­ina svo okkur mætti lukk­ast að skjóta tvo þætti á einum töku­degi.
Ég var í þéttu bandi við íslenska sendi­ráðið og það var ungur starfs­maður þar sem sótti mig á hót­elið og ók mér um alla borg til að sýna mér hvernig væri auð­veld­ast að kom­ast á milli þeirra töku­staða sem voru á óska­lista mínum. Eini stað­ur­inn sem þessi ungi maður taldi að við þyrftum sér­stakt leyfi til að taka upp á var heim­ili breska for­sæt­is­ráð­herr­ans, Downingstræti 10. Þetta leyfi sagði hann að íslenska sendi­ráðið væri þegar búið að sækja um og fá sam­þykki fyrir.
Spaug­stofan mætti síðan gal­vösk ásamt tökuliði dag­inn eftir yfir­reið mína um höf­uð­borg Breta.
Þegar við höfðum skotið atriði með Ragnari Reykás á Piccadilly, þar sem við lentum í úti­stöðum við götu­sala, sem taldi að við værum að hafa af honum rétt­mæt við­skipti, og atriði í Hyde Park, þar sem við urðum að taka til fót­anna þegar við heyrðum lög­reglu­sýrenu og vissum að við hefðum ekki leyfi fyrir kvik­mynda­töku, lá leiðin að Downingstræti.
Það stóð algjör­lega heima að íslenska sendi­ráðið hafði sótt um upp­töku­leyfi fyrir utan Nr. 10 og að það leyfi hafði verið veitt. Hins vegar hafði ekk­ert okkar gert sér grein fyrir því hvað þetta fæli í sér. Rútan okkar stopp­aði við enda göt­unnar, en þar var fimm metra hátt járn­hlið og í því stóð öfl­ugur lög­reglu­vörður. Fulltrúi lög­regl­unnar var með lista í hönd­unum yfir alla sem fengið höfðu leyfi til að stíga inn í Downingstræti þennan dag­inn. Ég var á list­anum sem leik­stjóri, auk Dönu kvik­mynda­smiðs og leik­ar­anna Sigga, Pálma og Randvers. Mig minnir að hljóð­maður hafi ekki fengið leyfi til inn­göngu, ekki sminka, ekki bún­inga­kona, og okkar ást­kæri pródúsent Tage Amm­endrup varð að híma utan hliðs. Öll urðum við vita­skuld að sýna vega­bréf við inn­gang­inn til að sanna hver við værum.
Við röltum upp göt­una og komum að þessu lát­lausa húsi. John Major var nýtek­inn við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra þegar hér var komið sögu, en Íhalds­flokk­ur­inn breski hafði mörgum að óvörum skákað Margréti Thatcher út af borð­inu nokkrum vikum fyrr. Nú vorum við sem sagt staddir á yfir­ráða­svæði Johns Majors og Íhalds­flokks­ins.
Við létum eins og við værum í miðbæ Reykja­víkur og stilltum upp mynda­vél. Siggi var í hlut­verki Gunn­laugs Skarann og byrj­aði að æfa texta sem fjall­aði um bresk stjórn­mál. Það stóð bobby við dyrnar á Nr. 10 og fljót­lega eftir að við mættum á stað­inn og byrj­uðum að æfa sá ég að hann var far­inn að ókyrr­ast. Síðan brá hann sér inn­fyrir dyrnar. Það leið ekki á löngu áður en hann kom út aftur í fylgd með öðrum manni. Sá storm­aði ákveðnum skrefum í átt­ina til okkar. Ég man því miður ekki nafnið, en hann kynnti sig sem blaða­full­trúa breska foræt­is­ráð­herr­ans.
– Afsakið, en hver eruð þið? spurði hann afar hvasst.
– Við erum Spaug­stofan, ein­stak­lega vin­sælt grín­gengi frá Íslandi. Við erum með marg­stimpluð leyfi til að vera hér.
Þetta sagði ég.
– Grín­gengi? Hvað eruð þið að gera hér? Honum fannst ég greini­lega ekki hafa útskýrt neitt.
– Já, við erum að gera gam­an­þátt, sagði ég og hélt ennþá að allt væri í lagi.
– Gott og vel, sagði hann, en hvers vegna í ósköp­unum eruð þið hér við Downingstræti 10?
– Jú, vegna þess að við erum meðal ann­ars að fjalla um breska póli­tík á svip­aðan hátt og við reynum að gera íslenskum stjórn­málum skil í hverri viku, og Downinstræti 10 er vissu­lega heims­frægur staður, ekki satt?
Ég sá það strax á svip við­mæl­anda míns að honum fannst þessi skýr­ing hreint ekki full­nægj­andi, en loks dæsti hann og sagði:
– Jæja já. Og hvað er það sem þið ætlið að taka upp?
Nú hélt ég virki­lega að ég hefði und­ir­tökin svo ég hélt víg­reifur áfram.
– Þessi náungi hér (Siggi Sig­ur­jóns) leikur frétta­mann sem er að flytja fréttir af því sem efst er á baugi hér í höf­uð­stað heims­veld­is­ins.
– Segjum það, sagði blaða­full­trú­inn með full­kom­unum Oxford fram­burði.
– Nú, hann flytur stuttan inn­gang, en þá koma þessi tvö (Pálmi Gests sem íslenskur kver­úlant og Randver í kven­gervi),og þau ryðj­ast inn í mynd og girða niðrum hann.
– Girða niðrum hann?
– Einmitt. – Og ég gat varla haldið niðri í mér hlátr­inum.
– Já, þau girða niðrum hann, vegna þess að þeim finnst eins og hann hafi ekki nýtt sér öll þau ein­stöku kauptæki­færi sem Lund­úna­borg hafi uppá að bjóða sama­borið við Reykja­vík, þar sem verð­lagið sé svo fárán­lega óhag­stætt miðað við …
– Nei! sagði blaða­full­trú­inn. Hreint ekki! Alls ekki! Hér verður ekki girt niður um nokkurn mann. Ekki hér fyrir framan Downingstræti 10. Bara alls ekki!
Nú stóð ég á miðri bryn­var­inni götu fyrir framan þetta sögu­fræga hús og varð kjaft­stopp í augna­blik. Ég stóð and­spænis blaða­full­trúa Johns Majors, sem vissu­lega hlaut að telj­ast einn af valda­mestu mönnum heims um þessar mundir, og það sem mig langað mest þar og þá var að útskýra fyrir honum, þeas. blaða­full­trú­anum, að þetta væri í raun­inni alveg frá­bær brand­ari sem við værum í þann veg­inn að festa á filmu. Samt var eitt­hvað sem sagði mér að taka mjúk­lega í hand­brems­una og segja þess í stað:
– Ég skil. Ég skil full­kom­lega herra (sem ég man ekki hvað heitir). Auðvitað verður ekki girt niðrum nokkurn mann hér á þessum virðu­lega stað. En vegna þess að við erum nú með þetta leyfi í hönd­unum ætla ég að fá að nýta mér það og taka ein­ungis mynd af Sigga Sigrjóns með Downingstræti 10 í bak­sýn, þar sem hann talar ein­ungis íslensku og segir ekk­ert annað en elsku­lega hluti um breska heims­veldið.
Blaða­full­trú­inn kinnk­aði kolli, reyndar svo­lítið dræmt, og sneri aftur inn í bústað for­sæt­is­ráð­herr­ans.
Við ýttum á rec og tókum upp nokkur innslög með Gunn­laugi Skarann. Það fór ekk­ert fram­hjá mér að bobby­inn við dyrnar fylgd­ist með hverri hreyf­ingu okkar og ég sá líka að blaða­full­trú­inn (sem ég vildi svo sann­ar­lega óska að ég myndi nafnið á) horfði á okkur út um glugg­ann.
Þegar þessum tökum var lokið gengum við út um járn­hliðið og ókum burt. Næsta verk­efni okkar var að finna bak­grunn sem gat litið út eins og Downingstræti 10. Sem betur fer er bústaður breska for­sæt­is­ráð­herr­ans ekki ein­stakur í útltiiti á nokkurn hátt og í næsta nágrenni við hann má finna fjölda húsa sem líta nákvæm­lega eins út. Fyrir framan eitt þeirra reynd­ist okkur leikur einn að girða niðrum Sigga og hafa í frammi alla þá ósið­legu hátt­semi sem þótti óvið­eig­andi á dyra­þrepi for­sæt­is­ráð­herr­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu