Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásta hefur leitað að blóðföður sínum í 20 ár: „Mamma mín var dularfull kona”

Ásta hefur leitað að blóðföður sínum í 20 ár: „Mamma mín var dularfull kona”
Ásta Kristín.

„Ég býð með opin arm­inn,“ segir Ásta Kristín Guðrúnar- og Páls­dóttir, hljóð­tæknir og lista­kona, sem leitar að blóð­föður sínum. ,,Mamma dó úr krabba­meini aðeins þrí­tug að aldri og núna, þegar ég er orðin 34 ára gömul sjálf, hef ég verið að átta mig á hversu óskap­lega ung hún var í raun.“

Hér má sjá færslu Ástu:

„Halló kæru vinir, vanda­menn, ætt­ingjar og hver sem nennir að deila þessu á vegg­inn sinn á Facebook, fyr­ir­fram þökk fyrir hjálp­ina.

Ég fædd­ist í Reykja­vík árið 1987, og ólst þar upp, og bý þar enn. Ég ólst upp hjá góðri fjöl­skyldu og á frá­bæran föður. Mamma mín dó árið 1991 og ég komst að því á full­orð­ins­árum að ég ætti annan líf­fræði­legan föður. Ég veit hins­vegar ekki hver það er og hef engar upp­lýs­ingar, en mig myndi langa til að reyna að finna hann.Móðir mín hét Guðrún Margrét Þor­bergs­dóttir, bjó í Reykja­vík, og var mikið í dansi og vann meðal ann­ars á Prikinu og Orku­stofnun.Ef ein­hver telur sig geta hjálpað mér með þetta eða vill aðstoða mig má vin­sam­leg­ast hafa sam­band við mig á facebook.Bestu kveðjur, Ásta“

Fjöl­skyldan er klettur

Ásta Kristín var aðeins fjög­urra ára gömul þegar móðir hennar féll frá en seg­ist muna eftir veik­inda­ferl­inu og frá­fall­inu. „Þetta var ekki eins erfitt og margir hefðu kannski getað haldið. En átti svo gott fólk að. Pabbi og öll stór­fjöl­skyldan stóðu eins og klettur saman í gegnum þetta. Og gera enn.“

Það er aug­ljóst að Ásta Kristín elskar föður sinn heitt, burt­séð frá því að í ljós hafi komið að hann sé ekki blóð­faðir hennar. „Ég ólst upp hjá honum ásamt bróður mínum sem er fjórum árum eldri en ég. Öll þessi lífs­reynsla sem við höfum farið í gegnum saman hefur gert okkur enn nán­ari, hann hefur alltaf stutt mig og verið til staðar. Ég hefði ekki getað átt betri föður.“

Byrjaði allt í líffræðitíma

Saga Ástu Krist­ínar hefst fyrir tutt­ugu árum síðan, nánar til­tekið í líf­fræði­tíma. „Við vorum að læra um blóð­flokk­ana og áttum að skrá niður blóð­flokka okkar og for­eldra okkar. Þegar ég fór að spyrj­ast fyrir var strax aug­ljóst að eitt­hvað var ekki að ganga upp. Blóð­flokk­arnir pössuðu ekki. Þá byrj­aði ég að hugsa málið betur og fá hug­myndir. Ég leit líka svo­lítið öðru­vísi út en hinir í fjöl­skyld­unni. Það sner­ist allt á hvolf og þetta fór að sækja á mig.”

Ásta Kristín velti mál­inu fyrir sér án þess að grípa til aðgerða í tæpan ára­tug. „Þegar ég var 24 ára gömul fannst mér tíma­bært að lifa í sann­leik­anum og kom­ast að þessu í eitt skipti fyrir öll. Fá málin á hreint og upp á borð. Ég vildi samt ekki gera þetta án stuðn­ings og sam­þykkis pabba, sem fannst reyndar hug­myndin fárán­leg fyrst. Við fórum síðan í DNA próf sem stað­festi grun minn.”

Nið­ur­stöð­urnar komu Ástu ekki á óvart en voru henni erf­iðar. „Ég fann til sömu til­finn­inga og þegar ég upp­götv­aði þetta með blóð­flokk­ana þegar ég var krakki. Ég sá í and­ar­tak fyrir mér eittt­hvað svona Oliver Twist mun­að­ar­leys­ingja­dæmi en ekk­ert breytt­ist. Maður missir ekki ást­vini sína út frá ein­hverju svona.”

Mamma var dularfull

Ásta er þess full­viss að föður hennar hafi verið brugðið. „Ég er þess full­viss að hann grun­aði þetta aldrei. En hann er bara svo sterkur karakter, svo fullur af kær­leika og veljvilja, að sam­band okkar hefur styrkst enn meira í þeirri vit­neskju hvað við elskum hvort annað mikið og erum góðir vinir. Hann er aðalgæinn í að hjálpa mér í leit minn. Ég geri mér vel grein fyrir að staðan hefði getað verið öðru vísi.“

Og í kjöl­farið hófst leit Ástu Krist­ínar sem hefur nú staðið yfir í ára­tug. Hún seg­ist hafa mætt miklum skiln­ingi á veg­ferð sinni. „Ég hef talað við bók­staf­lega alla, hef grafið upp alla þá sem höfðu ein­hverja teng­ingu við mömmu. Ég hef náð að kynn­ast mömmu vel í þessu ferli mínu. Ég hef kom­ist að því að hún var dul og ekki mikið fyrir að ræða sín mál. Fólk sem var afar náið henni á sínum tíma vissi ekki margt um hennar mál­efni. Ég fæ ólíkar sögur úr ólíkum áttum. Mamma mín var dul­ar­full kona.”

Pollurinn að tæmast

Aðspurð að því af hverju hún hafi tekið það skrif núna að leita til sam­fé­lags­miðla segir Ásta Kristín að hún sé að verða uppi­skroppa með heim­ildir. ,,Poll­ur­inn er að tæm­ast. Ég er búin að tala við að ég held flesta sem þekktu mömmu. Ég er líka búin að leita til DNA gagna­banka og keyra þær niðu­stöður við Íslend­inga­bók, sem er mikil vinna, en án árang­urs.

Ásta Kristín seg­ist oft hafa íhugað að fara þessa leið en núna hafi hún fundið öryggið til að taka stökkið.

„Ég vona að ein­hver þarna úti hafi upp­lýs­ingar og hafi sam­band við mig. Ég vona að eitt­hvað komi nú í ljós, og myndi taka öllum vel,“ segir Ásta Kristín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu