Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu finnur ekki Hinrik Ingi Óskarsson en hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um frelsissviptingar, brota gegn nálgunarbanni, hótana og eignaspjöll. RÚV greinir frá þessu.
Mannlíf fjallaði á dögunum um ásakanir Svölu Lindar Ægisdóttur um að hann hafi gert líf þeirra að martröð. Svala lýsti svo daglegu áreiti í Bítinu á Bylgjunni í gær en að hennar sögn hófst það vegna afbrýðissemi Hinriks í garð sonar hennar. Hann vinnur með fyrrverandi kærustu Hinriks.
Mannlíf gerði tilraun til að ná tali af honum síðastliðinn fimmtudag án árangurs. Hinrik brást þó við skilaboðum blaðamanns á föstudagskvöldi. Þá voru skilaboðin hins grunaða eltihrellis þessi:
„Værir þú vinsamlegast til í að fjarlægja þessa grein?“
Þá hringdi hann fimm sinnum á hálftíma. Í skilaboðum kom þó fram að hann vildi ekki leiðrétta neitt en sárnaði að vitnað var í gamalt viðtal við hann. Þá frétt má lesa hér.
„Jæja. En værir þú vinsamlegast til í að fjarlægja þessa grein. Bara helst í gær. Þetta er alveg úti hött. Og vitnaði í einhvað gamalt og gerandi hálf grín að þessu. Er þetta svona hlægilegt fyrir þér?,“ skrifaði Hinrik sem nú finnst ekki.





















Athugasemdir