Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ívar Daníels var lagður í harkalegt einelti

Ívar Daníels var lagður í harkalegt einelti

Stór­söngv­ar­inn Ívar Daníels var undir stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Ívar tók þátt í Söngvakeppn­inni árið 2019 með góðum árangri, hann söng þar lagið Þú bætir mig. Árið 2015 komst Ívar í úrslit í keppn­inni Ísland got talent, ásamt félaga sínum Magnúsi Hafdal.
Ívar bræðir fólk með stór­kost­legri rödd sinni og ljúfri nær­veru hvar sem hann kemur fram. En Ívar er ekki bara röddin, heldur einnig fjög­urra barna faðir sem horfir á Bachelor og Love Island með unnust­unni og telur sig gera bestu ham­borg­ar­ana -hver veit nema Ívars borg­arar opni seinna meir.

Ívar Daníels

Fjöl­skyldu­hagir? Trú­lof­aður fjög­urra barna faðir – búsettur í Hafn­ar­firði, upp­al­inn á Sel­tjarn­ar­nesi samt.

Menntun/atvinna? Starfa í vara­hluta­þjón­ustu Bíla­naust – hef verið söngv­ari/tón­list­ar­maður að atvinnu síð­ast­liðin tíu ár.

Upp­á­halds Sjón­varps­efni?  Ég er alveg steiktur þegar kemur að sjón­varps­efni, lét frúna plata mig (lofa) í alls­konar raun­veru­leika­þætti á sínum tíma, Love Island, Bachelor bíóið og fleira. En get svo alveg farið hina leið­ina yfir í þætti eins og Exit (Útrás á Rúv) sem eru alveg eins sið­lausir og þeir ger­ast. Svo týni ég mér alveg stundum í ser­íum eins og Hawai 5.0, sem er alveg galið þar sem ég horfði á ein­hverja 300 (ágiskun) þætti sem ég veit að enda allir eins, vel!

Leikari? Íslenskur leik­ari er alltaf Ólafur Darri, fast á hæla hans kemur Hilmar Guð­jóns­son, einn sá alfyndn­asti leik­ari sem við eigum.
Íslensk leik­kona myndi ég segja Júlíana Sara Gunnars og Ilmur Krist­jáns. Ekkert eðli­lega fyndnar báðar tvær, ann­ars erfitt að velja, eigum geggj­aðar leikkonur.

Rit­höf­undur? Úff, þessi er erfið… Ég les svo skammar­lega lítið, nenni ekki að taka eitt­hvað basískt svar en ég ætla að gefa Sóla Hólm þetta, hann hefur komið sterkur inn og hann er með þetta, hvað sem hann gerir.

Bók eða bíó? Ég er alveg 100% bíó megin í líf­inu, mér finnst fátt betra en ein­hver geggjuð bíó­mynd.

Besti matur? Þessi er geggjuð, því ég elska að borða en ég er alveg ljón­harður þegar kemur að mat, nauta­steikin er alltaf fremst þar, elska að sous-vide-a nauta­kjöt heima. Hins vegar er eitt­hvað í mér varð­andi ham­borg­ara, alvöru sam­an­setta grill­aða ham­borg­ara, ef það er ein­hver á þessu landi sem ætti að vera með ham­borg­ara­stað þá er það ég myndi ég segja 😉

Kók eða Pepsí? Coke Zero, allan dag­inn, alltaf.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Ég var svona pínu að von­ast til þess að þessi spurn­ing kæmi ekki því ég er svo vand­ræða­lega mikið borg­ar­barn og skellti mér fyrir nokkrum árum lengra austur en Vík, en LANG fal­leg­asti staður sem ég hef séð er Jök­ulsár­lón.

Hvað er skemmti­legt? Það er svo margt sem poppar upp en það sem stendur eig­in­lega upp hjá mér á þessum skrítnu tímum sem við lifum á er að hitta bræður mína ásamt konum okkar og taka spila­kvöld. Við spilum bara eitt spil, Partners fyrir 6 manns og það er alltaf bræður á móti dömum og sú keppni er grjót­hörð. Skipt­umst mikið á að vinna, allir sjúk­lega hressir í byrjun en svo kickar inn almenni­lega keppn­is­skapið. Endar reyndar alltaf vel og allir vinir en þessi kvöld geta verið rosa­leg. Auðvitað gerum við svo meira úr kvöld­inu, borðum saman og opnum 2-3.

Hvað er leið­in­legt? Mér þykir fátt skemmti­legra en að koma fram og skemmta fólki, hvort sem það sé með tón­list­ar­at­riði eða veislu­stýr­ingu svo þessi er auð­veld, að geta ekki skemmt fólki.

Hvaða flokkur? Næsta spurn­ing.

Hvaða skemmti­staður? Ef það er down town Rvk þá er það American bar, sér­stak­lega þegar það er live tón­list, ann­ars staður sem kemur upp er SPOT Kópavogi, komnir nýir eig­endur loks­ins, sem eru heldur betur búin að end­ur­bæta stað­inn og gjör­breyta mat­seðli til dæmis.

Kostir? Mér þykir ég hrika­lega fynd­inn og skemmti­legur, jákvæður svona oft­ast nær og ég tel mig vera virki­lega góð­ann og traust­ann.

Lestir? Get verið alveg asskoti latur stundum, er með stuttan þráð en er fljótur niður, get verið svo­lítið þver.

Hver er fynd­inn? FM95Blö gengið og Ari Eldjárn

Hver er leið­in­legur? Fólk sem þrífst á því að niðra aðra, það er ekk­ert leið­in­legra en týpan sem svona „djók niðrar“ aðra fyrir framan annað fólk.

Trúir þú á drauga? Neeeei ég get ekki sagt það.

Stærsta augna­blikið? Fæðingar barn­anna minna standa þar upp úr, það er ekki til betri til­finn­ing í heim­inum en að taka sitt eigið barn í fangið. Þó svo við karl­menn séum gjör­sam­lega gagns­lausir í ferl­inu, þessar elskur (kon­urnar) sjá um þetta frá a-ö og færa manni það ynd­is­leg­asta sem til er, við karlar eigum ekki break í þær.

Mestu von­brigðin? Það er erfitt að finna eitt­hvað sem mestu von­brigðin en það er tvennt sem kemur helst upp í huga mér sem ég hef verið von­svik­inn með. Það fyrra er að hann pabbi minn er búinn að vera lang­veikur síðan ég var 3 ára gam­all og hefur ekki fengið að öðl­ast það líf sem hann hafði unnið sér inn og á skilið. Magnaður maður og mín hetja í alla staði.
Hitt er að ég var lagður í leið­in­lega harka­legt ein­elti þegar ég var yngri. Eitthvað sem ég óska ekki mínum versta óvin (sem ég á samt ekki). Þannig lífs­reynsla fylgir manni fram á full­orð­insár og erfitt er að losa sig við. En ég tók bara þann pól­inn í hæð­ina að ein­beita mér að því góða sem til er, ég á fal­lega og ynd­is­lega fjöl­skyldu, bestu bræður sem hægt er að finna, ynd­is­lega for­eldra sem vilja manni allt það besta og að fyr­ir­gefa þeim sem komu illa fram við mig, því ég eyddi allt of miklum tíma í ein­hvern pirr­ing sem ég átti ekki að gera.

Hver er draum­ur­inn? Draum­ur­inn er frekar ein­faldur – ala stelp­urnar mínar (jebb fjórar stelpur) upp við góð gildi, gera þær að góðum mann­eskjum, hjálpa þeim og leið­beina þeim í líf­inu, byggja upp mitt líf með minni konu og von­andi ná að syngja og koma fram eins lengi og ég get.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Tjahh, afrek á þessu herr­ans Covid ári? Það er fátt hægt að setja þarna en ætli það sé ekki bara það afrek að halda áfram ótrauður þrátt fyrir massífar hraða­hindr­anir, afbók­anir og allt það sem þessu ári fylgir.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Alls ekki, á fullt eftir, því þegar maður nær mark­miðum, setur maður sér ný mark­mið.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Það er einn sem poppar strax upp en hann er ekki birt­ing­ar­hæfur.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Sko, ég á alveg vand­ræða­leg augna­blik sem eru sögð í góðra vina hópi, látum þau moment bara vera þar.
En ætli það sé ekki þegar það var haldið sur­prise þrí­tugs afmæli fyrir mig, allt gekk hrika­lega vel þar til það var sett á video, kveðjur frá hinum og þessum og end­aði kveðjan á því þegar bróðir minn sem var þá búsettur í Danmörku var með kveðju. Þá var ég byrj­aður að grenja, alveg ugly cry fyrir all­ann pen­ing­inn og svo kom kvik­indið hlaup­andi inn í sal eftir mynd­bandið og þá grenj­aði ég ennþá meira… vakn­aði svo sáttur morg­un­inn eftir og þá var þetta komið á allar frétta­veitur því vinur minn tók allt afmælið upp og póstaði vid­eo­inu á fb, þar var mynd af mér til dæmis í „mest lesið“ á frétta­veitum að grenja með öllu smett­inu, ég var enn að fá svona „hey ert þú ekki gaur­inn sem grést þarna“ nokkrum mán­uðum seinna.

Sorg­leg­asta stundin? Það er svo sorg­legt og erfitt að missa ást­vini en ég held ég hafi aldrei grátið jafn mikið og þegar vinur minn lést þegar við vorum í 9.bekk.

Mesta gleðin? Það er klár­lega að finna það hvað ég er elsk­aður af mínu fólki.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Koma fram við fólk af góð­mennsku, leyfa engum að finna eins og hann/hún sé út undan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu