Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kraftaverk við Hólmsheiði: 3 stungur í hjartað og björgunarsveitir ræstar út – „Við töldum hann af“

Kraftaverk við Hólmsheiði: 3 stungur í hjartað og björgunarsveitir ræstar út – „Við töldum hann af“

„Þjóðinni var brugðið þegar ég opn­aði mig um þung­lyndi ást­kærs föður míns í nóv­em­ber hins alræmda árs sem nú er liðið. Þann 21. nóv­em­ber 2020, reyndi pabbi að stytta sér aldur í afar átak­an­legri sjálfs­vígstil­raun. Honum var ekk­ert hálf­kák í hug.“

Þetta sagði Engill Bjartur Einisson, ljóð­skáld og rapp­ari, í lok nóv­em­ber er hann greindi frá til­raun föður síns til að svipta sig lífi. Þar lýsti hann á afar áhrifa­ríkan hátt skelfi­legum raun­veru­leika þeirra sem glíma við þung­lyndi og hvaða áhrif það hefur á fjöl­skyldu þeirra.

Í pistli á vef Mannlífs hefur Engill Bjartur birt ein­lægan og áhrifa­ríkan pistil þar sem hann lýsir hinni örlaga­ríku nótt, þegar hann vakn­aði og upp­götv­aði að faðir hans var horf­inn ásamt öku­tæki Engils Bjarts og hafði hann tekið öll sterk­ustu verkja­lyfin sem var að finna á heim­il­inu. Lögregla og björg­un­ar­sveitir voru ræstar út til að bjarga föður hans sem hafði stungið sig þrisvar með hníf í hjarta­stað.

Faðir Engils Bjarts fannst í bíl er lagt var utan­vegar við Hólms­heiði og í sæt­inu sat faðir hans vart með með­vit­und. Hann hafði tekið ban­vænan skammt af sterkum lyfjum sem hann hafði aðgang að sem læknir og hafði ekið í skjóli nætur út fyrir bæinn.

„Við í fjöl­skyld­unni töldum hann af. Þetta var sorg­leg­asti dagur lífs míns án nokk­urs vafa. Lífs­reynsla sem ég myndi ekki óska mínum versta óvini að upp­lifa ef ég ætti óvini. Við pabbi erum ekki bara feðgar og bestu vinir; við erum sálu­bræður. En pabbi lifði af.“

Lands­mönnum var létt að harm­leik­ur­inn hefði sloppið fyrir horn. Markmið Engil Bjarts að opna sig um þessa sáru lífs­reynslu er að hjálpa öðrum, þeim veiku og aðstand­endum þeirra. „Og sjálfum mér að vinna úr áfall­inu því ég hef verið sonur þung­lynd­is­sjúk­lings alla mína ævi,“ segir Engill Bjartur en það hefur verður þungur róður frá bernsku fyrir hinn unga Engil að upp­lifa veik­indi föður síns og fjöl­margar sjálfs­vígstil­raun­irnar. „Ég man þegar þú sagðir mér eitt sinn að þú værir „þung­lynd­asti maður í heimi.”.

Engill telur einnig að létta megi á þján­ingu fólks með því að lyfta bæði þögn og skömm af þung­lyndi. „Það er eng­inn munur á þung­lyndi og krabba­meini í mínum huga. Fólk hrjáð af þessum sjúk­dómum er því miður dauð­vona í mörgum til­fellum.“

Kraftaverkið

„Pabbi var væg­ast sagt dauð­vona aðfara­nótt þessa átak­an­lega dags 21. nóv­em­ber 2020. En þessi pist­ill er ekki um dauð­ann. Hann er um lífið. Það sem fáir fréttu á sínum tíma er að krafta­verk bjarg­aði pabba. Þið heyrðuð rétt. Krafta­verk frá sjálfum Guði. Hvort sem fólk kýs að trúa því eður ei er auka­at­riði því pabbi lifði af. Þetta var ekki hans dagur til að deyja.“

Engill segir föður sinn hafa lagt bílnum út í móa og von­ast til að lyfin sem hann hafði inn­byrt myndu gera úts­lagið. En hann vakn­aði. Við gefum Engli hér orðið:

„Hins vegar var hann með egg­hvassan vasa­hníf með í fórum sem var hans „plan B“ til að kveðja þennan heim og kvalir þung­lynd­is­ins með honum. Hann stakk sig þrisvar í hjarta­stað. Á bólakaf. Svo þung var sorg þessa svæsna sjúk­dóms sem of sjaldan er talað um. En á þriðju stung­unni kom Sonur Guðs – Drottinn Jesús Kristur – og bjarg­aði mínum ást­kæra föður. Pabbi sá stutta sýn af Jesú og sam­tímis heyrði hann rödd Hans segja:

„Ég er Drottinn.“

Það sem gerð­ist í kjöl­farið var eins og í ævin­týri. Björg­un­ar­sveitin fann pabba örfáum sek­úndum síðar. Hann labb­aði sjálfur úr bana­sæt­inu og yfir í sjúkra­bíl­inn; lagð­ist meira að segja hjálp­ar­laust í bör­urnar.“

Engill segir að bati föður hans hafi verið krafta­verki lík­astur.

„En það sem meira máli skiptir er hans and­legi bati. Það er mér mikil ánægja að til­kynna að Guð hefur gert mik­il­feng­lega hluti fyrir pabba á liðnum mán­uðum. Þung­lyndið hans er betra en það hefur verið í yfir tvo ára­tugi. Og við eigum það engum öðrum að þakka en sjálfum Drottni Jesú Kristi sem greip í taumana á ell­eftu stundu.

Þegar pabbi var alls­endis bjarg­ar­laus – svo illa hald­inn af þung­lyndi að öll von var úti – kom Skap­ar­inn og blés lífi í hann á ný. Það er nefni­lega Guð sem hefur vald yfir lífi og dauða. Enginn annar. Við vitum ekki hvenær okkar dagur kemur. En það veit Guð,“ segir Engill Bjartur og bætir við:

„Og í til­felli pabba míns, var sá dagur sann­ar­lega ekki 21. nóv­em­ber 2020.“

Engill segir marga ekki vilja muna dag­setn­ingar átak­an­legra daga. Í huga Engils er dag­ur­inn heil­agur. Dagurinn þar sem allt breytt­ist.

„Þetta er dag­ur­inn sem Drottinn bjarg­aði besta vini mínum og sálu­bróður – ást­kærum pabba mínum. Þess vegna fékk ég mér í gær húð­flúr á hjartað til dýrðar Drottins; á sama stað og hnífs­blaðið stöðv­aði nærri því hjarta pabba,“ segir Engill Bjartur og bætir við að húð­flúrið verði á hjarta hans til ævi­loka:

Rétt eins og þakk­lætið mun búa mér í brjósti um alla eilífð. Það minnir mig á að krafta­verkin ger­ast enn. Og það er yfir­lýs­ing mín til allra að von er mögu­leg fyrir þá sem þjást.“

Hér má lesa pistil hins unga og efni­lega rit­höf­undar, Engil Bjarts, á vef Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi