Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Guðmundur Felix vongóður að nota fingurna eftir 3 ár: „Fyrstu vikurnar ólýsanlega sársaukafullar“

Guðmundur Felix vongóður að nota fingurna eftir 3 ár: „Fyrstu vikurnar ólýsanlega sársaukafullar“

„Það virð­ist vera eitt­hvert alheimslög­mál að spít­ala­matur eigi að vera vondur, bragð­laus, gufusoð­inn og ókrydd­aður eins og á elli­heim­ili. Og sami mat­seð­ill viku eftir viku. Jafnvel í Frakk­landi. Frakk­arnir mega þó eiga það að það er alltaf góður ostur með öllum mat,“ segir Guð­mundur Felix Grét­ars­son þegar Mannlíf innti hann eftir hvernig bata­ferlið gangi eftir að hann var heims­ins fyrsti maður til að fá á sig ágræddar hendur.

Hefur vakið alheimsathygli

„Mikið er nú gaman að heyra í íslenskum blaða­manni stundum. Það er svo mikið af útlend­ingum að fylgj­ast með mér, það er haft sam­band frá löndum á borð við Egypta­landi, Suður- og Mið-Ameríku, Rúss­landi og jafn­vel Nepal,“ segir Felix og bætir við að senni­lega sé það þörfin fyrir góðar fréttir sem kalli þennan áhuga fram. „Fyrsta var það bara Trump, svo Trump og Covid og núna bara Covid. Hvað maður er búinn að fá leið á þessu!“

Guð­mundur Felix er á fullu í endu­hæf­ingu og er bjart­sýnn á fullan bata.

Aðspurður um hvernig gangi segir Felix allt ganga bara vel. Hann er í stífri end­ur­hæf­ingu frá því snemma á morgn­ana og til kl. 16 á dag­inn. Fullur vinnu­dagur. „Já þetta tekur á, og eftir klukkan fjögur hefur maður lítið haft annað að gera en góna á loftið og bíða eftir næsta degi. En sem betur fer er ég far­inn að fá að fara heim.“

Heima er best

Í fyrsta skiptið sem Felix fór heim sagð­ist hann hafa fundið fyrir því hvað aðgerðin hefði tekið á. „Mamma og pabbi búa á hæð­inni fyrir ofan mig og ég var vanur að hlaupa upp og niður en í fyrsta skiptið gat ég varla staul­ast en ég verð betri dag frá degi.

Núna fæ ég að fara heim um helgar og von­andi kemur bráð­lega að því að ég mæti á morgn­ana og fari heim að lok­inni end­ur­hæf­ingu. Bara eins og um venju­legan vinnu­dag sé að ræða. Þetta er hálf­tíma akstur og hljóð­bók. Ekkert mál,“ segir Felix og það er aug­ljóst að hann hlakkar til.

Felix segir það besta vera að fá að vera heima með fjöl­skyld­unni og hund­unum sínum tveimur. „Og mat­ur­inn er miklu betri!“

Dásamleg tilfinning

Að sögn Felixar er hann byrj­aður að fá til­finn­ingu í aðra öxl­ina. „Taug­arnar eru eins og tré þar sem grein­arnar vaxa út. Það er það sem er að ger­ast í hönd­unum á mér. Það er ólýs­an­lega dásam­leg til­finn­ing að finna að þetta er að ganga upp. Taug­arnar vaxa 1 milli­metra á dag svo það er áætlað að ég verði komin með til­finn­ingu niður í fingur eftir tvö ár. Síðan fer þriðja árið í að þjálfa fing­urnar sem auð­vitað hafa ekk­ert verið not­aðir svo lengi. Ég er afar von­góður um að sú áætlun stand­ist. Þetta er alveg ótrú­legt fólk hér í end­ur­hæf­ing­unni, ég er afar þakk­látur að það skyldi setj­ast á skóla­bekk og læra þetta allt saman,“ segir Felix hlæj­andi.

Felix seg­ist vona til að þetta útlit hverfi smám saman.

Á myndum sem Felix deildi sést að annar hand­legg­ur­inn er mun þykk­ari en hinn en ástæð­una segir Felix að verið sé að sam­eina tvo vöðva, annan sem hann hafði sjálfur og hinn úr gjaf­anum. Annar hafði blóð­flæði en engar taugar en hinn ekk­ert blóð­flæði en aftur á móti taugar. „Ég man aldrei hvort var hvað, en nei nei, ég verð ekki svona lengi vona ég!“

Leit út eins og kókflaska

Aðspurður um hvað hanni hlakki mest til þegar hann fær til­finn­ingu í fing­urnar segir hann það mik­il­væg­ast af öllu að vera sjálfum sér nægur og vera þakk­látur. „Í 23 ár hef ég saknað litlu hlut­anna; koma við flík í búð, fá mér að borða, snerta. Þetta dag­lega stöff. Svo kom strax þessi frá­bæra til­finn­ing að vera heill. Þegar maður er búinn að líta út eins og kók­flaska í rúma tvo ára­tugi er ólýs­an­legt að líta út heill, eins og mann­eskja. Og nota ermar. Í hvert skipti sem ég keypti peysu hafði ég aldrei neitt við ermarnar að gera.“

Felix var áður iðn­að­ar­maður og er það enn í hjarta sínu. „Ég elska verk­færi út af líf­inu og hef safnað þeim í gegnum árin þrátt fyrir að geta ekki notað þau. Ég er kom­inn með prýði­legan lager og hlakka mikið til að geta notað þau.

Ég lifði í búbblu þessi ár, skynj­aði bara heim­inn í gegnum sjón og heyrn. Snerting er svo óend­an­lega mik­il­væg í líf­inu. Kannski fólk sem hefur verið í ein­angrun í Covid skilji aðeins hvað ég er að tala um.“

Vill að aðrir njóta gervihandanna

Felix átti gervi­hendur sem hann segir hafa verið rosa­lega óþægi­legar. „Maður svitn­aði því­líkt þegar það var heitt, þær voru harðar, fyr­ir­ferða­miklar og gátu lyktað hræði­lega. Ég var orð­inn ansi þreyttur á þeim seinni árin“. Þegar for­vitn­ast er hvort Felix langi ekki að henda þeim, hlær hann.  „Þetta er rán­dýrt dót svo ég held nú ekki. Þótt hver hönd sé sér­smíðuð þá eru ákveðnir partar í gervi­hand­leggjum alltaf eins, til að mynda oln­bog­arnir. Maður er nú svo hepp­inn að hafa verið í kerfi sem gat útvegað manni gervi­hendur frítt en það er fjöldi fólks út um allan heim sem hefur ekki þann lúxus. Svo ég ætla að taka þá í sundur og vona að það sé hægt að nota þetta í ein­hverju stríðs­hjáðu þriðja heims landi.“

Enginn nennir vælurum

Guð­mundur Felix verður næstu þrjú árin í stífri og erf­iðri end­ur­hæf­ingu 8 tíma á dag. Samt er Felix alltaf vera jákvæður og skemmti­legur, jafnt núna sem áður. Hvernig fer hann að þessu?

„Þetta er auð­vitað ekk­ert grín. En sárs­auka­tíma­bilið er að mestu leyti búið. Fyrstu vik­urnar voru ólýs­an­lega sárs­auka­fullar, ég var bara með putt­ann á takk­anum að dæla í mig meira mor­fíni.  En starfs­fólkið var frá­bært og vel hugsað um mig.

Auðvitað á ég daga sem ég er pirr­aður en ég er að upp­lagi mjög jafn­lyndur og það þarf mikið til að koma mér úr jafn­vægi. Ég er á miklu magni af sterkum lyfjum, vöðvarnir hafa rýrnað og ég þarf að vera á sýkla­lyfjum næstu 3 mán­uði sem auð­vitað er erfitt.

Fyrstu vik­urnar voru gíf­ur­lega sárs­auka­fullar hjá Guðmundi.

En það sem er svo mik­il­vægt er að temja sér sam­skipta­hæfni. Það nennir eng­inn að tala við fólk sem sífellt er vælandi yfir ein­hverju og setur sig í fórn­ar­lambs­hlut­verkið. Ég held að við þekkjum öll að minnsta kosti einn svo­leiðis ein­stak­ling. Svona væl getur verið ávan­bind­andi. Maður þarf að vanda sig í sam­skiptum við aðra og rækta þau, ekki taka út gremju og leið­indi yfir hrak­föllum og órétt­látu lífi.“

Hef upplifað mikla blessun

Felix virð­ist alltaf líta á björtu hlið­arnar.  Hann segir það hafa verið mikið þroska­ferli að fara í gegnum lífið án hand­leggja. „Ég var bara 25 ára gam­all, rétt hætttur að vera krakki og nýkom­inn með eigin krakka. En ég álít mig hepp­inn. Það er ótrú­legt að ég hafi lifað þetta af, ekki bara raf­magnið heldur líka fallið. Ég hef upp­lifað mikla blessun í líf­inu og á góða fjöl­skyldu og gott bak­land.“

Í frí­stundum frá end­ur­hæf­ing­unni kýs Felix að taka því rólega með eig­in­kon­unni og hund­unum. „Við förum í göngut­úra og bílt­úra. Það er svo ótrú­lega mikið hægt að gera hérna í Frakk­landi. Bæði elskum við strend­urnar við Atl­ants­hafið og förum oft til líka til Mont­pellier. Við kunnum betur við okkur þar en á Ríver­í­unni, fólk þar er snobbað og allt rán­dýrt. Svo er ekk­ert mál að skella sér um Evrópu. Við hjónin höfum farið til Ítalíu, Sviss og Póllands svo fátt eitt sé nefnt.“

Sakna ekki kuldans

Ég fer aldrei neitt norður, var nógu lengi í kuld­anum á Íslandi og verð að segja að ég sakna hans ekki. Hér byrj­aði að vora í febr­úar og hit­inn í kringum 20 gráður sem alveg ynd­is­legt. Ég væri þó til í að sjá gosið, finna ork­una. Er örugg­lega magnað!“ segir Guð­mundur Felix kampa­kátur og spenntur fyrir fram­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ