Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jóhannes fær 15 milljóna uppljóstraraverðlaun: „Nýtist í baráttu við hið illa fyrirtæki Samherja“

Jóhannes fær 15 milljóna uppljóstraraverðlaun: „Nýtist í baráttu við hið illa fyrirtæki Samherja“

Tilkynnt hefur verið að Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, muni hjóta hin virtu Win Win sjálf­bærni­verð­laun í Svíþjóð. Meðal þeirra sem hlotið verð­launin eru heims­þekktir ein­stak­lingar á við Gro Harlem Brundtland, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Noregs, Al Gore, fyrr­ver­andi vara­for­seti Banda­ríkj­anna og Kofi Anna, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna. Þau eru einkum veitt þeim ein­stak­lingum og sam­tökum sem berj­ast gegn spill­ing og fyrir betri heimi og betra sam­fé­lagi.

Verð­launin verða afhent Jóhann­esi í Gauta­borg í októ­ber. Þau nema einni milljón sænskra króna eða um fimmtán millj­ónum íslenskra.

Mútugreiðslur og skattsvik

Jóhannes var verk­efna­stjóri Samherja í Namibíu til árs­ins 2016. Árið 2019 ljóstr­aði hann upp um meintar mútu­greiðslur og skatt­svik fyr­ir­tæk­ins í Namibíu og í kjöl­farið hófst reyfara­kennd atburð­ar­rás sem enn sér ekki fyrir end­ann á. Að sögn Jóhann­esar hafði Samherji kom­ist yfir eft­ir­sótta kvóta við strendur strendur Namibíu með mútu­greiðslum til hátt­settra opin­berra starfs­manna. Verðmæti kvót­anna hleypur á tugum millj­arða.

„Þetta hefur valdið mér því­líku hug­ar­angri og þess vegna er ég að stíga fram, því ég, ég er ekki heil­agur en ég svík ekki fólk og bara heila þjóð svona mikið,“ sagði hann í við­tali við frétta­skýr­inga­þátt­inn Kveik.

Jóhannes Stef­áns­son verða afhent alþjóð­leg verð­laun fyrir þátt sinn í Sam­herj­a­mál­inu.

„Ég meina mín fram­tíð í hvaða atvinnu sem er hún er nátt­úru­lega bara búin, en ég alla­vega mun geta sofið á nótt­unni ef að við náum að koma þessu vel og rétt fram og það verða breyt­ingar til hins betra og fólkið í Namibíu fær að njóta góðs af auð­lind­unum en ekki eitt­hvað vest­rænt ríki og ein­hverjir örfáir spilltir aðilar sem síðan horfa upp á þjóð­ina þjást.“

Atlaga að lífi

Í kjöl­farið lýsti Jóhannes því yfir að sér hefði verið byrlað eitur og sagði það ekki vera óþekkta leið í Namibíu til að klekkja á and­stæð­ingum. Hann rakti byrl­un­ina beint til Sam­herj­a­máls­ins og tjáði fyrrum vinnu­veit­anda sinn vel með­vit­aðan af til­raun­inni til að ráða hann af dögum.

Samherji réðst að mik­illi hörku gegn Jóhann­esi svo og Helga Seljan frétta­manni og kærði þá báða. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, kærði Jóhannes fyrir „rangar sak­ar­giftir vegna full­yrð­inga um til­raun til mann­dráps og frels­is­svipt­ingar.“ Fyr­ir­tækið kærði einnig ell­efu starfs­menn Kveiks vegna meintra brota á siða­reglum RÚV.

Kollvarpaði heilum iðnaði

Dóm­nefndin er stolt af vali sínu og segir í til­kynn­ingu:

„Því miður þurfa þeir sem hafa hug­rekki til að ganga á hólm við spill­ingu og vald­níðslu oft að borga það háu verði og það á sann­ar­lega við um Jóhannes Stef­áns­son. Af óaf­lát­an­legri ein­beitni hefur hann látið yfir sig ganga stöðuga áreitni, líf­lát­hót­anir og atlögur að lífi sínu og haldið bar­átt­unni áfram. Þetta er ein­stak­lingur sem hefur koll­varpað heilum iðn­aði en styrkt rétt­læti fyrir almenn­ing, sann­kölluð hetja sem við erum mjög stolt af að veita þessi verð­laun nú í ár, segir for­maður dóm­nefndar WIN WIN, Emma Dalväg.“

Íslend­ingar hafa brugð­ist vel við á sam­fé­lags­miðlum og meðal ann­ars skrifar Gunnar Smári Egilsson eft­ir­far­andi:

„Eins og við­brögð Íslend­inga við Hruninu báru út hróður lands­ins (réttað yfir banka­mönnum, ný stjórn­ar­skrá o.s.frv.) þá hefur Helgi Seljan og Kveiks­fólkið borið út hróður okkar í Sam­herj­a­mál­inu, en þó kannski fyrst og fremst Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ari. Á sama tíma er auð­vitað Þor­steinn Már og Sam­herj­a­menn að sverta land og þjóð víða um heim, afhjúpa hvurs­lags ógeð við höfum látið við­gang­ast. En svona mál eru alltaf áskorun um hver við erum sem hópur; ætlum við að verja ill­virkj­ana og þjóð­níð­ing­ana eða ætlum við að taka þá ástand­inu með góðum og upp­byggi­legum hætti. Vonandi nýt­ist verð­launafé Jóhann­esi í ójafnri bar­áttu hans við hið illa fyr­ir­tæki Samherja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi