Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ertu komin að hraðahindrun í sambandinu?

Ef við ímyndum okkur að ástin og róm­an­tíkin séu þjóð­vegur eitt þá er leiðin eftir honum almennt greið eða allt þar til menn renna inn á Blönduós. Þar eru hraða­hindr­anir og löggan liggur í leyni, til­búin að veita þeim til­tal sem fer of hratt. Á máli ást­ar­innar þýðir Blöndu­óslöggan að karl­inn sé óþol­andi í augna­blik­inu eða besti vinur hans skyndi­lega sá sæt­asti í heimi. Hvað er þá til ráða?

Hafðu ekki áhyggjur. Í öllum sam­böndum rekst fólk á hraða­hindr­anir og gald­ur­inn er bara að fara ekki of geyst yfir þær. Þessar hraða­hindr­anir geta eyði­lagt sam­bandið ef ekki er var­lega farið. Hér á eftir fara nokkrar af algeng­ustu ásteyt­ing­ar­stein­unum í ást­ar­sam­böndum fólks og hvernig best er að kom­ast fram hjá þeim.

Kynlífið í klessu

Oftast nær er kyn­lífið mjög gott hjá ást­föngnum pörum en það kann að vera að síð­ast þegar þið voruð saman hafi þetta ekki alveg gengið upp. Kannski varstu bara vand­ræða­leg og pirruð eftir á fremur en mjúk og full­nægð. Í augum sumra er slíkt byrj­unin á end­inum og merki um að ástríðan sé tekin að dala. Þannig er það ekki. Þetta er aðeins minni háttar lægð í ann­ars fínu sam­bandi.

Kynlíf, rétt eins og aðrar mann­legar athafnir, fer eftir dags­form­inu. Stundum er fólk vel fyrir kallað og gerir stór­kost­lega hluti en þess á milli þreytt, stressað og skap­vont og það kemur niður á frammi­stöð­unni. Það er engin ástæða til að hafa áhyggjur þótt kyn­lífið sé ekki alltaf mjög gott en ef þetta áhuga­leysi og van­líðan verður við­var­andi ástand er kom­inn tími til að spyrja sig hvers vegna kyn­lífið hefur dalað.

Fyrst af öllu skaltu velta fyrir þér hvort þetta ger­ist virki­lega jafn­oft og þér finnst. Náin sam­skipti eins og kyn­líf eru við­kvæm og iðu­lega eiga menn það til að gera úlf­alda úr mýflugu. Gerðist þetta vegna þess að eitt­hvað til­fallandi var að eða annað ykkar var ekki í stuði? Ef svo er ekki heldur finnur þú að undir niðri logar reiði og von­brigði í garð makans þarf að ræða málin. Þegar þú hefur stigið fyrsta skrefið fellur venju­lega allt í ljúfa löð. Í sam­böndum er nefni­lega nauð­syn­legt að ræða út um hlut­ina. Stundum sitja sár­indi eftir rifr­ildi lengi í fólki, sér­stak­lega ef öðrum aðil­anum finnst mak­inn ekki hafa nægi­legan skiln­ing á líðan hans. Slíkar til­finn­ingar geta haft áhrif á kyn­lífið.

Hvað ef þinn fyrrverandi birtist skyndilega aftur?

Dag nokkurn þegar þú situr við skrif­borðið í vinn­unni hringir sím­inn. Þinn fyrr­ver­andi er á lín­unni og hann á ekki orð yfir hversu mjög hann sér eftir öllum leið­ind­unum sem hann olli. Hann vill endi­lega hitta þig og full­vissar þig um að ekk­ert af því sem miður fór hafi verið þér að kenna. Þú ert tví­stíg­andi því þú vilt ekki særa núver­andi maka þinn en það er óskap­lega freist­andi að fá ofur­litla við­ur­kenn­ingu frá skepn­unni sem fór svo illa með þig. Hvað gerir fólk í svona aðstöðu?

„Jú, það er mjög gott að heyra frá fyrr­ver­andi maka og fá loks fyr­ir­gefn­ing­ar­bón­ina sem þú áttir skilið að fá,“ segir Mark Goulston, höf­undur The Six Secrets of a Lasting Relationship. „En mundu að ef þinn fyrr­ver­andi hefur sam­band við þig algjör­lega upp úr þurru bendir það venju­lega til að hann sé í ein­hverjum vand­ræðum. Svaraðu honum alls ekki af eða á strax. Bíddu í að minnsta kosti sól­ar­hring. Það gefur þér tíma til að velta fyrir þér hvort þú virki­lega viljir hitta hann aftur og eins gætir þú rætt það við núver­andi maka þinn hvað honum finnst um málið. Umfram allt skaltu ekki setja sam­band þitt við hann í hættu.“

Lokuð gata

Hraða­hindr­anir eru auð­veldar því þær má fara yfir með því að beita svo­lít­illi lagni við akst­ur­inn. Lokaðar götur eru annað mál og ef þær verða á vegi ykkar er ekki víst að sam­bandið þoli það. Alversta vanda­mál af þeim toga er sam­skipta­leysi. Ef sam­band á að end­ast verður parið að geta rætt um ágrein­ings­efnin. Ef annar aðil­inn gefur alltaf eftir endar það venju­lega með að hann gefst upp á sam­band­inu og fer. Sumir eru svo lok­aðir að þeir vilja helst aldrei ræða neitt. Slíkir ein­stak­lingar byrgja allt inni og springa að lokum. Hér eru við­horf sem þið skulið forð­ast ef þið viljið að sam­bandið end­ist.

  • „Ég hef rétt fyrir mér og eins gott fyrir þig að við­ur­kenna það.“ Ef þú hefur þörf fyrir að hafa alltaf rétt fyrir þér skaltu ger­ast ein­búi fjarri allri manna­byggð. Enginn getur þolað til lengdar mann­eskju sem alltaf setur sig á háan hest og þyk­ist betri en aðrir. Leggðu þig fram um að skilja sjón­ar­mið ann­arra. Í stað þess að segja: „Nei, þetta er ekki rétt,“ skaltu venja þig á að segja: „Já, ég skil af hverju þér finnst þetta. Hins vegar tel ég að þetta færi betur svona.“
  • „Mál? Er þetta eitt­hvert mál?“ Ef þú svarar maka þínum svona þegar hann bryddar upp á ein­hverju ertu að gera mjög lítið úr honum. Aug­ljós­lega hefði hann ekki hafið máls á þessu ef þetta skipti hann ekki ein­hverju máli. Sestu niður og hlust­aðu, þú gætir lært eitt­hvað.
  • „Þetta er ekki mér að kenna.“ Hættu strax að reyna að koma sök á ein­hvern. Þið eruð tvö í þessu sam­bandi og það er aldrei einum að kenna þegar tveir deila. Spurðu heldur maka þinn hvað þú getir gert til að afstýra því að hann komi leið­in­lega fram við þig. Kannski er eitt­hvað í þínu fari sem ergir hann óskap­lega.
  • „Ég er bara svona og get ekki breytt því. Þú verður bara að taka mér eins og ég er.“ Sá sem slengir þessu fram og meinar það er aug­ljós­lega ekki sér­lega ást­fang­inn. Þroski manns­ins er fólg­inn í því að vera til­bú­inn til að breyta vondum venjum og laga galla sína. Ert þú sjálf til­búin að breyt­ast? Ef þú ert það en hann ekki ættir þú kannski að velta því fyrir þér hvort hann sé rétti mað­ur­inn fyrir þig.
  • „Þú ert alltaf eins. Þetta er nákvæm­lega eins og það sem þú gerðir þarna um árið.“ Hugsaðu þig um. Er það virki­lega þess virði að grafa alltaf upp gamlan skít. Er ekki hægt að ræða út um hlut­ina og gleyma þeim svo. Fátt fer meira í taug­arnar á fólki en að vera stöðugt minnt á gamlar syndir. Reyndu heldur að ræða um þetta gamla, erf­iða mynstur á nýjan hátt. Það gæti borið árangur.

Besti vinur hans er ótrúlega sætur

Besti vinur maka þíns er ein­hleypur, skemmti­legur, mynd­ar­legur og á hraðri leið upp á við í vinn­unni. Í hvert skipti sem þú hittir hann hitnar þér ofur­lítið í kinnum og þú verður svo­lítið vand­ræða­leg. Stundum lætur þú þig jafn­vel dreyma um að kyssa hann eða snerta hér og þar. Hann er besti vinur maka þíns og því erfitt að hætta að umgang­ast hann en jafn­framt veistu að þú mátt aldrei láta undan þessum til­finn­ingum. Hvað þýðir það að vera svona veik fyrir öðrum manni sér­stak­lega þegar þú veist að fátt myndi særa maka þinn meira en ef eitt­hvað gerð­ist á milli ykkar?

Til að fá svar við þeirri spurn­ingu verður þú að vera hrein­skilin við sjálfa þig. Ertu virki­lega hrifin af þessum manni eða kveikir hann bara á órum þínum vegna þess að hann er sá karl­maður sem þú hittir oft­ast fyrir utan mak­ann? Getur verið að hrifn­ing þín á honum stafi af því að und­ir­með­vit­undin er að senda þér merki um að þú sért ekki ánægð í núver­andi sam­bandi? Veltu því fyrir þér hvort það sem þér finnst aðlað­andi við vin­inn sé ekki það sem dró þig að mak­anum í upp­hafi.

Þegar við hríf­umst af ein­hverjum höfum við til­hneig­ingu til að gera meira úr mann­eskj­unni en efni standa til. Í okkar augum verður við­kom­andi fal­legri, skemmti­legri, gáf­aðri og betri en hann er í raun og veru. Horfðu raun­sætt á vin­inn og veltu fyrir þér hvort hann sé raun­veru­lega eins galla­laus og þú hélst. Ef eitt­hvað er að sam­bandi þínu við mak­ann skaltu reyna að leysa það með öðru móti en að stinga af með besta vini manns­ins þíns. Það kann aldrei góðri lukku að stýra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu