Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nokkrar góðar ástæður til að gerast stuðningsfjölskylda

Eftir / Halldóru Gyðu Matth­í­as­dóttur Proppé

„Þetta er ein­fald­lega besta ákvörðun sem við höfum tekið. Við erum með dreng­inn okkar fjóra sól­ar­hringa í mán­uði og þess á milli teljum við niður dag­ana þangað til við hittum hann aftur. Við elskum hann út af líf­inu og getum ekki hugsað okkur til­ver­una án hans. Hann er hluti af okkar fjöl­skyldu og verður það von­andi alltaf.“

Þannig lýsir ein þeirra fjöl­skyldna sem hafa tekið að sér að vera stuðn­ings­fjöl­skylda reynslu sinni af því mik­il­væga hlut­verki. Stuðn­ings­fjöl­skyldur ann­ast barn sem vegna aðstæðna sinna þarf aðstoð til skemmri eða lengri tíma til að draga úr álagi á fjöl­skyldu þess. Mark­miðið er að veita barn­inu til­breyt­ingu og stuðn­ing auk þess að gefa því kost á auknum félags­legum tengslum. Stuðn­ings­fjöl­skyldan býður barn­inu að dvelja á heim­ili sínu sem og að taka þátt í dag­legu heim­il­is­lífi hennar.

Það er Keðjan sem skipu­leggur dvöl barna hjá stuðn­ings­fjöl­skyldum, en hún heyrir undir vel­ferð­ar­svið Reykja­vík­ur­borgar og hefur það hlut­verk að veita stuðn­ings­þjón­ustu fyrir börn, ung­linga og fjöl­skyldur þeirra. Keðjan veitir marg­vís­lega aðra þjón­ustu, svo sem upp­eld­is­ráð­gjöf inn á heim­ili, ein­stak­lings­stuðn­ing við börn og nám­skeið fyrir börn og for­eldra.

Fjöl­breyttar ástæður fyrir því að ger­ast stuðn­ings­fjöl­skylda

Það eru margar mis­mun­andi ástæður fyrir því að fjöl­skyldur ákveða að ger­ast stuðn­ings­fjöl­skyldur. Sumar stuðn­ings­fjöl­skyldur eru tengdar barn­inu vina- og/eða fjöl­skyldu­böndum, eru til dæmis  frænkur eða frændur. Stundum þekkja stuðn­ings­fjöl­skyld­urnar barnið, til dæmis úr leik- eða grunn­skóla og vilja styðja fjöl­skyld­una með þessum hætti. Margar stuðn­ings­fjöl­skyldur þekkja barnið eða fjöl­skyld­una ekk­ert áður en þær ger­ast stuðn­ings­fjöl­skyldur. Ástæðan er þá oft sú að fjöl­skyldan vill láta láta gott af sér leiða, á til dæmis upp­komin börn, eða börn á svip­uðum aldri. Þá eiga sumar fjöl­skyldur sem taka þetta hlut­verk að sér engin börn.

Við hjá Keðjunni höfðum sam­band við nokkrar stuðn­ings­fjöl­skyldur á dög­unum og spurðum um þeirra upp­lifun og reynslu. Það var reglu­lega ánægju­legt að heyra svör þeirra. Hér á eftir fara nokkur dæmi:

„Þetta var þannig hjá okkur að konan mín var aðeins búin að minn­ast á að við myndum skoða það að ger­ast stuðn­ings­fjöl­skylda. Við vorum barn­laus þá og vildum gera eitt­hvað fyrir aðra, vit­andi að við gætum fengið það marg­falt til baka í gleði og ánægju. For­eldrar kon­unnar minnar höfðu verið stuðn­ings­fjöl­skylda þegar hún var yngri, svo hún þekkti þetta aðeins og vissi hvað þetta var. Svo sáum við fyrir til­viljun að ung kona, sem við þekktum ekki neitt, deildi á Facebook þar sem hún aug­lýsti eftir stuðn­ings­fjöl­skyldu fyrir litla dreng­inn sinn. Við ákváðum fyrir rælni að senda henni skila­boð og spyrj­ast fyrir um þetta, en bjugg­umst ekki við að það myndi endi­lega skila neinu. En hún svar­aði og sagð­ist vilja hitta okkur. Og þannig gerð­ist þetta. Hún sagði okkur í annað skiptið sem við hitt­umst að hún vildi velja okkur, sem við þáðum með þökkum.“

Hér er upp­lifun ann­arrar stuðn­ings­fjöl­skyldu:

„Ég veit að þörfin er mikil og það þarf sam­fé­lag til að huga að börnum og for­eldrum. Það er ekki sjálf­sagt að eiga gott bak­land og því mik­il­vægt að sam­fé­lagið stígi þar inn í. Reynsla mín er stutt en upp­lifun mín enn sem komið er er mjög góð. Virki­lega gott að hugsa til þess að ég geti veitt for­eldrum og barni það öryggi og bak­land sem þau þurfa. Í leið­inni sköpum við svo góðar minn­ingar.“

Þessi stuðn­ings­fjöl­skylda er búin að sinna barn­inu í um það bil  15 ár:

„Hjá mér er ástæðan sú að ég teng­ist fjöl­skyld­unni og hef gert í um það bil 15 ár. Þekki stúlk­una vel sem kemur til mín og fjöl­skyldu hennar. Mín upp­lifun er bara mjög góð, eins og ég segi þá er ég kannski með ólíka upp­lifun þar sem að stúlkan er full­orðin og við þekkjum hana mjög vel. Fyrir okkur er hún bara hluti af fjöl­skyld­unni og góð „við­bót“.

Hvert á að leita til að ger­ast stuðn­ings­fjöl­skylda?

EF þú hefur áhuga á að fá frek­ari upp­lýs­ingar um hvernig á að ger­ast stuðn­ings­fjöl­skylda þá get­urðu haft sam­band við Keðjuna í gegnum net­fangið [email protected]. Starfs­fólk Keðj­unnar leggur mat á hæfi fjöl­skyldu til að taka að sér hlut­verk stuðn­ings­fjöl­skyldu.

Höfundur er fram­kvæmda­stjóri Keðj­unnar og FKA-félagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu