Níu hafa látist af þeim 31 sem fengið hafa blóðtappa í Þýskalandi, eftir að hafa verið bólusett með bóluefni AstraZeneca. Svo segir í tilkynningu frá Paul Ehrlich stofnuninni sem meðal annars sinnir bóluefnaeftirliti.
Þeir sem létust voru sjö konur á aldrinum 20 til 63 ára og tveir karlmenn, þeir voru 36 og 57 ára gamlir, segir í frétt Reuters.
Sjá einnig: „Níu þúsund Íslendingar bólusettir með blóðtappa-bóluefninu – Hætta bólusetningu strax“
Samkvæmt skýrslu Lyfjastofnunar Evrópu sem birt var fyrir viku, hafa 17 milljónir einstaklinga fengið bóluefni AstraZeneca. Af þeim 17 milljónum hafa verið skráð 258 tilfelli blóðtappa og 45 dauðsföll.
Hvort orsakasamband sé á milli blóðtappanna og bóluefnisins er ekki enn sannað, en talið mögulegt.
Telur Lyfjastofnun Evrópu að gagnsemi bóluefnisins vegi þó þyngra en mögulegar aukaverkanir.





















Athugasemdir