Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fiskikónginum hótað – Sjómenn æfir: „Er ég niðurbrotinn: JÁ“

Fiskikónginum hótað – Sjómenn æfir: „Er ég niðurbrotinn: JÁ“
Fiski­kóng­ur­inn, Kristján Berg Ásgeirs­son, stendur í ólgu­sjó.

Fiski­kóng­ur­inn, Kristján Berg, segir að sér hafi verið hótað ofbeldi eftir að hann skamm­aði sjó­menn fyrir að afhenda fisk í drullu­skítugum fiski­körum. Kristján segir á Facebook að við­brögð sjó­manna hafi verið hörð og gróf. Reiðir menn hringi í ítrekað í hann og ausi yfir hann sví­virð­ingum.

Sjá einnig: Fiski­kóng­ur­inn: „Margir sjó­menn sem eru algerir fokk­ing DRULLUSOKKAR“

Rót máls­ins er færsla sem Kristján deildi á dög­unum þar sem hann sagð­ist búinn að fá sig fullsaddan af því að fá við­bjóðs­leg fiski­kör. Hann sagði að sumir sjó­menn væru drullu­sokkar og sóðar sem ættu ekki að umgang­ast mat­væli. Kristján seg­ist í dag nið­ur­brot­inn en ætlar þó ekki að gefa eftir.

„OFBELDI – Fagmaður- Drullu­sokkur –Hótanir Er ég nið­ur­brot­inn. JÁ Ætla ég að gef­ast upp. NEI. Ég og mitt fyr­ir­tæki höfum orðið fyrir miklu aðkasti, hót­unum og leið­indum vegna greinar minnar um skítugar umbúðir utan um íslenskt hrá­efni. Ég og mitt fyr­ir­tæki eigum ekki að vera pílu­spjald „drullu­sokk­anna“ Orð mín hafa verið slitin úr sam­hengi,“ segir Kristján.

Hann seg­ist alls ekki hafa verið að kalla alla sjó­menn drullu­sokka. „ÞAÐ SEM ÉG SAGÐI OG MEINA. A) Fagmaður er sá sem gengur vel um íslenskt hrá­efni af virð­ingu og með stolti. Setur í hreinar umbúðir, kælir vel afurð­irnar, og gengur almennt vel um íslenskar auð­lindir. Svo­leiðis vill ég að allir séu. B) Drullu­sokkur er sá sem gengur ILLA um auð­lindir okkar. Fer illa með íslenskt sjáv­ar­fang. Afhendir afurðir frá sér í DRULLUSKÍTUGUM umbúðum, gengur illa um auð­lindir okkar. Ber enga virð­ingu fyrir starf­inu sínu og íslenskum auð­lindum,“ segir Kristján.

Hann seg­ist vilja leið­rétta þennan mis­skiln­ing. „Sjómenn, margir hverjir hafa litið svo á að ég sé að tala svona um alla sjó­menn. Það er bara ekki rétt, og er leið­rétt hér með, ef það hefur orðið mis­skiln­ingur hjá við­kom­andi aðila. Í hvoru lið­inu vilt þú vera? A eða B?“

Hann seg­ist ætla að kæra til lög­reglu suma þá sem hafa áreitt hann. „Ég hef fengið sent til mín, á Snappchat, á messen­ger, sím­töl og heim­sóknir í verslun mína.  þar hefur mér verið hótað ofbeldi, fyr­ir­tækið mitt rifið niður, starfs­fólk mitt áreitt og inn­hring­ingar þar sem rifið er kjaft og skellt á.  Hver á í hlut? Það veit ég svo sem ekki, hver það er sem hringir inn og eys yfir okkur við­bjóðnum, en ég veit hverjir það eru sem senda mér hót­anir og annað slíkt á Facebook og öðrum sam­fé­lags­miðlum, það er alltaf undir nafni. Eitthvað af þessu verður kært. Er bara að meta það,“ segir Kristján.

Hann segir ótrú­legt hvernig eng­inn í stétt­inni stendur með honum í þessu slag. „Það sem er alveg ótrú­legt er: Fólk í minni grein, tekur ekki slag­inn með mér. Ég er þá að tala um sjó­menn, fisk­kaup­endur, fisk­verk­endur, fisk­mark­aði, vöru­bíl­stjóra og aðra er starfa í fisk­iðn­að­inum, jú og jafn­vel neyt­endur fisks. Það er engu lík­ara en fólk vilji bara hafa sóða­skap og óþrifnað áfram í þess­ari grein. Ef þið viljið styðja mig. LÁTIÐ Í YKKUR HEYRA. Að mínu mati er það óásætt­an­legt. Óþrifn­aður og annar við­bjóður í kringum mat­væli á ekki sam­leið. Það er mín skoðun og hún breyt­ist ekki, þó svo ég og mitt fyr­ir­tæki og mitt starfs­fólk fái þennan við­bjóð yfir okkur,“ segir Kristján.

Hann segir það ekki ganga lengur að dreifa drullu­skítugum fiski­körum. „Það er fullt af virki­lega flottum og vel reknum íslenskum fyr­ir­tækjum í sjáv­ar­út­vegi. Mikið af hæfu fólki, fólki sem ber virð­ingu fyrir starf­inu sínu og grein­inni. Ég er þá að tala um sjó­menn, fisk­verk­endur, fisk­mark­aði og aðra er starfa í fisk­iðn­að­inum. Við getum ekki látið ein­hverja aðila sem ganga svona illa um okkar auð­lindir skemma fyrir okkur sjáv­ar­út­veg­inn og koma óorði á okkar starfs­grein. Alla vegna er ég til­bú­inn að berj­ast með kjafti og klóm,“ segir Kristján.

Hann seg­ist þó hafa fengið nokkur hrós. „Ég hef líka fengið fullt af hrósum. Það má ekki gleyma að segja frá því.  -Fisk­mark­aður Vest­fjarða Sammi, hringdi og þakk­aði mér fyrir mína bar­áttu. -Fisk­mark­aður Suð­ur­nesja send mér kveðju. Flott kveðja. -Stór útgerð­ar­að­ili, (sem vill ekki láta nafn síns getið) kom í verslun mína og gaf mér knús. Sagði að það hefið þurft kjark í að gera þetta og umræðan löngu orðin tíma­bær. Hann studdi mig í þess­ari bar­áttu 100% -síðan eru ótal send­ingar sem ég hef fengið klapp á bakið með,“ segir Kristján.

Einn hafi þó velt því fyrir sér hvers vegna hann er að taka þennan slag núna. „Það sem slóg mig reyndar voru skila­boð sem fyrr­ver­andi starfs­maður á Fisk­mark­aði Ólafs­víkur, Beggi, sendi mér á net­inu. Þar segir hann. „Hehe Þú er búinn að versla við mark­aði í 25 ár einsog þú segir. Af hverju að kvarta núna“  Honum finnst þetta greini­lega bara fyndið allt saman. Þessi skila­boð segir margt um hugs­un­ar­gang „nokkuð margra aðila“ í þess­ari grein.  -Þetta er búið að vera svona lengi, og þá á ég bara að sætta mig við óþrifn­að­inn,“ segir Kristján.

Hann biðlar svo til sjó­manna að hætta áreit­inu. „Að lokum. Er ásætt­an­legt að óþrifn­aður „ein­stakra aðila“ í kringum íslenska sjáv­ar­út­veg­inn, eigi að líð­ast? Er það þetta sem við viljum? Ef þið viljið þetta ekki, þá megið þið tjá ykkur og ganga til liðs við mína bar­áttu. Ef þið viljið halda áfram á fornöld og engu breyta, ganga illa um íslenska hrá­efni og íslensk­ann sjáv­ar­út­veg, þá megið þið skamm­ast ykkar.  Þið getið hætt að senda mér og mínu fyr­ir­tæki skila­boð, hættið inn­hring­ingum, og hættið að ausið úr reiði ykkar yfir okkur, byrjið á því að taka til í ykkar garði.

„Við ætlum ekki að gef­ast upp fyrir óþrifn­aði. Við eigum okkar við­skipta­vini, sem okkur þykir vænt um.  Við ætlum að halda áfram á okkar braut að stuðla að því að selja íslensk­ann ómeng­að­ann fisk. Villi­bráð. Við erum stolt af okkar starfi. Við berum virð­ingu fyrir grein­inni og við berum virð­ingu fyrir sjó­mönnum sem stunda grein­ina og ganga vel um íslenskar auð­lindir, íslenskt hrá­efni og afhenda okkur vörur í hreinum umbúðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi