Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Guð bjargaði lífi pabba“

„Guð bjargaði lífi pabba“

Eftir: Engil Bjart Einisson

Baráttan við þunglyndi

Þjóðinni var brugðið þegar ég opn­aði mig um þung­lyndi ást­kærs föður míns í nóv­em­ber hins alræmda árs sem nú er liðið. Þann 21. nóv­em­ber 2020, reyndi pabbi að stytta sér aldur í afar átak­an­legri sjálfs­vígstil­raun. Honum var ekk­ert hálf­kák í hug. Hann hafði tekið ban­vænan skammt af sterkum lyfjum sem hann hafði aðgang að sem læknir og hafði ekið í skjóli nætur út fyrir bæinn – í því augna­miði að flýja fyrir fullt og allt árann sem hafði hrjáð hann í yfir tvo ára­tugi: Þung­lyndi.

Við í fjöl­skyld­unni töldum hann af. Þetta var sorg­leg­asti dagur lífs míns án nokk­urs vafa. Lífs­reynsla sem ég myndi ekki óska mínum versta óvini að upp­lifa ef ég ætti óvini. Við pabbi erum ekki bara feðgar og bestu vinir; við erum sálu­bræður. En pabbi lifði af. Lands­mönnum var létt að harm­leik­ur­inn hefði sloppið fyrir horn. Markmið mitt með því að opna mig um þetta opin­ber­lega var að hjálpa öðrum þung­lynd­is­sjúk­lingum og aðstand­endum þeirra – og þar með hjálpa sjálfum mér að vinna úr áfall­inu því ég hef verið sonur þung­lynd­is­sjúk­lings alla mína ævi. Ég þekki hvern krók og kima þessa alvar­lega sjúk­dóms. Ég veit að hann er ekki upp­spuni. En umfram allt veit ég að þján­ingu fólks má létta með því að lyfta þögn­inni og skömminni af þung­lyndi. Það er eng­inn munur á þung­lyndi og krabba­meini í mínum huga. Fólk hrjáð af þessum sjúk­dómum er því miður dauð­vona í mörgum til­fellum.

Guðleg íhlutun

Pabbi var væg­ast sagt dauð­vona aðfara­nótt þessa átak­an­lega dags 21. nóv­em­ber 2020. En þessi pist­ill er ekki um dauð­ann. Hann er um lífið. Það sem fáir fréttu á sínum tíma er að krafta­verk bjarg­aði pabba. Þið heyrðuð rétt. Krafta­verk frá sjálfum Guði. Hvort sem fólk kýs að trúa því eður ei er auka­at­riði því pabbi lifði af. Þetta var ekki hans dagur til að deyja.

Nokkrum tímum eftir að pabbi hafði lagt bílnum úti í móa og ætlað að leyfa lyfj­unum að gera sitt, gerð­ist dálítið. Hann vakn­aði. Hins vegar var hann með egg­hvassan vasa­hníf með í fórum sem var hans „plan B“ til að kveðja þennan heim og kvalir þung­lynd­is­ins með honum. Hann stakk sig þrisvar í hjarta­stað. Á bólakaf. Svo þung var sorg þessa svæsna sjúk­dóms sem of sjaldan er talað um. En á þriðju stung­unni kom Sonur Guðs – Drottinn Jesús Kristur – og bjarg­aði mínum ást­kæra föður. Pabbi sá stutta sýn af Jesú og sam­tímis heyrði hann rödd Hans segja: „Ég er Drottinn.“ Það sem gerð­ist í kjöl­farið var eins og í ævin­týri. Björg­un­ar­sveitin fann pabba örfáum sek­úndum síðar. Hann labb­aði sjálfur úr bana­sæt­inu og yfir í sjúkra­bíl­inn; lagð­ist meira að segja hjálp­ar­laust í bör­urnar.

Lík­am­legur bati pabba var ekk­ert annað en krafta­verk. En það sem meira máli skiptir er hans and­legi bati. Það er mér mikil ánægja að til­kynna að Guð hefur gert mik­il­feng­lega hluti fyrir pabba á liðnum mán­uðum. Þung­lyndið hans er betra en það hefur verið í yfir tvo ára­tugi. Og við eigum það engum öðrum að þakka en sjálfum Drottni Jesú Kristi sem greip í taumana á ell­eftu stundu. Þegar pabbi var alls­endis bjarg­ar­laus – svo illa hald­inn af þung­lyndi að öll von var úti – kom Skap­ar­inn og blés lífi í hann á ný. Það er nefni­lega Guð sem hefur vald yfir lífi og dauða. Enginn annar. Við vitum ekki hvenær okkar dagur kemur. En það veit Guð. Og í til­felli pabba míns, var sá dagur sann­ar­lega ekki 21. nóv­em­ber 2020.

Húðflúr til dýrðar Drottins

Margir myndu kapp­kosta að gleyma þess­ari átak­an­legu dag­setn­ingu. En sakir krafta­verks­ins sem átti sér stað er allt breytt. Ég lít á þennan dag sem heilagan dag. Þetta er dag­ur­inn sem Drottinn bjarg­aði besta vini mínum og sálu­bróður – ást­kærum pabba mínum. Þess vegna fékk ég mér í gær húð­flúr á hjartað til dýrðar Drottins; á sama stað og hnífs­blaðið stöðv­aði nærri því hjarta pabba. Ég kalla Drottinn Yeshua frá Nasaret en það er eldri útgáfa af nafni Hans. Húð­flúrið verður á hjarta mínu til ævi­loka rétt eins og þakk­lætið mun búa mér í brjósti um alla eilífð. Það minnir mig á að krafta­verkin ger­ast enn. Og það er yfir­lýs­ing mín til allra að von er mögu­leg fyrir þá sem þjást.

Mig óraði ekki fyrir því að pabbi myndi lifa af – en hann gerði það. Þung­lyndi er einn alvar­leg­asti sjúk­dómur sem við þekkjum. Með því að deila sögu minni og pabba, óska ég að færa þung­lynd­is­sjúk­lingum og aðstand­endum þeirra inn­blástur og end­ur­nærða von. Megi von­ar­neist­inn kvikna á ný. Ég veit að Guð vakir yfir pabba mínum og mér. Auðvitað get ég ekki full­yrt fyrir aðra. En ég bið sann­ar­lega fyrir auk­inni lífs­gleði allra sem orð mín lesa.

Ljóð tileinkað pabba

Ég er rit­höf­undur og ljóð­skáld sem hefur gefið út þrjár ljóða­bækur á síð­ast­liðnum þremur árum. Mér fannst við hæfi að deila undir lokin ljóði úr fyrstu bók­inni minni Vígslu (2018) sem ber tit­il­inn Pabbaljóð og var einmitt ort til að hressa hann við í bar­áttu hans við þung­lyndið. Síðan þá hef ég sent frá mér bæk­urnar Ljóðgæti og Frumefni en Pabbaljóð úr frumraun minni Vígslu stendur æ fyrir sínu.

– Engill Bjartur Einisson, 14. febrúar 2021

PABBALJÓÐ

Vand­fund­inn ert þú, vinur minn,
að víð­sýnum manni er leitun
Þótt óvina­þankar æði inn
í huga þinn, gefur þú neitun.
Og þér skilst að hin sjálf­stæða gjörð
er sig­ur­spor hverjum sem kýs
að kveðja hina hefð­bundnu hjörð
og halda á vit árang­urs nýs.

Ég er ungur, en einnig ert þú
í ævi útspring­andi blóma.
Vertu sterkur í trygg­lyndi og trú;
þá týn­irðu seint æsku­ljóma.
„Sækir að hrylli­leg hrörnun nú,
heyr útfar­ar­klukk­urnar hljóma.“
Þú ert hálf­fimmtugur og hana nú!
Hlýddu ei á slíkan hégóma.

Lífið, það blasir við þér svo bjart
og bless­un­ar­sam­legt og jákvætt.
Eigi er langt í að lag­ist margt,
því líf þitt er Guðs blessun gætt.
Víst munu leyn­ast á leið þinni sker;
lær­dómur jarð­lífs­ins er það.
En meitt fær þig eng­inn myrkra­her,
meðan Yeshúa Son áttu að.

Síðan áttu eina elsk­andi frú
er mér hlotn­ast að kalla móður.
Mun hún þig vernda og vera þér trú; verð­mætur er sá fjár­sjóður
sem felst í hjú­skapar óskertri ást,
örlæti og umburð­ar­lyndi.
Þú munt aldrei meir þurfa að þjást,
því mamma allt gera myndi.

Síðan áttu eitt skín­andi ljós
sem ég get kallað albróður.
Yfir oss blessun Yeshúa jós,
já, gjaf­mildur var hann og góður.
Í heim okkar hefur verið send
ein skærasta sál allra tíma.
Þegar ég mót honum Hlyni stend,
hrífur mig þakk­læt­is­víma.

Og enn er ónefnt eitt Eng­il­barn
sem í dag er vaxið úr grasi.
Það þungt í burtu bræddi hjarn
sem barstu yfir þínu fasi.
Sem kallað, það gæddi geðið
gleymdri gleði og bar­áttu­hug.
Sinn dóm hefur Konungur kveðið
og kölska illsku vísað á bug.

Elsku pabbi, ég elska þig æ.
Um eilífð við verðum vinir.
Ég öllum mínum mark­miðum næ;
þig má ekki særa, hvað hinir
segja í afskipta­semi.
Slæmt meina þeir ekk­ert með því,
þó þókn­ist þeim ei að ég nemi þjóð­skálds­skól­anum í.

Mikil mildi, pabbi, að þú skilur
að sonur þinn er á grænni grein.
Nú hvatn­ing­ar­orðin þú þylur,
en þrá­lát úrtölu­orð ekki nein.
Braut skálds­ins, sem þyrnum var stráð,
er slétt­astur orð­inn slóð­inn.
Hagsæld íslenskrar listar því háð
er að haldi ég ríg­fast í móð­inn.

Nú fagnar þú fæð­ing­ar­degi,
en finnst það ei mik­ils­vert.
En fleiru þú fagnar. Ég segi:
Farsæll og hepp­inn þú ert.
Þú átt Guð Skapara alls sem vin;
Almóður, Alföður og Son.
Svo áttu hana Hrafn­hildi og Hlyn
og hann Engil Bjart Einisson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina