Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Flöskuskeyti frá Íslandi vekur óhug: „Ég er lokaður inni, ég heyri brimhljóð“ – Morð, segir Rebekka

Flöskuskeyti frá Íslandi vekur óhug: „Ég er lokaður inni, ég heyri brimhljóð“ – Morð, segir Rebekka

„Ég er lok­aður inni og það er hleri fyrir glugg­anum, en ég heyri brim­hljóð og get rétt aðeins grillt í sjó­inn og fjör­una í gegnum gat í hler­anum.“

Þetta er hluti úr bréfi sem fannst í flösku­skeyti við Nor­egs­strendur árið 1972. Bréfið er óhugn­an­legt og telur Rebekka Jóhann­es­dóttir, sem rekur bak­arí í Noregi, að bréf­rit­ari hafi verið myrtur. Rebekka fékk bréfið frá föður sínum. Honum hafði áskotn­ast það frá norskum vini sem hafði haft það í fórum sínum frá árinu 1972 til 2019.

Í bréf­inu er að finna skelfi­legar lýs­ingar af frels­is­svipt­ingu. Sé sann­leiks­korn að finna í bréf­inu, þá er nokkur tími síðan atburð­irnir áttu sér stað. Þar lýsir karl­maður að hann hafi verið rænt af þremur mönnum og einn þeirra hafi verið banda­rískur her­maður. Hann segir hina tvo vera Íslend­inga, Geir heitir annar og hinn sé sonur böð­uls­ins Bj. Ben. Kveðst bréf­rit­ari vera haldið föngnum í kofa og sé lam­inn kvölds og morgna. Í kof­anum hafi verið rit­vél og skráir hann þar sögu sína í von um að verða bjargað. Bréfið má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Á vefnum tima­rit.is kemur skams­töf­unin Bj. Ben fyrir rúm­lega hund­rað sinnum. Þar er skamm­stöf­unin oft eignuð Bjarna Bene­dikts­syni, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Það er því rétt að taka fram að ekki er hægt að full­yrða á nokkurn hátt að í þess­ari umfjöllun sé átt við fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Þá er einnig rétt að geta þess að heitar umræður um bréfið áttu sér stað á sam­fé­lags­miðlum og þar töldu sumir að bréfið væri aug­ljós­lega skáld­skapur. Sló bréfið í gegn í grúpp­unni Gamlar ljós­myndir á Facebook og þótti mörgum það skemmti­leg gesta­þraut, allt þar til það var fjar­lægt.

Bréfinu fjarlægt af Facebook

Nýverið fékk Rebekka svo aðgang að hinu dul­ar­fulla bréfi sem fær hárin til að rísa. Rebekka deildi fyrst bréf­inu í grúpp­una gamlar ljós­myndir á Facebook í von um að henni bær­ist frek­ari upp­lýs­ingar. Þess í stað var bréf­inu í tvígang eytt en þá höfðu skap­ast fjörugar umræður um hið dul­ar­fulla bréf.

„Ég held að mað­ur­inn sem skrif­aði bréfið hafi verið myrtur,“ sagði Rebekka óskaði eftir að upp­lýs­ingum um þann sem mögu­lega skrif­aði hið óhugn­an­lega bréf.

„Nú vantar mig hjálp.“

Rebekka segir í sam­tali við Mannlíf að vinur föður hennar hafi fundið flösku­skeytið árið 1972, frekar en árið 1973. „Ég væri mjög mikið til í að láta rann­saka þetta fyrir mig.“ Rebekka heldur áfram:

„Þetta byrj­aði þannig að góður vinur föður míns fann flösku­skeytið fyrir 40 árum, skammt frá bústaðnum sínum í Hvaler í Noregi. Hann gleymdi síðan skeyt­inu í öll þessi ár og fundu það síðan bara aftur nýverið. Þeim fannst þetta skemmti­legt og áhuga­vert,“ segir Rebekka sem deildi ráð­gát­unni inn á Facebook-síð­una Gamlar ljós­myndir. Í bæði skiptin áttu sér stað fjörugar umræður. Sumir köst­uðu fram fjör­ugum kenn­ingum á meðan aðrir sögðu að inni­haldið skáld­skap. Gísli Ásgeirs­son, rit­höf­undur, leið­sögu­maður og íslensku­fræð­ingur sagði bréfið skemmti­legt en væri skáld­skapur, og svip­aði til fjölda­fram­leiddra bóka sem má stundum finna í sum­ar­bú­stað í kilju­formi. Þá var stjórn grúpp­unnar gagn­rýnd í inn­leggi og tóku margir undir gagn­rýni máls­hefj­anda. Þegar einn stjórn­andi var spurður hvort hann tengd­ist jafn­vel mál­inu, hvarf sú umræða líka.

Í sam­tali við Mannlíf segir Rebekka að flösk­unni sjálfri er hýsti bréfið hafi verið fargað. Á bréf­inu er heldur ekk­ert nafn að finna.

„Ef þið hafið ein­hverjar upp­lýs­ingar sem gætu gagn­ast mér, vin­sam­leg­ast hafið sam­band við mig hvenær sem er.“

Bréfið í heild sinni:

„Þeir tóku mig, Geir og strák­ur­inn, sonur böð­uls­ins Bj. Ben og fóru með mig í bílnum eitt­hvað austur eftir. Þeir bundu fyrir augun á mér svo ég veit ekki hvert við fórum.

Ég veit ekki hvar við erum, en það er við sjó­inn. Það var Kana­djöf­ull með í bílnum, hann ók, offíserí en í sívíl­fötum. Þeir köll­uðu hann Mike. Á einum stað drógu þeir mig út úr bílnum og börðu mig í and­litið svo ég fékk blóð­nasir og spörk­uðu í nár­ann á mér. Kaninn sagði það væri rétt­ast að stinga úr mér augun, en það vildu hinir ekki. Í það skipti.

Nú hafa þeir mig hér í haldi í 3 eða 4 daga. Þeir berja mig kvölds og morgna af því þeir segja að ég sé á móti setu­lið­inu og kan­anum og kalla mig komm­ún­ista og fram­sókn­ar­hund og öllum ljótum nöfnum. Ég fæ sama sem ekk­ert að éta.

Nú hef ég verið lát­inn í friði í dag. Ég er lok­aður inni og það er hleri fyrir glugg­anum, en ég heyri brim­hljóð og get rétt aðeins grillt í sjó­inn og fjör­una í gegnum gat í hler­anum. Svo ég skrifa þetta á rit­vél sem er hér í kof­anum ef ég gæti með því móti komið skila­boðum til fólks svo mér verði bjargað úr klóm morð­hunds­ins B.B. Ég segi ekki til nafns míns. Nú heyri ég hljóð.“

Rétt er að minna á að á vefnum tima­rit.is kemur skams­töf­unin Bj. Ben fyrir rúm­lega hund­rað sinnum. Þar er hún oft­ast eignuð  fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Rétt er að taka fram að ekki er hægt að full­yrða á nokkurn hátt um hvern þarna er átt eða hvort sann­leiks­korn sé að finna í bréf­inu.

Þegar bréfið er skoðað má ætla að þar sé eitt­hvað ritað. Svo er þó ekki. Bréfið hefur verið brotið saman og texti þess smit­ast og er því um sama texta að ræða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag