Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hætta-að-gera listinn

Hætta-að-gera listinn
Ingrid Kuhlman

Eftir Ingrid Kuhlman

Einföld og áhrifa­rík aðferð sem fjöldi fólks notar við tíma­stjórnun er að gera verk­efna­lista fyrir dag­inn. Þá er skrifað niður allt það sem þarf að gera yfir dag­inn og síðan farið skipu­lega í að vinna það. Verkefni sem lokið er við eru strikuð út af list­anum og nýjum verk­efnum bætt við. Til að auka skil­virkni, sér­stak­lega á tímum vinnu­tíma­stytt­ingar, getur verið enn áhrifa­rík­ara að gera svo­kall­aðan „not-to-do“ eða hætta-að-gera lista með því að lista upp öll þau atriði sem maður ætlar að hætta að gera.

Ástæðan er að eftir því sem afköstin aukast, verða sett fleiri verk­efni á okkur. Það er eins og við breyt­umst í verk­efna­segul. „Látum Siggu fá þetta verk­efni“, er sagt, „hún mun örugg­lega rúlla því upp.“ Vanda­málið er að við erum tak­mörkuð auð­lind. Það skiptir ekki máli hversu dug­leg við erum, við höfum aðeins tak­mark­aða orku og tíma. Það sem við gerum ekki hefur áhrif á hvað við getum gert. Ef við ætlum að vaxa í starfi án þess að brenna út þurfum við að ákveða það sem við ætlum ekki að gera.

Dæmi um atriði sem geta lent á hætta-að-gera list­anum eru:

  • Að segja alltaf já.
  • Að lofa upp í erm­ina á mér og skapa vænt­ingar sem ég get ekki staðið við.
  • Að mæta á eða boða til funda sem hafa ekki skýran til­gang eða skýrt mark­mið.
  • Að vakta tölvu­póst­hólfið stöðugt og svara tölvu­póstum um leið og þeir birt­ast. Ákveða í stað­inn að skoða póst­inn á fyr­ir­fram ákveðnum tímum dags­ins.
  • Að sinna verk­efnum sem við eigum ekki að sinna.
  • Að ofskrá eða ofskjala.
  • Að vera sér­fræð­ingar í öllu.
  • Að gera margt í einu („multi-task­ing“).
  • Að gera allt sjálf(ur) í stað þess að útdeila verk­efnum.
  • Að hætta að halda að við þurfum að gera allt strax.
  • Að taka þátt í hverju ein­asta verk­efni eða leysa hvert ein­asta vanda­mál.
  • Að hringja til baka í síma­númer sem maður missir af – ef málið er mik­il­vægt hringir við­kom­andi aftur.
  • Að verja of miklum tíma á sam­fé­lags- eða vef­miðlum.
  • Að taka vinn­una með sér heim

Með því að gera hætta-að gera lista færum við fók­us­inn á það sem skiptir raun­veru­lega máli. Þannig verjum við orku í það sem við viljum áorka og hámörkum skil­virkni.

Grein­ar­höf­undur er fram­kvæmda­stjóri Þekk­ing­ar­miðl­unar, FKA-kona, og með meistara­gráðu í hag­nýtri jákvæðri sál­fræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu