Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

8 skotheld ráð til að standa við áramótaheitin

8 skotheld ráð til að standa við áramótaheitin

Nú þegar við erum í þann mund að sprengja inn nýja árið eru margir farnir að leiða hug­ann að ára­móta­heitum. Sumir ætla að setja sér heilsu­tengd mark­mið; til dæmis að hætta að reykja, borða holl­ari mat eða hreyfa sig meira, á meðan aðrir ætla að verja meiri tíma með fjöl­skyldu og vinum, ferð­ast meira eða læra eitt­hvað nýtt. Þó flest okkar strengi ára­móta­heit á hverju ári eru það færri sem standa við þau. Ein­hverjir munu eflaust strengja sömu heit í ár og þeir strengdu í fyrra vegna þess að þau hafa ekki enn náðst. Lyk­ill­inn að því að standa við heitin er að ætla sér ekki um of og hér eru nokkur ráð í við­bót sem gott er að hafa í huga.

1. Ekki strengja ára­móta­heit bara til þess að gera það og ekki ákveða þau korter í mið­nætti, slík heit eru yfir­leitt lít­ils virði. Gefðu þér tíma til að hugsa þig vel um og settu þér mark­mið sem skipta þig raun­veru­lega máli. Reyndu jafn­framt að láta ekki skoð­anir og gildi ann­arra hafa áhrif á val þitt því til þess að ná árangri verður þú að vilja það.

2. Tak­mark­aðu þig við þann fjölda sem þú ræður við, heppi­leg­ast er að halda sig við tvö eða þrjú heit. Þannig ein­beit­iru þér að þeim mark­miðum sem þú vilt helst ná fram og ert ekki að sóa tíma þínum.

3. Hafðu mark­miðin nákvæm því það gerir þér auð­veld­ara að fylgja þeim eftir. Í stað þess að strengja loðið ára­móta­heit, eins og að hreyfa sig meira, á maður að vera ákveð­inn og setja sér skýrar reglur, til dæmis að ganga í hálf­tíma á hverjum degi eða fara í rækt­ina kl. 17:00 á mánu-, mið­viku- og föstu­dögum.

4. Góð skipu­lagn­ing tryggir góðan árangur. Með nútíma­tækni er hægt að auð­velda sér hlut­ina til muna og gera hlut­ina næstum sjálf­krafa. Sem dæmi má nefna sparnað; ef þú vilt spara hálfa milljón á kom­andi ári get­uru ein­fald­lega reiknað út hve mikið þú þarft þá að leggja fyrir á mán­uði og setja þann sparnað í áskrift í heima­bank­anum þínum. Þannig þarftu ekki að muna eftir því að leggja fyrir í hverjum mán­uði heldur leggst sjálf­krafa inn á sparn­að­ar­reikn­ing­inn þinn.

5. Búðu þig undir það að þurfa að bregða út af van­anum. Meg­in­á­stæða þess að fólk nær ekki mark­miðum sínum er sú að það er ekki til­búið að breyta ýmsum venjum þrátt fyrir að þær spilli fyrir. Góð leið er að hugsa á hverjum degi um hvernig þú getir kom­ist nær tak­mark­inu. Önnur leið er að helga alltaf einni klukku­stund dags­ins mark­mið­inu, flest okkar getum jú fórnað klukku­tíma af sófa­hangsi.

6. Skrifaðu ára­móta­heitin niður og hafðu list­ann hang­andi uppi við á sýni­legum stað, til dæmis á ískápnum eða við skrif­borðið, og lestu þau reglu­lega. Þannig fest­ast þau í und­ir­með­vit­und­inni sem margir vilja meina að það sé lyk­ill­inn að því að ná árangri. Einnig er gott að sjá fyrir sér árang­ur­inn og hvernig þér mun líða þegar mark­mið­inu er náð.

7. Venjan er að halda ára­móta­heitum leyndum. Það getur samt reynst hvetj­andi að segja nokkrum vel völdum ein­stak­lingum frá ára­móta­heit­unum því þá er ein­hver annar sem veit hvort þú sért að standa þig eða ekki. Vanda þarf valið og velja jákvæða ein­stak­linga sem eru góðar klapp­stýrur eða pepp­arar, sleppa nei­kvæðu eða letj­andi ein­stak­ling­unum.

8. Mik­il­væg­asta reglan er að fyr­ir­gefa þér þegar þér fer aftur. Það er óhjá­kvæmi­legt að þú munt hrasa ein­hvern tím­ann á árinu því það geta ekki allir verið full­komnir alltaf. Margir falla í þá gryfju að gef­ast upp um leið og þeim mis­tekst. Það að mis­takast er hluti af ferl­inu svo maður þarf að taka því og halda áfram ótrauður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu