Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Jóhannes sannfærður að eitrað hafi verið fyrir sér: „Ég er með einkenni um allan líkamann“

„Ég er með ein­kenni um allan lík­amann. Þetta lýsir sér með skjálfta og sjón­trufl­unum. Úthald mitt er ekki nema brot af því sem það áður var þegar ég gat hlaupið 5- 10 kíló­metra án þess að finna fyrir því,“ segir Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóst­ar­inn í Sam­herj­a­mál­inu, um veik­indi sem staðið hafa í fjögur ár og eru rakin til þess að eitrað hafi verið fyrir honum. Einkenni eru meðal ann­ars höf­uð­verkur, verkir fyrir brjósti og úthalds­leysi.

Jóhannes seg­ist ekki vera í vafa um að eitrað hafi verið fyrir sér þegar hann starf­aði í Namibíu. Hanns egir að í sunn­an­verðri Afríku tíðk­ist það í upp­gjörum að mis­ynd­is­fólk eitri fyrir þeim sem ekki eru í náð­inni. Einkenni sem hann glími við passi við veik­indi hans.  Jóhannes hefur und­an­farið verið að leita sér lækn­inga erlendis. Vonir standa til þess að sjúkra­hús í Evrópu geti unnið á afleið­ingum eitr­un­ar­innar. GoFundMe síða hefur verið sett upp tilk styrktar fyrir Jóhannes til að fjár­magna lækn­is­með­ferð sem hann þarf á að halda. Jóhannes seg­ist ekki vera í vafa um að eitrað hafi verið fyrir honum og lækna hér á Íslandi gruni það sama en  heil­brigð­is­kerfið búi ekki yfir þeim bún­aði sem þurfi.

„Ég hef fundið rétta spít­al­ann til að vinna gegn veik­indum mínum. Aðgerðin er dýr og kostar allt að 75 þús­und evrum,“ segir Jóhannes við Mannlíf.

Samtök upp­ljóstr­ara standa að söfn­un­inni sem finna má hér. Yfir 3500 evrur hafa þegar safn­ast eða rúm­lega 700 þús­und krónur.

Jóhannes varð þjóð­þekktur eftir að hann ljóstr­aði upp um meintar mútur og skatt­svik félaga Samherja í Namibíu og Angóla. Rannsókn vegna þeirra mála hefur staðið víða, meðal ann­ars á Íslandi. Talsmenn Samherja neita því að brot hafi átt sér stað nema þá á ábyrgð Jóhann­esar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu