Guðmundur Felix Grétarsson, heimsins fyrsti maður til að fá á sig ágræddar hendur, fagnaði í gær þeim áfanga að losna útaf spítala og fá að fara heim til sín. Hann þarf þó að mæta áfram daglega í endurhæfingu til að halda bataferlinu áfram.
Þetta kemur fram í færslu Guðmundar á Facebook þar sem hann er duglegur að láta vita af líðan sinni og batahorfum. Í nýjustu færslunni birtir hann mynd af sér við útigrillið og segir:
„Gleðidagar. Nú er ég frjáls frá spítalanum og því fagna ég með grillveislu. Frá og með þessari stundu þarf ég bara að mæta á hverjum morgni í endurhæfingu og fær svo að fara heim til mín í loks dags.“
Guðmundur Felix var nýlega í einlægu Mannlífsviðtali þar sem hann sagðist vera kominn með tilfinningu í aðra öxlina en hann vonast til þess að fullnýta ágrædda handleggina eftir þrjú ár. Aðspurður um hvað hanni hlakki mest til þegar hann fær tilfinningu í fingurnar segir hann það mikilvægast af öllu að vera sjálfum sér nægur og vera þakklátur.
„Í 23 ár hef ég saknað litlu hlutanna; koma við flík í búð, fá mér að borða, snerta. Þetta daglega stöff. Svo kom strax þessi frábæra tilfinning að vera heill. Þegar maður er búinn að líta út eins og kókflaska í rúma tvo áratugi er ólýsanlegt að líta út heill, eins og manneskja. Og nota ermar. Í hvert skipti sem ég keypti peysu hafði ég aldrei neitt við ermarnar að gera.“





















Athugasemdir